Fréttablaðið - 07.09.2015, Qupperneq 42
Flott úrval af æfingafatnaði fyrir
börn og fullorðna á frábæru verði!
RÆKTIN Í
HAUST
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
PROTOUCH GILL FUNKTION
Hálfrennd peysa úr Dry Plus efni. Litur:
Bleik. Dömustærðir.
PROTOUCH PILOLA TEE
Stuttermabolur úr Dry Plus efni. Litur:
Svartur. Barnastærðir.
PROTOUCH GUS FUNKTION
Hálfrennd peysa úr Dry Plus efni. Litir:
Rauð, svört. Herrastærðir.
3.990
4.990
4.990
PROTOUCH ELIPS JR
Hálfrennd peysa. úr Dry Plus efni. Litir:
Blá, rauð. Barnastærðir.
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
4.490
PUMA PIONER
25 L bakpoki með fartölvuhólfi, endur-
skinsborða og stillanlegum ólum.
Litir: Svartur, blár og bleikur.
Frábært
verð!
3.990
KÖRFUBOLTI „Ég er mjög stoltur af því
hvernig við komum inn í þennan leik.
Við eyddum svo mikilli orku í tapinu
gegn Þýskalandi sem var gríðarlega
svekkjandi,“ sagði Jón Arnór Stefáns-
son eftir naumt tap á móti Ítölum á
EM í gær. Ítalir unnu leikinn 71-64 en
aðeins þremur mínútum fyrir leiks-
lok var staðan 62-59 fyrir Ísland.
Daginn eftir að íslenska liðið kom
mörgum á óvart með því að vera
nálægt því að stela sigri af heima-
mönnum í Þýskalandi þá var liðið í
leik allan tímann á móti Ítölum í gær.
„Við þurftum að rífa okkur upp
aftur og við gerðum það í dag. Það
voru fleiri sem stigu upp í dag. Flestir
fyrir utan mig spiluðu bara rosa-
lega vel,“ sagði Jón Arnór harður við
sjálfan sig en Ítalirnir lögðu ofurkapp
á að stoppa hann í leiknum.
„Ég átti eiginlega ekki möguleika í
dag. Liðið var hins vegar gott og við
áttum aftur möguleika á að vinna
leikinn í dag en við náðum því bara
því miður ekki,“ sagði Jón Arnór.
Þetta er allt nýtt fyrir okkur
Íslenska liðið hefur átti möguleika á
sigri í tveimur leikjum í röð en strák-
arnir hafa verið örlítið úrræðalausir
á móti hávöxnum og einbeittum
vörnum mótherjanna á lokamín-
útum beggja leikja.
„Okkur vantar eitthvað smá í við-
bót til þess að klára þessa leiki, sem
er bara mjög eðlilegt. Þetta er allt
nýtt fyrir okkur og við erum að spila
á móti sterkum þjóðum sem hafa
gert þetta allt áður. Það var því smá
ringulreið í lokin því við fengum
opin skot sem við nýttum ekki. Við
hefðum líka getað fengið einhverja
dóma í lokin fannst mér en við erum
bara ógeðslega svekktir að hafa tapað
þessum leik,“ sagði Jón Arnór.
Jón Arnór hitti aðeins úr 4 af 16
skotum sínum í leiknum og viður-
kenndi að hafa verið með þreyttar
lappir í leiknum í gær.
„Ég komst í gegnum þetta á lífi
og það er jákvætt. Ég reyndi mitt
besta eins og alltaf en strákarnir
eiga mikið skilið því mér fannst þeir
draga vagninn allan leikinn,“ sagði
Jón Arnór.
Erum komnir til að stríða öðrum
Íslenska liðið hefur stimplað sig vel
inn í sitt fyrsta Evrópumót þótt að
báðir leikirnir hafi tapast.
„Við erum mættir á þetta mót til
að stríða þessum þjóðum og koma
öllum á óvart. Við erum heldur betur
að gera það. Það má taka það jákvætt
frá þessum leik þó að maður sé
drullu svekktur að hafa tapað,“ sagði
Jón Arnór.
Íslenska liðið var nálægt sigri á
gólfinu en Ísland burstaði hins vegar
baráttuna um stúkuna.
„Ég vil nota tækifærið og þakka
þessum Íslendingum sem eru komn-
ir hingað til að styðja okkur. Við
strákarnir vorum bara klökkir eftir
leikinn og það er ótrúlega gaman
að sjá hvað margir mættu hingað
til Berlínar," segir Jón sem sagði að
íslenska hjartað hefði slegið ört við
að horfa upp á fagurbláa stúkuna
öskra öll sem ein: „Áfram Ísland.“
„Þeir gefa okkur eitthvað extra. Ég
hef aldrei upplifað svona áður. Þetta
er alveg risastórt fyrir okkur og gefur
þennan aukakraft sem við þurfum.
Þetta er rosalega mikilvægt fyrir
okkur,“ sagði Jón Arnór að lokum.
Áttum möguleika að vinna báða leikina
Íslenska körfuboltalandsliðið hefur unnið hug og hjörtu margra með frammistöðu sinni í fyrstu tveimur leikjum sínum á Evrópu
mótinu í Berlín þrátt fyrir tvö naum töp. Litla liðið á mótinu er með risastórt hjarta og var nálægt sigri gegn bæði Þýskalandi og Ítalíu.
Óskar Ófeigur
Jónsson
ooj@frettabladid.is
Frá Berlín
Strákarnir börðust fyrir lífi sínu gegn Þýskalandi og Ítalíu en töpuðu naumlega báðum leikjunum í Berlín. Fréttablaðið/Valli
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 5 M Á N U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
9
-2
0
1
5
2
3
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
F
E
-2
E
9
C
1
5
F
E
-2
D
6
0
1
5
F
E
-2
C
2
4
1
5
F
E
-2
A
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K