Fréttablaðið - 07.09.2015, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
ÞÍN STUND
ÞINN STAÐUR
Jahn
Aamodt
Leggur grunn að góðum degi
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477 | Opið virka daga frá kl. 10-18 & Laugard. frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 | Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566 |
www.betrabak.is
TIMEOUT hægindastóllinn er hannaður af Jahn Aamondt með
fagurfræði og þægindi að leiðarljósi. Stóllinn fæst hjá Betra Baki
í ótal útfærslum. Svörtu leðri og hnotu, svörtu leðri og ljósri eik,
lime grænu, rauðu eða hvítu leðri og svörtum botni, brúnu leðri
allan hringinn, gráu slitsterku áklæði o.fl., með eða án skemils.
Svart leður og hnota
379.980
krónur með skemli
Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is
ENDALAUST TAL OG
10 GB Á 3.990 KR.*
Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu frábært
sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði.
Allt það besta hjá 365
*Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365
„Ég er búin að vera erlendis mjög
lengi,“ segir stílistinn Edda Guð-
mundsdóttir hlæjandi og bætir við að
hún komist ekki eins oft til Íslands og
hún myndi vilja enda nóg að gera hjá
henni í New York.
Þrátt fyrir að starfa sem stílisti og
hafa náð gríðargóðum árangri á þeim
vettvangi segir hún það hafa verið
hálfgerða tilviljun að hún hóf störf
sem stílisti. „Ég var í ballett og fór út
til þess að dansa og einhvern veginn
leiddist ég út í þetta,“ segir hún glöð
í bragði.
„Ég hafði alltaf mikinn áhuga
á tísku og kynntist manni sem
var með fatafyrirtæki og fór
að vinna með honum. Út frá
því fóru svo ljósmyndarar að
biðja mig um að aðstoða við
myndatökur. Til að byrja
með fannst mér svo ótrú-
legt að fólk vildi borga
fyrir eitthvað sem mér
þótti svona skemmti-
legt að gera,“ segir hún
og bætir við: „Fyrr en
varir var ég allt í einu
farin að gera svo-
lítið mikið af þessu
og fattaði að þetta
gæti verið eitthvað
sem væri í raun
og veru vinna.“
Stíliseraði
myndband
Taylor Swift
Taylor Swift er
ein af skærustu
p o p p st j ö r n u m
heimsins í dag
og staðfesting
á því fékkst
heldur betur
á VMA-verð-
launahátíðinni,
sem fram fór
30. ágúst, þegar
hún vann til
flestra verðlauna
á hátíðinni. Swift fór heim með fern
verðlaun og var einnig sá listamaður
sem hlaut flestar tilnefningar, alls tíu
talsins. Myndbandið við lagið Blank
Space vann til tvennra verðlauna á
hátíðinni en Edda sá um stílisering-
una í myndbandinu.
Nóg um að vera
„Ég er að vinna við að gera sýningu
fyrir tískuvikuna í New York og aðra
sýningu fyrir tískuvikuna í París. Það
er svona það næsta sem er að gerast
núna í mínum vinnuheimi á næstu
vikum.“
Tískuvikurnar í New
York og París hefjast 9.
september og standa
yfir til 9. október og
Edda segir þær spenn-
andi og skemmti-
legan tíma en þó
ekki stærsta bita
stílistans. „Það er
svona smá eins og
fínt business-
kort,“ segir
hún sposk og
heldur áfram:
„Það er alltaf
l o k a m a r k -
miðið að fá
stórar aug-
lýsingar eða
jafnvel bíó-
myndir. Það
er þar sem
stóru launin
koma inn.“
Edda er með
bókanir fyrir
næstu tvö ár
og er ánægð
í New York.
Meðal verk-
efna hennar
á n æ s t u
árum eru
v e r k e f n i
fyrir Broad-
way og hún
segir algengt
að verkefni af
slíkri stærðar-
gráðu séu bókuð mörg ár fram í
tímann. Hún segir gaman að taka
þátt í tískuvikunum þar sem öllu er
til tjaldað og margra mánaða vinna
loksins afhjúpuð. „Það er svo mikil
sköpun í gangi. Fólk er búið að loka
sig inni í marga mánuði og svo koma
allir út og sýna það sem þeir eru búnir
að vera að vinna að síðustu mán-
uðina. Það er gaman að vera hluti af
því öllu saman.“
Wintour meðal gesta
Í ár stíliserar hún fyrir fyrirtækið
Chromat, sem meðal annars sá um
stíliseringu á Superbowl-sýningu
Beyoncé auk tónleikaferðar hennar,
Mrs. Carter Show World Tour, og
hafa stjörnur á borð við Madonna,
Nicki Minaj, Ellie Goulding, Rita Ora
og Azealia Banks klæðst flíkum frá
merkinu, sem stofnað var árið 2010.
„Þau eru einnig tilnefnd til CFDA-
verðlaunanna, sem er svona eins og
Óskarinn í tísku og fólk er að fylgjast
mikið með þeim. Þetta er spennandi
tími hjá þeim, þau eru að komast
úr því að vera svona „underground“
fyrirtæki yfir á stærri markað. Ég er
búin að vera ráðgjafi og að stílisera
fyrir þau í nokkur ár og það er gaman
að sjá þetta allt á uppleið,“ segir Edda
en á meðal gesta á sýningunni verður
ritstjóri bandaríska Vogue, Anna
Wintour.
Lokakjóll sýningarinnar á tísku-
vikunum er gerður í samstarfi við
fyrirtækið Intel og getur Edda ekki
sagt mikið frá því þar sem mikil
leynd hvílir að sjálfsögðu yfir loka-
atriði sýningarinnar. „Þetta er svona
hálfgert hjónaband á milli tækni
og tísku sem ég held að sé fram-
tíðin í tískunni,“ segir hún að lokum.
gydaloa@frettabladid.is
Fór frá því að dansa
ballett í starf stílista
Nicki Minaj klædd í
topp frá Chromat.
Það er nóg að gera hjá Eddu úti en nú er hún á fullu við að undirbúa tískuvikurnar í New York og París sem fara að bresta á.
Mynd/Elísabet
Edda Guðmundsdóttir hefur starfað sem stílisti erlendis í fjölda ára.
Hún stíliseraði Taylor Swift fyrir myndbandið Blank Space, sem
vann til tveggja verðlauna á VMA-verðlaunahátíðinni á dögunum.
ÉG ER BÚIN AÐ VERA
RÁÐGJAFI OG AÐ
STÍLISERA FYRIR ÞAU Í NOKKUR
ÁR OG ÞAÐ ER GAMAN AÐ SJÁ
ÞETTA ALLT Á UPPLEIÐ.
7 . S E P T E M B E R 2 0 1 5 M Á N U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
9
-2
0
1
5
2
3
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
F
E
-3
8
7
C
1
5
F
E
-3
7
4
0
1
5
F
E
-3
6
0
4
1
5
F
E
-3
4
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K