Fréttablaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 6
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
7
65
38
1
0/
15
www.lyfja.is
Lægra
verð í
Lyfju
Panodil-dagar í október
20%
afsláttur
af Panodil lausasölulyfjum
- Lifi› heil
stjórnmál Stjórnmálaflokkarnir
fá greiddar samtals 286 milljónir
króna úr ríkissjóði í ár. Flokkarnir
fá greitt í hlutfalli við gild atkvæði
sem þeim voru greidd í síðustu
kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk mest greitt, eða tæplega 81
milljón. Framsóknarflokkurinn fékk
næstmest eða 74 milljónir. Flokkur
heimilanna og Dögun fá minnst, eða
rétt rúmar 9 milljónir hvor.
Stjórnmálaflokkarnir fá greitt
samkvæmt lögum um fjármál
stjórnmálasamtaka og frambjóð-
enda og um upplýsingaskyldu
þeirra. Greiðslur eru samkvæmt
ákvörðun fjárlaga hverju sinni.
Stjórnmálasamtök sem hafa fengið
minnst einn mann kjörinn á þing
eða náð að lágmarki 2,5 prósentum
atkvæða eiga rétt á framlögum.
Í fyrra fengu stjórnmálaflokk-
arnir 262 milljónir, 289 milljónir
þar áður og 295 milljónir árið 2012.
Greiðslurnar síðustu fjögur árið
nema því rúmum 1.100 milljónum
króna. – jhh
Tæpar 300
milljónir til
flokkanna
Stjórnmálaflokkarnir hafa fengið rúmar
1.100 milljónir á fjórum árum.
Fagnaðarfundir fyrrverandi ráðamanna
stóriðja Thorsil hefur tryggt sér
87 MW raforku fyrir kísilmálmverk-
smiðju í Helguvík að sögn Hákonar
Björnssonar, forstjóra Thorsil. Hvorki
Landsvirkjun né Orkuveita Reykjavík-
ur ætla að útvega fyrirtækinu raforku.
„Við erum búnir að tryggja okkur
samning um 87 MW raforku fyrir
verksmiðju okkar í Helguvík. Hvaðan
það kemur get ég ekki upplýst um á
þessu stigi málsins en það upplýsist
fljótlega,“ segir Hákon.
Nú þurfi aðeins samþykki Eftirlits-
stofnunar EFTA á samningum. „Við
erum að klára alla þætti fjármögn-
unar. Það hefur dregist vegna þess
að raforkusamningar hafa ekki verið
tryggðir fyrr en nú. Nú getum við því
gengið hreint til verks.“
Hákon vildi hvorki gefa upp verð á
raforku né hver seldi þeim orkuna. Í
langan tíma hefur verið talað um að
raforka sé að verða uppseld í landinu
og því 87 MW torsótt nema frekari
virkjanir líti dagsins ljós í náinni
framtíð.
Magnús Þór Gylfason, yfirmaður
samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir
ekki liggja fyrir samning milli fyrir-
tækisins og Thorsil.
„Að öðru leyti tjáum við okkur ekki
venju samkvæmt um viðræður við
einstaka aðila,“ segir í svari Magnúsar.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, neitar
einnig að Thorsil fái raforku frá Orku-
veitunni.
Ásgeir Marteinsson, forstjóri HS
Orku, vildi ekkert tjá sig við blaða-
mann um málið þegar eftir því var
leitað. Sagðist hann ekkert hafa um
málið að segja.
Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar er
slæm. Skuldir sveitarfélagsins eru um
42 milljarðar króna og Reykjaneshöfn
skuldar þar af um 7 milljarða.
Að mati Kjartans Más Kjartans-
sonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ,
skiptir það höfuðmáli fyrir fjárhag
sveitarfélagsins að uppbygging hefj-
ist í Helguvík.
„Ef ekkert gerist þá mun fjárhags-
stjórn verða sett yfir fjármál sveitar-
félagsins,“ segir Kjartan Már. „Það er
mjög mikilvægt að raforka fáist inn á
svæðið svo hægt sé að fara að fá arð af
fjárfestingunni í Helguvík.“
Reykjaneshöfn fékk í gær frest
kröfuhafa til að greiða afborgun lána
að upphæð um 100 milljónir króna.
Fresturinn er til 30. nóvember.
Á sama tíma samþykkti stjórn
Reykjaneshafnar beiðni Thorsil um
að fresta greiðslu gatnagerðargjalda,
vel á annað hundrað milljóna króna,
til 15. desember. sveinn@frettabladid.is
Fullyrðir að raforkusamningur sé í höfn
Forstjóri Thorsil segir samninga liggja fyrir milli Thorsil og heildsala raforku um afhendingu 87 MW raforku. Ekki er gefið upp hvaðan
orkan eigi að koma. Hvorki Landsvirkjun né Orkuveita Reykjavíkur segjast tryggja Thorsil raforku. Forstjóri HS Orku segist ekki tjá sig.
Ljóst er að frekari virkjunarframkvæmda er þörf ef allir aðilar í Helguvík eiga að fá
næga raforku til framleiðslu sinnar. FréttabLaðið/GVa
Fyrrverandi forsetinn Vigdís Finnbogadóttir og fyrrverandi forsætisráðherrann Jóhanna Sigurðardóttir léku á als oddi við frumsýningu á nýrri heimild-
armynd um Jóhönnu í Bíói Paradís. Myndin er eftir Björn B. Björnsson og fjallar um síðustu mánuði Jóhönnu á stóli forsætisráðherra. FréttabLaðið/ViLHeLm
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö s t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
0
-B
9
F
0
1
6
C
0
-B
8
B
4
1
6
C
0
-B
7
7
8
1
6
C
0
-B
6
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K