Fréttablaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 16.10.2015, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Hanna er sautján ára stelpa sem hefur átt ansi erfiða æsku og þurft að hafa mikið fyrir lífinu. Flosnar upp úr skóla, byrjar að drekka þrettán ára og lendir í slæmum félagsskap og neyslu. Við gætum líklega ekki verið ólíkari,“ segir hin tuttugu og þriggja ára Birna Rún Eiríksdóttir um persón- una sem hún leikur í þriðju þáttaröð Réttar. Sjálf er Birna ráðsett móðir og kærasta, á lokametrum leikaranáms við Listaháskóla Íslands, og hefur ekki svo mikið sem reykt sígarettu. „Þetta var frekar fyndið, og mikið hlegið að mér á setti þegar ég var að reyna að læra að reykja,“ útskýrir Birna og skellir upp úr. „Mér var jafnframt kennt hvernig maður setur fíkniefni í sprautu, hvað gerist eftir að maður hefur tekið inn eitur- lyf og allt þetta. Þetta hefur verið lærdómsríkt ferli.“ Segist Birna hafa hellt sér út í hlutverkið af réttum ástæðum og það skipti heilmiklu máli. „Þú hoppar ekkert út í nauðgunar- og nektarsenur nema gera það af réttum ástæðum. Ég fór í þetta með hjartanu alla leið, og það skiptir mig máli að segja þessar sögur. Ég þoli ekki þessa fordóma sem eru í gangi gagnvart svokölluðum Adidas- krökkum, og hvernig fólk leyfir sér að gera grín að þeim. Þetta gætu allt eins verið börnin þín,“ segir Birna alvarleg. „Við pössuðum okkur mikið á að fara varlega í þetta, og gættum þess að glamúr-væða ekki þetta líf. Þannig værum við að van- virða aðstæðurnar. Það eru krakkar Ætlar ekki að horfa með mömmu og pabba Birna Rún Eiríksdóttir fer með lykilhlutverk í nýjustu þáttaröð Réttar sem fer í loftið á sunnudag. „Ég fór í þetta með öllu hjartanu.“ Birna og Baldvin hafa áður unnið saman, en þá var hún 16 ára og fór með hlutverk í kvikmyndinni Óróa. Hún segist seint munu slá hendinni á móti hlutverkum í myndum Baldvins, enda þyki henni óhemju vænt um leikstjórann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM í djúpri neyslu allt í kringum okkur, þó við sjáum það kannski ekki.“ Kærasti Birnu vann um tíma með börnum sem lent höfðu í klóm fíknarinnar og hjálpaði hann henni að miklu leyti að nálgast persónuna sína. „Ég held að ef hann hefði ekki verið búinn að undirbúa mig svo- lítið með sögum, þá hefði ég átt bágt með að trúa þessum sögum sem verið er að vinna með,“ segir Birna, en sögurnar sem unnið er upp úr eru mikið til byggðar á veru- leika íslenskra ungmenna í dag, sem fólk gerir sér oft ekki grein fyrir að er bláköld staðreynd. „Dóttir mín þekkir mig ekki í stiklunni. Ég passaði mig alltaf á að þrífa mig í framan og taka mér smá móment áður en ég svissaði aftur yfir í minn veruleika, þar sem mikið gat gengið á og hægara sagt en gert að koma til baka sveitt og útgrátin eftir nauðgunaratriði til dæmis,“ útskýrir Birna aðspurð um hvernig hafi verið að brúa bilið á milli Hönnu og Birnu. Sjálf segist hún ekki hafa séð þættina, en hafa nú þegar varað fjölskyldumeðlimi við. „Maður systur minnar hefur til dæmis ákveðið að horfa bara alls ekki, en hann sér mig sem litlu syst- ur sína. Þá lét ég mömmu og pabba vita að við værum ekkert að fara að horfa á þættina saman,“ útskýrir Birna og hlær dillandi hlátri. „Ég er gríðarlega spennt fyrir að sjá þetta, enda búið að vera gaman og lærdómsríkt að vinna með þessu hæfileikaríka fólki,“ skýtur hún að í lokin, með troðfulla vasa af gullkornum frá meðleikurum sem kunna öll trixin í bókinni. gudrun@frettabladid.is „Það er mikið af nýjum andlitum í seríunni, leikarar sem ekki hafa kannski sést áður. Birna Rún er einstaklega hæfileikarík leikkona, og leikur lykilkarakter í þáttunum. Þá er töluvert um endurkomur, Dofri Hermannsson kemur með massa kombakk og svo verð ég að segja að Steinunn Ólína er senuþjófurinn. Þvílík frammi- staða. Við lögðum mikið upp úr því að það er nákvæmlega ekkert sexí eða kúl í gangi, þetta er bara eins óheillandi og raunveru- leikinn, og þannig verður það heillandi,“ segir Baldvin Z, leik- stjóri þáttanna. Ný aNdlit og ENduRkomuR Endurholdgun og merking lífsins samkvæmt Gralsboðskapnum Fyrirlestur á ensku: Christopher Vasey Þriðjudaginn 20. október – kl. 20:00 Aðgangseyrir: 500,- kr. Menningarhúsinu Gerðubergi, Gerðubergi 3–5, 111 Reykjavík Skipuleggjandi: GRAL-NORDEN www.is.gral-norden.net vasey-leuze@gral-norden.net Sími: 842 2552 2 1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r38 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 0 -0 D 2 0 1 6 C 0 -0 B E 4 1 6 C 0 -0 A A 8 1 6 C 0 -0 9 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.