Fréttablaðið - 16.10.2015, Qupperneq 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Hanna er sautján ára stelpa sem hefur átt ansi erfiða æsku og þurft að hafa mikið fyrir lífinu. Flosnar upp úr skóla, byrjar
að drekka þrettán ára og lendir í
slæmum félagsskap og neyslu. Við
gætum líklega ekki verið ólíkari,“
segir hin tuttugu og þriggja ára
Birna Rún Eiríksdóttir um persón-
una sem hún leikur í þriðju þáttaröð
Réttar.
Sjálf er Birna ráðsett móðir og
kærasta, á lokametrum leikaranáms
við Listaháskóla Íslands, og hefur
ekki svo mikið sem reykt sígarettu.
„Þetta var frekar fyndið, og mikið
hlegið að mér á setti þegar ég var að
reyna að læra að reykja,“ útskýrir
Birna og skellir upp úr. „Mér var
jafnframt kennt hvernig maður
setur fíkniefni í sprautu, hvað gerist
eftir að maður hefur tekið inn eitur-
lyf og allt þetta. Þetta hefur verið
lærdómsríkt ferli.“
Segist Birna hafa hellt sér út í
hlutverkið af réttum ástæðum
og það skipti heilmiklu máli. „Þú
hoppar ekkert út í nauðgunar-
og nektarsenur nema gera það af
réttum ástæðum. Ég fór í þetta með
hjartanu alla leið, og það skiptir mig
máli að segja þessar sögur. Ég þoli
ekki þessa fordóma sem eru í gangi
gagnvart svokölluðum Adidas-
krökkum, og hvernig fólk leyfir sér
að gera grín að þeim. Þetta gætu allt
eins verið börnin þín,“ segir Birna
alvarleg. „Við pössuðum okkur
mikið á að fara varlega í þetta, og
gættum þess að glamúr-væða ekki
þetta líf. Þannig værum við að van-
virða aðstæðurnar. Það eru krakkar
Ætlar ekki að horfa
með mömmu og pabba
Birna Rún Eiríksdóttir fer með lykilhlutverk í nýjustu þáttaröð
Réttar sem fer í loftið á sunnudag. „Ég fór í þetta með öllu hjartanu.“
Birna og Baldvin hafa áður unnið saman, en þá var hún 16 ára og fór með hlutverk í kvikmyndinni Óróa. Hún segist seint munu
slá hendinni á móti hlutverkum í myndum Baldvins, enda þyki henni óhemju vænt um leikstjórann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
í djúpri neyslu allt í kringum okkur,
þó við sjáum það kannski ekki.“
Kærasti Birnu vann um tíma með
börnum sem lent höfðu í klóm
fíknarinnar og hjálpaði hann henni
að miklu leyti að nálgast persónuna
sína. „Ég held að ef hann hefði ekki
verið búinn að undirbúa mig svo-
lítið með sögum, þá hefði ég átt
bágt með að trúa þessum sögum
sem verið er að vinna með,“ segir
Birna, en sögurnar sem unnið er
upp úr eru mikið til byggðar á veru-
leika íslenskra ungmenna í dag, sem
fólk gerir sér oft ekki grein fyrir að
er bláköld staðreynd.
„Dóttir mín þekkir mig ekki í
stiklunni. Ég passaði mig alltaf á
að þrífa mig í framan og taka mér
smá móment áður en ég svissaði
aftur yfir í minn veruleika, þar sem
mikið gat gengið á og hægara sagt
en gert að koma til baka sveitt og
útgrátin eftir nauðgunaratriði til
dæmis,“ útskýrir Birna aðspurð um
hvernig hafi verið að brúa bilið á
milli Hönnu og Birnu. Sjálf segist
hún ekki hafa séð þættina, en hafa
nú þegar varað fjölskyldumeðlimi
við. „Maður systur minnar hefur til
dæmis ákveðið að horfa bara alls
ekki, en hann sér mig sem litlu syst-
ur sína. Þá lét ég mömmu og pabba
vita að við værum ekkert að fara að
horfa á þættina saman,“ útskýrir
Birna og hlær dillandi hlátri. „Ég
er gríðarlega spennt fyrir að sjá
þetta, enda búið að vera gaman og
lærdómsríkt að vinna með þessu
hæfileikaríka fólki,“ skýtur hún
að í lokin, með troðfulla vasa af
gullkornum frá meðleikurum sem
kunna öll trixin í bókinni.
gudrun@frettabladid.is
„Það er mikið af nýjum andlitum
í seríunni, leikarar sem ekki hafa
kannski sést áður. Birna Rún er
einstaklega hæfileikarík leikkona,
og leikur lykilkarakter í þáttunum.
Þá er töluvert um endurkomur,
Dofri Hermannsson kemur með
massa kombakk og svo verð ég
að segja að Steinunn Ólína er
senuþjófurinn. Þvílík frammi-
staða. Við lögðum mikið upp úr
því að það er nákvæmlega ekkert
sexí eða kúl í gangi, þetta er bara
eins óheillandi og raunveru-
leikinn, og þannig verður það
heillandi,“ segir Baldvin Z, leik-
stjóri þáttanna.
Ný aNdlit og
ENduRkomuR
Endurholdgun og merking lífsins
samkvæmt Gralsboðskapnum
Fyrirlestur á ensku: Christopher Vasey
Þriðjudaginn 20. október – kl. 20:00 Aðgangseyrir: 500,- kr.
Menningarhúsinu Gerðubergi, Gerðubergi 3–5, 111 Reykjavík
Skipuleggjandi: GRAL-NORDEN
www.is.gral-norden.net
vasey-leuze@gral-norden.net
Sími: 842 2552
2
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r38 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
0
-0
D
2
0
1
6
C
0
-0
B
E
4
1
6
C
0
-0
A
A
8
1
6
C
0
-0
9
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K