Fréttablaðið - 16.10.2015, Síða 20
Í dag
19.15 Þór Þ. - Keflavík Þorlákshöfn
19.15 Njarðvík - Höttur Ljóngryfjan
19.00 Grude - Fram Framhús
19.30 Hapoel - ÍBV Eyjar
20.00 Haukar - Zomimak Ásvellir
19.00 Stjarnan - KR Sport HD
21.00 Frys.com-Open Golfstöðin
22.00 Körfuboltakvöld Sport HD
Það er 49 ára gamall
leikmaður inni á vellinum
að spila með Snæfelli. Þunnt
er það #dominos365 #korfu-
bolti
Hjörtur Davíðsson
@hjorturdavids
Stjarnan úr leik
Stjarnan komst ekki áfram í 16 liða
úrslit Meistaradeildar evrópu í
fótbolta í gær, en liðið tapaði fyrir
Zvezda frá rússlandi, 3-1, í seinni
leiknum ytra. Stjörnustúlkur
töpuðu einnig fyrri leiknum í
Garðabænum, 3-1, og
einvíginu því saman-
lagt 6-2. rússneska
liðið sá um að skora
öll mörkin í gær en
mark Stjörnunn-
ar var sjálfsmark
heimakvenna.
Þetta er annað árið
í röð sem Zvezda
slær Stjörnuna úr
keppni.
handbolti Það fara fram þrír evr-
ópuleikir á Íslandi í kvöld. kvenna-
lið Fram tekur á móti bosníska
liðinu Grude autoherc í eHF-bik-
arnum, karlalið ÍBV tekur á móti
ísraelska liðinu Hapoel ramat Gan
í Áskorendakeppni evrópu og loks
taka Íslandsmeistarar Hauka á móti
makedónska liðinu HC Zomimak í
eHF-bikarnum.
Þetta er gríðarsterkt lið. Það
þriðja besta í Makedóníu á eftir
Vardar og Metalurg. Haukar spila
báða leikina á heimavelli en seinni
leikurinn fer fram á morgun.
„Þeir eru ekki eins sterkir á úti-
velli og við erum mjög fegnir að
sleppa við leikinn í Makedóníu,“
segir Gunnar Magnússon, þjálfari
Hauka, en hann segir Hauka koma
betur úr því fjárhagslega að kaupa
leikinn en fara út.
Olís-deildin er samkvæmt styrk-
leikalista eHF í ruslflokki. Situr þar
í 36. sæti og aðeins fjórar deildir eru
taldar vera lakari. kýpur er meðal
annars talið vera með sterkari
deild. Makedónska deildin er í 8.
sæti þessa lista. kemur þar margt
til og meðal annars að íslensku liðin
eru ekki að nýta þátttökurétt sinn í
þessum keppnum.
„Mér finnst þetta vera slæm
þróun. Íslensku liðin verða að rífa
sig upp í þessum málum. Það eru
til að mynda aðeins tvö af fjórum
liðum sem unnu sér þátttökurétt í ár
að taka þátt,“ segir Gunnar ómyrkur
í máli en hann skilur ekki forgangs-
röðunina hjá sumum félögum.
„Vissulega er þetta kostnaðar-
samt en á móti kemur að sum lið
fara í æfingaferðir til Spánar fyrir
mót. Persónulega finnst mér evr-
ópukeppnin skila miklu meiru. Við
erum vonandi að búa til landsliðs-
menn og atvinnumenn. Við erum
alltaf að spila við sömu liðin hér
heima og nauðsynlegt að fá að spila
við önnur lið.”
Deildin hér heima hefur verið að
veikjast og ungir leikmenn tínast út
ár eftir ár. Fyrir ekki svo mörgum
árum voru þeir jafnvel lengur enda
voru þá Haukar til að mynda að taka
þátt í Meistaradeildinni og spila við
lið eins og Barcelona og Veszprém.
„Það verður að búa til umgjörð
fyrir þessa ungu drengi svo þeir vilji
vera lengur í íslenska boltanum. Þar
skiptir evrópukeppnin miklu máli.
Þessi staða er ekki góð.“ – hbg
Það er slæm þróun að
íslensk lið taki ekki þátt
Gunnar Magnússon er hér með strákana á bak við sig, klára í slaginn gegn make-
dónska liðinu. FRéttaBlaðið/VilHelM
frjálsar HM fatlaðra fer fram í
Doha í katar dagana 21.-31. október
og Ísland sendir tvo þátttakendur á
mótið. Þeir eru spjótkastarinn Helgi
Sveinsson og arnar Helgi lárusson
sem keppir í hjólastólaspretti.
Hinn 36 ára gamli Helgi ætlar
sér stóra hluti sem fyrr en hann er
ríkjandi heims- og evrópumeistari
í flokki F42. Í Doha verður í fyrsta
skipti keppt í sameiginlegum flokki
F42, 43 og 44.
„Ég verð kominn út ellefu dögum
fyrir keppni og fæ tíma til þess að
venjast hitanum sem betur fer,“
segir Helgi.
„Markmiðin mín hafa alltaf verið
fyrsta sætið og ég hef aldrei farið
leynt með það. Stefnan er sett á gull
og ekkert annað.“
Helgi tvíbætti heimsmetið í upp-
hafi sumars og er sífellt að bæta sig.
Hvað getur hann kastað langt?
„Ég er búinn að æfa mjög vel upp
á síðkastið. Spjótkast er aftur á móti
furðuleg íþrótt. Það er hægt að vera
í mjög góðri þjálfun en kasta illa.
Þetta snýst um að hitta inn á rétta
kastið. Ég tel mig eiga það kast inni
alveg klárlega. Bætingin er þarna
einhvers staðar ef ég næ að tengja
alla hlutina hjá mér.“
er Helgi bætti heimsmetið í maí
kastaði hann yfir 54 metra en um
mánuði síðar var hann búinn að
kasta 57,36 metra sem er núverandi
heimsmet. Hann á sér draum um að
kasta ákveðna vegalengd.
„Markmið mitt hefur alltaf verið
að kasta yfir 60 metra. Ég hef verið
lygilega nálægt því á æfingum. Ég
hef verið að kasta alveg á 60 metra
línuna þannig að ég veit vel að ég
get það. Þetta er þarna og ég verð
að hitta á það.“
Áfram verður keppt í þessum
sameiginlega flokki á Ólympíumóti
fatlaðra í ríó næsta sumar.
„Samkeppnin er núna mun
harðari en hún hefur nokkurn tíma
verið með þessari sameiningu.
Þessir strákar í hinum flokkunum
eru minna fatlaðir en ég og aflim-
aðir fyrir neðan hné. Þeir eru að
kasta miklu lengra en þeir sem eru í
mínum flokki og ég verð því bara að
æfa meira og vinna þá,“ segir Helgi.
„Þetta er allt annar leikur og þetta
er skemmtileg áskorun.“
henry@frettabladid.is
Stefnan er sett á gullverðlaun
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson ætlar sér stóra hluti á HM fatlaðra sem fer fram í Katar í lok mánaðarins.
Hann keppir í nýjum sameiginlegum flokki og samkeppnin verður því mun meiri en áður.
Helgi setur sér háleit markmið fyrir HM eins og venjulega. FRéttaBlaðið/SteFáN
dominosdeildin.is
SNÆFELL
Stefán Karel Torfason
HAUKAR
Helena Sverrisdóttir
GRINDAVÍK
Jóhann Árni
Ólafsson
kki.is
57,36 m
heimsmet helga
í spjótkasti
domino’s-deild karla
ÍR - tindastóll 90-103
Darrell lewis fór hamförum í Selja-
skóla og skoraði 37 stig fyrir tinda-
stól sem vann fyrsta leikinn undir
stjórn Finnans Pieti Poikola.
FSu - Grindavík 84-85
stigahæstir: Ari Gylfason 23, Chris Ander-
son 17 - Jón Axel Guðmundsson 16/10/10
- Jóhann Á. Ólafsson 13.
Ómar Sævarsson skoraði sigur-
körfuna fyrir Grindavík eftir tíundu
stoðsendingu jóns axels sem tryggði
um leið fyrstu þrennu vetrarins.
Haukar - Snæfell 86-60
stigahæstir: Stephen Madison 24, Finnur
Atli Magnússon 18 - Sherrod Wright 17,
Sigurður Þorvaldsson 15.
kári jónsson, skotbakvörður Hauka,
var grátlega nálægt þrennunni en
hann lauk leik með 14 stig, 11 frá-
köst og 8 stoðsendingar.
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 f Ö s t U d a g U r20 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Sport
olís-deild karla
Valur - Víkingur 29-26
Markahæstir: Orri Freyr Gíslason 7 - Karolis
Stropus 6.
nýr litháískur leikmaður nýliða
Víkings sýndi ágæta takta og skoraði
sex mörk í sínum fyrsta leik en enn
tapa Víkingar.
Grótta - ÍR 31-29
Markahæstir: Júlíus Þ. Stefánsson 9, Viggó
Kristjánsson 9 - Arnar Birkir Hálfdánsson 9.
nýliðar Gróttu ætla heldur betur
að bíta frá sér í vetur en þeir unnu
akureyri í síðustu umferð og tóku
annan leikinn í röð í gær.
Fram - afturelding 20-14
Markahæstir: Sigurður Örn Þorsteinsson 7 -
Birkir Benediktsson 5.
Varnarleikur Framara og markvarsla
kristófers Fannars Guðmundssonar
lögðu grunninn að öðrum sigri
Framliðsins í röð.
efri hlutinn
Valur 16
ÍBV 12
Haukar 12
Fram 10
UMFa 10
Neðri hlutinn
ÍR 8
Grótta 6
FH 6
Akureyri 4
Víkingur 2
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
0
-F
F
1
0
1
6
C
0
-F
D
D
4
1
6
C
0
-F
C
9
8
1
6
C
0
-F
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K