Fréttablaðið - 16.10.2015, Page 52
Aðeins örfáar sýningar:
Sun. 18. okt . kl . 13.00
Sun. 1. nóv. kl . 13.00
Sun. 15. nóv. kl . 13.00
Sun. 22. nóv. kl . 13.00
Barnasýning ársins
Sproti ársins
Gríman 2015
- DV - S.J. Fréttablaðið
Ég er ekki búin að gefa út lag síðan ég tók þátt í Eurovision og er búin að vera að hugsa mikið um hvað ég eigi að gera,“ segir María Ólafsdóttir
söngkona sem líkt og vel flestir vita tók
þátt í söngvakeppni Evrópskra sjón-
varpsstöðva fyrir Íslands hönd í maí
síðastliðnum.
„Valdi vinur minn samdi lagið og
leyfði mér að heyra. Ég féll strax fyrir
því og samdi texta við lagið,“ segir
María og bætir við: „Þetta er í raun-
inni fyrsti textinn sem ég skrifa sjálf,
ég hjálpaði aðeins til við textann við
Eurovision-lagið.“
Þrátt fyrir að hafa ekki áður reynt
fyrir sér sem textahöfundur segir
María textasmíðina hafa gengið frem-
ur átakalaust fyrir sig. „Ég heyrði demó
af laginu, hlustaði á það nokkrum
sinnum og svo kom bara textinn á einu
kvöldi,“ segir hún. „Ég held að flestir
geti tengt við textann að einhverju
leyti. Hann fjallar um það að líða illa en
hafa verið á stað þar sem manni líður
betur og vilja komast á hann aftur.“
María söng lagið Tek lítil skref, eða
Unbroken líkt og það útleggst á ensku
í Vín. Lagið vakti lukku hér á landi en
komst ekki upp úr undankeppninni
þar ytra.
María segir nýja lagið laust við
Eurovision-fílinginn. „Ég myndi segja
að þetta væri svolítið frábrugðið því
sem ég hef verið að gera en það er
samt alveg minn stíll,“ segir hún glöð í
bragði og bætir við: „Ég vil ekki festast
í Eurovision-Maríu.“ Og þegar hún er
spurð að því hvort hún stefni á að taka
þátt í Eurovision á næstunni er svarið
stutt og laggott: „Allavega ekki í ár, en
aldrei að segja aldrei.“
Hún segir stefnuna setta á að halda
áfram að senda frá sér nýtt efni og
undanfarið hafi hún verið að fá tilboð
frá lagahöfundum. „Ég ætla að halda
áfram. Það hefur líka verið áhugi að
utan frá erlendum lagahöfundum sem
eru búnir að vera að senda umboðs-
manninum mínum demó. Þannig að
ég er að skoða það og vonandi gerist
eitthvað í því.“
Annars er nóg um að vera hjá söng-
konunni þar sem líkt og hjá öðrum
í hennar geira er að fara í hönd einn
annasamasti tími ársins, sjálf jóla-
törnin og mun hún meðal annars að
syngja á Jólagestum Björgvins Hall-
dórssonar og á jólatónleikum Friðriks
Ómars auk þess sem hún bregður sér
reglulega í gervi Sollu Stirðu.
Og þrátt fyrir að hafa staðið á sviði
fyrir framan margar milljónir þá viður-
kennir hún að það sé ögn taugatrekkj-
andi að gefa út eigið efni í fyrsta sinn en
lagið verður frumflutt á Bylgjunni í dag
klukkan 14.00.
„Ég er mjög spennt en það er líka
smá hnútur í maganum af því að þetta
er fyrsta lagið, en maður verður nátt-
úrulega að byrja einhvers staðar.“
gydaloa@frettabladid.is
Tekur lítil skref í átt frá
Eurovision-Maríu
María Ólafsdóttir gefur út sitt fyrsta lag í dag. Söngkonan samdi textann við lagið Someday.
Thoughts are running through my mind
Its so hard to leave some things behind
What if and what will happen if I
don’t get this right
Trying hard to let things go
If I cry than my weakness starts to show
I can’t keep on living like this anymore
You always say
Keep your head up
Life is waiting
Show the world
Who you really are
Someday
I’ll find the way
Gotta hold on
Gotta be strong
To get back on the road
Where I used to be before
before
Thoughts are running through my mind
About the day you came into my life
You picked me up and said that every
thing
will be fine
Never wanna let you go
This feeling is real, aint growing old
I will never be alone,
on my own
You always say
Keep your head up
Life is waiting
Show the world
Who you really are
Someday
I’ll find the way
Gotta hold on
Gotta be strong
To get back on the road
Where I used to be before,
before
Someday
Ég hEyrði dEMó af
laginu, hluSTaði
á það nokkruM SinnuM og
Svo koM bara TExTinn á Einu
kvöldi.
María er bæði spennt
og stressuð fyrir því að
lagið komi út.
Mynd/Jónatan
„Markmið okkar í ár er að vera með
mun hærra hlutfall af erlendum
flytjendum,“ segir Björn Steinbekk,
skipuleggjandi tónlistarhátíðarinn-
ar Sónar Reykjavík sem fer fram 18.
til 20. febrúar á næsta ári.
Í gær voru fyrstu flytjendurnir sem
koma fram á hátíðinni tilkynntir.
Þeirra á meðal er Hudson Mohawke,
sem er á mála hjá G.O.O.D. Music,
plötufyrirtæki í eigu Kanye West,
og hefur meðal annars unnið með
Drake. Hudson Mohawke nýtur
mikilla vinsælda, meðal annars á
YouTube, þar sem lögin hans hafa
verið spiluð í tugi milljóna skipta.
„Hann kemur til okkar í samstarfi
við Red Bull Music Academy. Við
höfum reynt að fá hann til okkar
áður, við erum mjög hrifin af honum.
Red Bull er nú orðið einn af okkar
stærstu bakhjörlum. Við erum mjög
hrifnir af því að fá fyrirtækið inn. Red
Bull sér um eitt svið á hátíðinni, þar
sem tónlistarmenn sem fóru í Aka-
demíuna koma fram. Við ætlum að
vinna meira með þeim og tengja
saman erlenda og íslenska flytjendur
á smærri tónleikakvöldum.“
Þess má geta að Auðunn Lúth-
ersson, ungur tónlistarmaður, fékk
inngöngu í akademíu Red Bull á
dögunum og fer til Parísar í nóvem-
ber, þar sem hann mun koma fram
og sitja fyrirlestra hjá þekktum
frönskum listamönnum.
„Á næstu tveimur vikum munum
við tilkynna um fleiri listamenn sem
koma fram á Sónar. Við munum
breikka hópinn sem kemur fram,“
bætir Björn við.
Hátíðin fer fram í Hörpu, að
vanda, þar sem verða fimm svið.
Meðal þeirra sem var tilkynnt um
að kæmu fram á hátíðinni í gær eru
Úlfur Úlfur, Squarepusher, Holly
Herndon, Oneothrix Point Never
og Rødhåd. Auk þess koma Appa-
rat Organ Quartet, Sturla Atlas og
GANGLY fram í Hörpu í febrúar á
næsta ári. – kak
ánægð með að fá
hudson Mohawke
Björn Steinbekk heldur Sónar.
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r36 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Lífið
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
0
-9
2
7
0
1
6
C
0
-9
1
3
4
1
6
C
0
-8
F
F
8
1
6
C
0
-8
E
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K