Breiðholtsblaðið - 01.07.2006, Síða 13
ÍBreiðholtshverfunum er nokk-ur hluti íbúa af erlendu bergibrotinn. Hér er um innflytjend-
ur að ræða sem flust hafa til
landsins ýmist vegna atvinnu,
sem makar Íslendinga eða af öðr-
um ástæðum. Hlutfall innflytj-
enda hér er í sjálfu sér ekkert
hærra en víða annars staðar í
borginni en þó er fjöldi þeirra
hærri í einstökum götum hverf-
anna. Ýmislegt hefur verið gert,
og er reyndar í gangi, af ýmsum
aðilum og stofnunum til að auð-
velda innflytjendum að aðlagast
hinu nýja samfélagi sem þeir hafa
kosið að búa í. Það þarf líka að
uppfræða og kynna Íslendingum
(innfæddum) að umgangast inn-
flytjendur af virðingu og jafnrétti.
Og alltaf má gera betur í þessu
efni.
Af reynslu annarra þjóða má læra
að oft hafa orðið hnökrar í sam-
skiptum innflytjenda og þeirra
innfæddu. Oftast nær verða þess-
ir árekstrar vegna tortryggni og
jafnvel fáfræði og vanþekkingar
frá báðum hliðum. Með skipu-
lögðum og samhæfðum aðgerð-
um má í nær öllum tilfellum forð-
ast þá vankanta sem upp koma
og búa okkur samfélag þar sem
allir njóta sannmælis og réttlætis
án kynferðis, uppruna, trúar-
bragða, menningar eða hvers
þess annars sem kann að að-
greina okkur.
Í Fella- og Hólakirkju hefst nú í
haust tilraunaverkefni til að
reyna að ná til innflytjenda og þá
sérstaklega þeirra sem búa hér í
hverfunum. Verkefnið hefur verið
kallað „Kirkjan fyrir alla“. Mark-
mið þess er að gefa innflytjend-
um tækifæri til að koma saman og
blanda geði við okkur innfædda.
Fella- og Hólakirkja vill stuðla að
því að innflytjendur finni í kirkj-
unni uppbyggilegan stað og gef-
andi samfélag fólks sem er tilbúið
að kynnast innflytjendum, að-
stoða þá eftir mætti að aðlagast
samfélaginu. Einnig að við, inn-
fæddir, fáum tækifæri til að kynn-
ast innflytjendum, löndum þeirra,
sögu og menningu svo það auð-
veldi okkur að stofna til vináttu
og gagnkvæms skilnings.
Hér í Fella- og Hólakirkju höfum
við verið að undirbúa þetta verk-
efni í góðri samvinnu við stofnan-
ir og einstaklinga sem hafa
reynslu á þessu sviði og einnig
við einstaklinga sem eru innflytj-
endur og hafa búið hér um lengri
eða skemmri tíma. Búið er að
móta ýmis verkefni sem kynnt
verða nánar síðar. Þau miða öll
að því að opna kirkjuna fyrir inn-
flytjendur og ekki síður til að
kalla á þá innfædda sem vilja
koma og vera með í þessu starfi.
Ljóst er að þetta verkefni stendur
og fellur með því að bæði innflytj-
endur og innfæddir taki höndum
saman og vinni með okkur að
þessu verkefni. Fjölmargir aðilar
hafa heitið okkur liðsinni.
Kirkjan er ekki bara hús. Hún er
samfélag fólks sem vill í trú og
kærleika vinna að jákvæðu og
uppbyggilegu starfi til að bæta
samtíma sinn, samskipti og vin-
áttu þeirra sem hana sækja og
sinna. Hún er því að mörgu leyti
kjörinn vettvangur til þessa verk-
efnis og hefur biskup Íslands og
kirkjuráð þjóðkirkjunnar hvatt og
stutt Fella- og Hólakirkju til að
takast á hendur þetta verkefni.
Þann 23. september n.k. hefst
verkefnið formlega með málþingi
í safnaðarheimili kirkjunnar. Mál-
þingið sem nefnt er „Öll eitt-en
ekki eins“ hefst kl. 10 og stendur
til kl. 13. Einstaklingar, innfæddir
og innflytjendur munu flytja stutt
ávörp, borgarstjóri og borgarfull-
trúar munu ávarpa málþingið og
taka þátt í umræðum ásamt öðr-
um. Öllum er heimil þátttaka og
er aðgangur ókeypis.
Ég vil hvetja sem flesta til þátt-
töku og kynna þetta fyrir þeim
innflytjendum sem þeir þekkja og
eru nágrannar. Vinnum þetta
verk saman til að gera okkar góða
hverfi enn betra og bæta ímynd
þess enn betur en áður.
JÚLÍ 2006 13Breiðholtsblaðið
Auglýsingasími: 511 1188 & 895 8298
TI L UMHUGSUNAR
Eftir sr. Svavar Stefánsson
Innflytjendur í Breiðholti
Grill og ostur
– ljúffengur kostur!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
Ljósmyndasam-
keppni um
betra Breiðholt
Þjónustumiðstöð Breiðholts
efnir til ljósmyndasamkeppni
meðal íbúa í Breiðholti í
tengslum við fegrunarátak
Reykjavíkur sem verður í
Breiðholti 22. júlí. Þema
keppninnar er mannlíf og um-
hverfi í Breiðholtinu og slag-
orð er ,,BETRA BREIÐHOLT„
Hver þátttakandi má senda
inn þrjár myndir á stafrænu
formi eða á pappír. Frestur til
að skila inn myndum er til 15.
ágúst n.k. Stafrænar myndir
skal senda á póstfangið: betra-
breidholt@reykjavik.is. Prent-
aðar myndir skal senda í pósti
eða skila í Þjónustumiðstöð
Breiðholts, Álfabakka 12, 109
Reykjavík, merktar ,,Betra
Breiðholt“. Að keppninni lok-
inni verða bestu myndirnar
sýndar á ljósmyndasýningu í
göngugötunni í Mjódd og birtar
í Breiðholtsblaðinu. Vegleg
verðlaun frá Myndvali í Mjódd
eru í boði fyrir fimm bestu
myndirnar. Breiðholtsbúar eru
hvattir til að taka þátt í sam-
keppninni og festa á mynd
mannlíf og umhverfi í sínu frá-
bæra hverfi. Þess má geta að
kynningarbæklingi um ljós-
myndasamkeppnina var dreift á
öll heimili í Breiðholti um síð-
ustu helgi.