Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Qupperneq 1
Þjónustumiðstöð Breiðholts í
Mjóddinni opnar 1. október og
þannig verður dagurinn tvíheilag-
ur ef svo má segja, því sama dag
fer fram hin mikla Breiðholtshátíð.
Með tilkomu þjónustumiðstöðvar
er blásið til aukins íbúalýðræðis
og ýmis þjónusta færist nær fólk-
inu. Ragnar S. Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar sagði í
samtali við Breiðholtsblaðið að
hann og hans starfslið, um 30
manns, voni að Breiðholtsbúar
notfæri sér þá þjónustu sem hér
verður í boði en hún snýr að
fjölmörgum þáttum hins daglega
lífs hjá almenningi.
Ragnar sagðist afar ánægður
með starfsmenn sína, þar væri
samvalinn hópur fólks sem vildi
láta gott af sér leiða í hverfinu.
„Þetta verður mikill hátíðisdagur í
göngugötunni hérna í Mjóddinni
og við vonum að íbúar taki virkan
þátt í hátðinni,“ sagði Ragnar í
stuttu spjalli.
Á þessum tímamótum verða
einnig breytingar hjá lögreglunni
í Breiðholti. Lögreglan fær
húsnæði á sömu hæð og þjón-
ustumiðstöðin og er því að flytja
niður í Mjóddina úr Fellunum.
8. tbl. 12. árg.
SEPTEMBER 2005Dreift ókeypis í öll hús í Breiðholtinu
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
71
59
0
1/
20
05
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
71
59
0
1/
20
05
■ bls. 4-5
Gísli Marteinn
Baldursson
Opið virka daga 9-18:30 og laugardaga 10-14
Mjódd
Fólk hvatt til að
nýta sér þjónustuna
Þjónustumiðstöðin tekur til starfa:
BREIÐHOLTSDAGURINN er
að öðlast sess sem fastur liður í
sumarlokin. Hann verður hald-
inn hátíðlegur í þriðja skipti
laugardaginn 1. október. Dagur-
inn hefur heppnast með miklum
ágætum í tvö fyrstu skiptin og
ekki annað að ætla en að svo
verði einnig nú.
Þátttaka almennings, félaga,
stofnana og fyrirtækja hefur
verið til fyrirmyndar. Menn
standa saman í Breiðholti og
skemmta sér saman á þessum
hátíðisdegi hverfisins. Undir-
búningur hefur staðið yfir að
undanförnu og ljóst að margt
verður um að vera á Breiðholts-
deginum, sem ÍTR í Miðbergi
annast um.
Breiðholtsblaðinu fylgir sér-
blað um Breiðholtsdaginn. Þar
má lesa um hátíðahöldin. Góða
skemmtun, Breiðhyltingar!!!
Hátíð í Breiðholti 1. október
Breiðholtsdagurinn haldinn
hátíðlegur á laugardaginn
SANNIR VINIR
Ragnar S. Þorsteinsson, Þráinn Hafsteinsson og
Ricardo M. Villalobo.