Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 6

Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 6
Hjá verslunum Bónus, sem eru orðnar 23 að tölu, fara fram 7,8 milljónir afgreiðslna á ári, - og það merkilega er að sífelld aukn- ing á sér stað í fyrirtækinu. Á síðasta ári jukust afgreiðslur, og þar með velta fyrirtækisins, um fimmtung. Það er ekki lítið. Bón- us hefur nú opnað verslun í Lóu- hólum, í Hólagarði þar sem Nóa- tún hefur verið að undanförnu. Breiðholtsblaðið kom við hjá Jó- hannesi Jónssyni kaupmanni sem stofnaði Bónus fyrir 16 árum síðan. Hann segir Breið- hyltinga ævinlega hafa verið meðal bestu viðskiptavinanna. „Við fögnum því að geta nú þjónað Breiðhyltingum enn bet- ur, við erum fyrir með tvær búðir í Breiðholti. Búðin í Hólagarði er af ákjósanlegri stærð, 1.200 fer- metrar. Vonandi hugnast við- skiptavinum þessi verslun vel. Við lofum því að vera sem fyrr með lægsta vöruverðið og ágæta þjónustu,“ sagði Jóhannes. -Ferðu ekki að hætta að opna búðir, Jóhannes? „Nei, ég er ekki að hætta. Mark- aðurinn kallar á fleiri búðir, hann kemur til mín, og markaðurinn hefur aðra húsbændur en þá sem reka fyrirtækin. Við í Bónus höf- um reynt að standa okkur frá fyrsta degi, reynt að þjóna mark- aðnum, fólkinu sem til okkar leit- ar. Við vöndum okkur við að ver- sla. Viðskiptavinir kvarta ekki, þvert á móti koma þeir til okkar að eigin frumkvæði, þeir geta verslað annars staðar og hafa frjálst val.“ -Er ekki frekar treg samkeppni á þessu sviði? „Nei, það er öðru nær, það er hörkusamkeppni í gangi, hvergi annað eins. Það hefur ríkt verð- stríð öll þessi 16 ár sem ég hef rekið Bónus. En það skemmtilega sem hefur gerst á þessum tíma er að í engri grein hefur náðst annar eins árangur og í sam- bandi við matvöruverð. Fyrir 16 árum voru þessi útgjöld, til mat- vara og hreinlætisvara, 24,5% af ráðstöfunarfé fjölskyldna en hef- ur undanfarið verið þetta 13 til 14%. Fólk notar þá það fé sem sparast til að kaupa eitthvað skemmtilegt, gera eitthvað áhugavert eitthvað annað en að eyða fénu í matbjörgina.“ -Er hægt að lækka enn meira matvöruverð á Íslandi? „Það er hægt, sérstaklega þegar innflutningur á erlendum land- búnaðarvörum verður gefinn frjálst. Okkar landbúnaðarvörur, sérstaklega mjólkurvörur, eru góðar, fólk aðhyllist íslenskar landbúnaðarvörur. Erlenda var- an verður þá viðmiðunarverð til lækkunar. Opinberar álögur eru á matvælum og lækkun á þeim gæti auðvitað lækkað matvöruverðið.“ -Einhverjar nýjungar á döfinni hjá Bónusi? „Við erum alltaf á vaktinni gagnvart öllum nýjungum sem koma að gagni við að lækka vöru- verð og mæta viðskiptavinunum. Það tel ég vera ögrunina við að vera kaupmaður.“ -Hvernig hefur þér liðið sem kaupmaður með svo vinsælt og vaxandi fyrirtæki? „Dásamlega, það er ekki neitt annað orð yfir það.“ -En þú og Jón Ásgeir hafið kannski fengið ykkar skerf af öfund? „Jú, það er rétt, en það er bara fylgifiskur velgengninnar. Menn reyna að finna ótrúlegustu skýr- inga á því hvers vegna einhverj- um vegnar betur en öðrum. Fyrir- tækið okkar hefur alltaf verið heiðarlegt og það hefur staðið í skilum. Við höfum hagnast ágæt- lega. Mottóið okkar var og er að reka fyrirtækið með gróða en ekki græðgi. En það hefur nú ekki fall- ið öllum jafn vel í geð,“ SEPTEMBER 20056 Breiðholtsblaðið Sundkappinn og rithöfundur- inn Benedikt S. Lafleur kom í heimsókn til Félagsstarfsins í Gerðubergi á dögunum, nýbú- inn af afreka miklu. Hann synti yfir 31 fjörð Vestfjarða á nokkrum dögum. Benedikt var vel fagnað af fjölmenni sem kom saman þennan dag. Benedikt sagði frá sundinu og var hreint ekki að miklast af því, en sagði að fyrir honum hefði vakað að kynna almenningi nátt- úruperluna Vestfirði, einnig ætti sundið að vekja fólk til umhugs- unar um heilbrigða lífshætti. Með Benedikt í för var Jón Guðbergsson sem var hans hægri hönd í framkvæmd sundsins. Jón Guðbergsson Guðrún Jónsdóttir og Benedikt sem heldur á gjöf frá Gerðubergi. Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus í viðtali Breiðholtsblaðsins: JÓHANNES JÓNSSON kaupmaður í Bónus segir að viðtökurnar í nýju búðinni hafi farið fram út björtustu vonum. Nýja Bónusbúðin í Hólagarði. Gróði en ekki græði - 23. Bónusbúðin opnuð í Hólagarði Sundkappi í heimsókn

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.