Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Page 4
SEPTEMBER 20054 Breiðholtsblaðið
V I Ð T A L I Ð
Gísli Marteinn Baldursson
er 33 ára gamall Breiðholts-
búi, hann er rótgróinn hér
enda þótt hann sé nú fluttur
niður í borgina, orðinn
Vesturbæingur og KR-ingur
eins og dæturnar tvær. En í
hartnær aldarfjórðung bjó
hann í Breiðholtshálend-
inu á hæsta punkti Reykja-
víkur. Fjölskyldan bjó í
blokkinni að Álftahólum 2
frá fæðingu Gísla Marteins
til átta ára aldurs, og síðar í
Hraunbergi 21 þar sem for-
eldrar þeirra Stefaníu syst-
ur Gísla, þau Elísabet Jóna
Sveinbjörnsdóttir leikskóla-
kennari og Baldur Gíslason
kennari og skólameistari
við Iðnskólann í Reykjavík,
reistu fjölskyldunni hús.
Gleymda hverfið
-Þú vilt verða borgarstjóri Gísli
Marteinn, strákur úr Breiðholtinu
fyrir aðeins nokkrum árum?
„Þetta snýst í sjálfu sér ekki um
það að ég vilji verða borgarstjóri.
Aðalatriðið er að koma Sjálfstæð-
isflokknum að við stjórn borgar-
innar. Ég vil leysa þau verkefni
sem bíða úrlausnar, vannýtt tæki-
færi bíða út um alla þessa borg.
Mér finnst við geta gert betur en
við erum að gera, jafnvel þótt við
sjáum það sem R-listanum hefur
lánast að gera vel. Við eigum til
dæmis ekki að sætta okkur við
það að gæsla fyrir börnin okkar
og skólarnir séu bara á hálfum
hraða á haustin, haust eftir haust.
Ég skil heldur ekki af hverju við
sættum okkur við það að opnu
svæðin okkar í borginni, séu lak-
ari en í nágrannalöndunum, í
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi eða
í öðrum bæjum og borgum. Ég
var á fundi hérna í Breiðholtinu
um daginn og góður Breiðhylting-
ur sýndi fundarmönnum myndir
af opnu svæðunum hérna. Þar
sást nokkuð sem mér fannst leið-
inlegt að sjá. Lélegir fótboltavell-
ir, körfuboltavellir, róló, - víða
eru leikföng ryðguð í sundur eða
brotin. Þetta eigum við ekki að
láta bjóða okkur. Þegar umhverf-
ið er fyrsta flokks, þá ganga börn
og unglingar líka betur um en
ella. Opin svæði hérna í Breið-
holtinu, þessu yndislega barn-
væna hverfi, eru borgaryfirvöld-
um ekki til sóma og sýna að þau
horfa annað en hingað,“ sagði
Gísli Marteinn. „Við erum ein rík-
asta þjóð heims, erlendir fjöl-
miðlamenn segja frá efna-
hagsundrinu Íslandi. Hvers vegna
getur slík þjóð ekki haft hlutina í
lagi? Við þurfum að setja okkur
markmið. Hér Í Breiðholtinu þarf
að efla stuðning við íþróttafélög-
in, bókasöfnin á að efla, en ekki
draga úr þjónustu eins og gert
var í Seljasafni, reyndar átti að
loka því safni, en okkur sjálfstæð-
ismönnum tókst að koma í veg
fyrir það. Hér erum við í Gerðu-
bergi, fínni menningarmiðstöð
sem mætti nýta enn betur. Hér
fyrir utan er eitthvað torg sem
einhver stjórnmálamaður lét
gera, en er fáum til gagns. Hvað
skyldi vera langt síðan borgar-
stjórarnir komu hingað í Breið-
holtið og töluðu við fólkið,“ spyr
Gíslil Marteinn.
Reykjavík er
skemmtileg borg
-Þú getur trútt um talað, sleist
barnsskónum á þessum slóðum í
Breiðholtinu. Sumum finnst þú
reyndar allt of ungur, of barnaleg-
ur, og aðrir telja að þú hlægir of
mikið af borgarstjóraefni að vera.
Er vont að hlæja?
„Ég er 33 ára og mér finnst ekk-
ert að því að menn á þeim aldri
axli ábyrgð. Ég heyrði það um
daginn að akkúrat helmingur
borgarbúa sé eldri en ég og hinn
helmingurinn yngri. Ég upplifi
mig því ekki á einhverjum
stórfurðulegum aldri. Sumir eru
fastir í því að pólitík eigi helst að
vera leiðinlegt karp og að stjórn-
málamenn megi ekki slá á létta
strengi. Ég er á öðru máli og tek
ekki þátt í svona löguðu. Borgar-
málin varða okkur miklu og þau
eru nánast fyrir utan gluggann hjá
okkur. Þau eiga að vera skemmti-
leg, þau eiga snúast um úrlausn-
arefni, um góðar hugmyndir og
jákvæðni. Þau eiga að snúast um
það hvernig við gerum samfélag-
ið í kringum okkur betra. Og auð-
vitað vita allir að það er hollt að
hlæja.“
-Reykjavík er kannski leiðinleg
borg?
„Alls ekki, mér finnst Reykjavík
þvert á móti mjög skemmtileg
borg, en hún gæti verið ennþá
skemmtilegri.“
-Kannski vantar mannfjöldann í
borgina?
„Það horfir til betri vegar og
þess vegna vil ég ekki byggja við
Úlfarsfell, ég vil fresta því og hlúa
til dæmis að þessu góða hverfi
hér. Það er ástæðulaust að ráðast
í uppbyggingu á 20 þúsund
manna hverfi við hliðina, þegar
við erum ekki enn búin að gera
þetta hverfi eins og við viljum
hafa það. Mér finnst oft eins og
hverfin austan Elliðaáa séu
gleymd, Breiðholt, Árbær, Grafar-
holt og Grafarvogur. Þjónustan
sem er hér í kring er lítið í blöð-
um og fréttum. En þegar maður
fer og skoðar svæðið, þá sér mað-
ur þetta sem ég lýsti áðan, van-
nýtt tækifæri í yndislegu hverfi.
Eru Breiðhyltingar annars
flokks?
Það á ekki að vera svoleiðis því
óvíða er betra að búa og ala upp
börn en einmitt hér.“
Gísli Marteinn segist sjá fyrir
sér þéttingu í borgarlandinu.
Hann sér líka fyrir sér að byggð
komi í Geldinganesi sem verði í
10 mínútna fjarlægð frá miðborg-
inni þegar Sundabrautin kemur.
Og hann tók af skarið nýlega í
flugvallarmálinu, hann vill Reykja-
víkurflugvöll burt.
Minningar úr Breiðholti
„Minn heimur var hér. Manni
þótti vegalendir miklar á þessum
slóðum þar sem við erum núna í
Gerðuberginu. Þegar ég var sjö
ára voru Bergin að byggjast upp,
Hólarnir komu fyrr. Ég man að ég
var gerður út með nesti og nýja
skó í bakpoka til að fara úr Álfta-
hólum yfir í Hraunbergið þar sem
pabbi var að byggja yfir okkur.
Hann er laghentur maður, lærði
fyrst rafvirkjun, og gerði þetta
með hjálp smiða sem voru að
kenna í Fjölbrautaskólanum.
Þetta fannst sjö ára strák mikil
svaðilför, enda yfir óbyggð svæði
að fara, móa og mela. Fjölbrauta-
skólinn einn var þá risinn á þessu
svæði,“ rifjar Gísli Marteinn upp.
Hann bjó á þessum árum í næst-
neðsta húsinu við Elliðaárdalinn
sem var kjörið leiksvæði fyrir
ungt fólk sem fann hreiður þar á
vorin og tíndi ber á haustin.
„Núna er uppvakinn áhugi
menntamanna á Breiðholti og á
dögunum var haldin þessi mikla
og fræðilega sýning á Breiðholti
og þá vorum við kallaðir til sem
hér erum uppaldir. Mér er minn-
isstætt viðtal við skelegga og
góða konu sem sagði að þegar
hún greindi fólki frá því að hún
væri að flytja í Breiðholtið á sjö-
unda áratugnum, þá var horft á
hana líkt og hún hefði verið að
missa einhvern nákominn sér.
Fólk samhryggðist henni að flytja
á þennan hræðilega stað. Þetta
vonda álit sumra á Breiðholtinu
fór fram hjá okkur krökkunum.
Hér var mikið krakkager og eng-
inn fullorðinn var að stjórna
þessu. Við vorum úti við í leikjum
þangað til foreldrarnir komu út á
svalir og kölluðu okkur inn. Þetta
voru áhyggjulaus ár og minningin
er ljúf. Mig minnir að hér hafi
alltaf verið gott veður,“ segir Gísli
Marteinn. Hann segir að hálf-
köruð hús í hverfinu hafi verið að-
laðandi í augum kraftmikilla
krakka, nánast eins og kastalar og
virki.
Liljuskóli góður grunnur
Liljuskóli var fyrsti skóli Gísla
Marteins Baldurssonar og fleiri
barna á hans reki, skólann rak
Lilja Torp. „Þetta var merkilegur
skóli, hún var einskonar dag-
mamma hún Lilja en var mennt-
aður leikskólakennari. Hún var
með okkur í myndlist og ýmsu
öðru inni í bílskúr hjá sér. Síðan
fór ég í Hólaborg, á spóadeildina
sem var elsta deildin þar og Lilja
var þá komin sem forstöðumaður
á þessum nýja leikskóla,“ segir
Gísli. Hann segir að Hólahverfið
hafi verið laust við stéttaskipt-
ingu. „Sum okkar komu úr litlum
blokkaríbúðum, aðrir úr risastór-
um einbýlishúsum. En aldrei
varð maður var við metnað varð-
andi klæðaburð eða annað, það
var engin stéttaskipting í gangi.
Margir vinir mínir bjuggu í því
sem var kallað verkamannabú-
staðir sem þótti ekkert skammar-
yrði þá, hverfið einfaldlega bland-
aðist. Mér þótti gaman af því
þegar ég tilkynnti um framboð
mitt í Iðnó um daginn að þá birt-
ist sægur af gömlum félögum úr
Breiðholti,“ segir Gísli Marteinn.
Meðal bestu félaga hans voru
m.a. Sigurður Kári Kristjánsson,
Rúnar Freyr og fleiri. „Þessi bönd
sem hérna urðu til trosna ekki
svo auðveldlega,“ sagði Gísli
Marteinn.
Skólaganga í grunnskólakerfinu
hófst síðan í Hólabrekkuskóla við
sex ára aldurinn og þar var Gísli
Marteinn kátur og skemmtilegur
skólasveinn sem kennarar minn-
ast enn með hlýju.
Hótel Mamma
„Ég bjó í foreldrahúsum til 22
ára aldurs, ég bjó hér meðan ég
var að byrja í háskólanum, þetta
var kannski svona „hótel
mömmu“ mál. Ég stundaði knatt-
spyrnu í Leikni og hef alltaf taug-
ar til félagsins. Nú eru þeir komn-
ir í 1. deildina og ég vona að þeim
gangi þar allt í haginn. Illu heilli
var ég ekki í bænum um daginn
þegar Leiknir fékk KR-liðið í heim-
sókn í bikarkeppninni, KR-útvarp-
Sækist eftir efsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kosningum til borgarstjórnar í maí á
næsta ári, - GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
Borgarstjóraefnið uppalið
í barn vænu Breiðholtinu
FALLHLÍFALEIKUR - Fallhlíf er nokkuð sem ég þarf ekki í þessari baráttu, sem framundan er, sagði Gísli
Marteinn og hló dátt sínum alþekkta og smitandi hlátri. Hann var alveg til í að taka þátt í leiknum með
börnunum úr frístundaheimilum Breiðholts, kannaðist vel við þennan Fallhlífaleik, sem er vinsæll.
GÓÐRA VINA FUNDUR - Guðlaug Sigurbjörnsdóttir á skrifstofunni í
Gerðubergi og Kristín Sigurðardóttir einn gestanna í kaffistofu
Gerðubergs. Þær þekktu Gísla Martein um leið og hann gekk í salinn
og fögnuðu honum vel. Hvarvetna þar sem blaðamaður og Gísli
Marteinn fóru um Breiðholtið þekktu ungir sem gamlir Gísla.