Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Side 5
ið bað mig að lýsa þeim leik þar
sem ég væri KR-ingur og fyrrum
Leiknismaður. Af því gat nú ekki
orðið,“ segir Gísli Marteinn. Hann
segir að Leiknir hafi verið rekinn
af nokkrum vanefnum og stærri
félög sóst eftir efnilegum strákum
með tilboðum, „strætómiðum og
takkaskóm“. Hann segir að for-
ráðamenn Fram hafi farið í bekk-
ina í Hólabrekkuskóla og fiskað
þar. Gísli Marteinn gafst upp á
strætóferðunum niður í Safmýri
og koma aftur til Leiknis sem
sókndjarfur tengiliður.
Heilsuspillandi
Háskólapólitík
En hvenær hófust afskipi af
pólitík?
„Maður fór að finna fyrir póli-
tíkinni í Versló. En ég var mikið í
félagslífinu og formaður nem-
endafélagsins og gerði í því að
halda pólitíkinni utan við, vildi
ekkI vera fulltrúi bara sumra í
nemendafélaginu. Á síðasta ári í
skólanum kom Hannes Hólm-
steinn og kenndi okkur stjórn-
málafræði. Hann hafði mikil áhrif
á mig eins og fleiri. Í Háskólanum
fór ég inn í stjórn Vöku á öðru ári
mínu í háskólanum. Ég var alltaf
virkur í SUS og Heimdalli, mætti á
fundi og tók þátt í öðru starfi, en
var aldrei í forystu þar, Vaka tók
mikinn tíma og þar varð ég for-
maður,“ segir Gísli Marteinn.
Átökin um völd í háskólanum
voru harkaleg. Um Gísla Martein
myndaðist þéttur hópur sem enn
heldur saman og hittist reglulega.
En átökin kostuðu sitt. „Satt best
að segja gerðist það í Vöku að ég
keyrði mig gjörsamlega út. Ég
gleymdi sjálfum mér, gleymdi að
borða og ég gleymdi að sofa og
var orðinn hálf heilsulaus. Þetta
var bara svo skemmtilegt, strákar
og stelpur, mikið fjör og kraftur í
starfinu. Ég var farinn að sofa
þetta þrjá tíma á nóttu sem er
kannski í lagi á einni vertíð, en
þetta voru nokkrar vertíðar í röð.
Ég var ekki bara búinn með bens-
íngeyminn, heldur var ég langt
kominn með varatankinn líka. Ég
var sífellt með hálsbólgu og alls
konar uppákomur. Við Vala,
kærastan mín, ákváðum um að
sækja saman um Erasmusstyrk
og fengum hann til að fara í nám í
Þýskalandi. Áður fórum við í hálft
ár og unnum sem flugþjónar hjá
Atlanta í pílagrímsflutningunum.
Okkur langaði til að safna okkur
fyrir íbúð. Þarna vorum við í hálft
ár, alveg þangað til kom að nám-
inu í Þýskalandi.
Gísli Marteinn segir að dvölin í
Saudi Arabíu hafi verið mikið æv-
intýri. „Þarna bjuggum við á þess-
um skrítna stað sem Saudi Arabía
er. Og við vorum að fljúga víða
um, vorum kannski viku í Bang-
kok, lengi í Kaíró og víðar í Aust-
urlöndum. Það var einstakt að fá
að kynnast þessum heimshluta,
sérstaklega Arabaheiminum.
Þetta var mjög gagnlegt og við
öðluðumst meiri þekkingu á kost-
um og göllum þessarar menning-
ar. Við unnum með fólki frá Asíu
og kynntumst hugarheimi þess
fólks. „Þegar við lentum með píla-
grímana í Medína, þeirri helgu
borg, grét fólkið yfir að vera kom-
ið. Það gerist í þessu pílagríms-
flugi að margir deyja. Fólkið hefur
sumt bókstaflega haldið í sér líf-
tórunni með voninni um að kom-
ast til Mekka eða Medína Það er
ein af frumskyldum mú-
hammeðstrúarmanna að komast
til heilögu borganna. Við vorum
undir það búin að bregðast við
því að fólk kynni að deyja,“ segir
Gísli Marteinn. „Þetta voru nú
engin hágæða þjónustuflug. Sums
staðar, til dæmis í Nígeríu, koma
menn jafnvel með búfénað um
borð, lifandi hænur sem nesti til
fararinnar.“
Fastráðinn á Sjónvarpinu
Hrafn Gunnlaugsson gerðist ör-
lagavaldur í lífi Gísla Marteins.
Hann starfaði sem dagskrárstjóri
Sjónvarpsins og auglýsti eftir
ungu fólki og Gísli byrjaði með
þátt um hugðarefni ungs fólks, þá
rétt orðinn tvítugur. Þetta leiddi
til sunnudagsþáttar í beinni út-
sendingu með Magnúsi Bjarn-
freðssyni og Salvöru Nordal.
„Eftir að hafa verið í pílagríms-
fluginu og síðar í Þýskalandi kom-
um við Vala heim. Ég fór til Ólafs
Sigurðssonar á fréttastofu sjón-
varpsins og sagðist hafa áhuga á
að fjalla í sjónvarpinu um þýsk
stjórnmál. Ég var að verða búinn
með námið mitt og var tilbúinn til
að fresta námslokunum. Það fór
nú svo að ég var ráðinn á Sjón-
varpið og hef verið þar nánast
síðan. Ég var fastráðinn á frétta-
stofunni og kunni því afar vel“.
Um áramót 2000 var unnið að
því að setja á fót þáttinn Kastljós
og tók Gísli virkan þátt í því.
„Meiningin var að fá Egil Helga-
son sem stjórnanda. Á síðustu
stundu segir Egill nei takk! Þá
gerðist það á fundi okkar félag-
anna að þau segjast ekki leita
lengra, heldur sé það einróma
vilji þeirra að fá mig í þetta. Ég
vildi það hreint ekki í byrjun, en
eftir nokkra umhugsun ákvað ég
að vera með Rögnu Söru Jóns-
dóttur vinkonu minni í þættinum,
og ég sé ekki eftir því. Sviðsmynd-
in var smíðuð á mettíma en þátt-
urinn að öðru leyti lítt mótaður.
Fyrsta Kastljósið fór í loftið 3. jan-
úar 2000, eina sem var ákveðið
fyrirfram var nafnið,“ segir Gísli
Marteinn.
Stjórnmál og sjónvarps-
mennska
-En stjórnmálaþátttakan kemur
upp úr þessu?
„Í mars 2002 hafði Björn Bjarna-
son samband við mig. Hann hafði
ákveðið að gefa kost á sér í efsta
sæti Sjálfstæðisflokksins það vor.
Hann vildi gjarnan að ég yrði
með. Ég ákvað að stökkva á þetta
enda alltaf haft mikinn áhuga á
borgarmálum og langaði til að
vera með. Ég hef líka alltaf virt
Björn sem vandaðan stjórnmála-
mann, ég var viss um að hann
væri það sem borgin þyrfti, góður
rekstrarmaður sem setti sér
markmið og stæði við þau. Þetta
fór nú þannig að borgarbúar
vildu gefa Ingibjörgu Sólrúnu eitt
kjörtímabil í viðbót. Ég var það
neðarlega á listanum að ég varð
ekki borgarfulltrúi, en ég hafði
ráðgert að vera eingöngu í borg-
inn og hætta á Sjónvarpinu. Aðrar
stöðvar vildu nýta mina krafta, en
þá komu þeir að máli við mig yfir-
menn mínir á Sjónvarpinu. Þeir
sögðust vera að fara af stað með
Spaugstofuna og þeir þyrftu að
framleiða þátt, sem að vísu mátti
ekki kosta miklar peninga, en átti
að vera milli frétta og Spaugstof-
unnar á laugardagskvöldum. Þátt-
inn átti að taka upp fyrirfram á
vinnutíma í stúdíói. Mér var boð-
ið að móta þennan þátt frá grun-
ni. Ég tók þetta að mér, ef þeir
vildu ábyrgjast að það bryti ekki
í bága við neinar reglur RÚV að
vera með varaborgarfulltrúa í
vinnu. Það kom í ljós að fordæmi
væru fyrir þessu og enginn
ágreiningur um störf mín. Ég tók
þetta því að mér og þannig byrj-
aði Laugardagskvöld og það naut
strax vinsælda og hefur verið á
dagskrá allt þetta kjörtímabil,“
segir Gísli Marteinn sem ákvað
að hætta með þáttinn í vetur eftir
hundrað þætti.
„Þetta var stórskemmtilegt
starf og algjör forréttindi að vera í
vinnu og geta tekið tali fólk sem
er að gera spennandi hluti. Auð-
vitað voru viðmælendur mis-
skemmtilegir eins og gengur og
þættirnir misvel heppnaðir. Ég
reyndi að kynna mér málin, las
ævisögur fólks og fleira til að
kynna mér persónurnar,“ segir
Gísli Marteinn sem nú stendur í
þeim sporum að vinna að próf-
kjöri innan stærsta stjórnmála-
flokks landsins. Strákurinn úr
Breiðholti, unglegur og frísklegur
með smitandi hlátur þarf nú að
sannfæra flokksmenn um að hann
sé réttur maður til að hnekkja
veldi vinstri aflanna í borginni.
Viðtal: Jón Birgir Pétursson.
SEPTEMBER 2005 5Breiðholtsblaðið
FJÖLSKYLDAN - Gísli Marteinn og kona hans og dætur á ferðalagi
um Vestfirðina í sumar.
Auglýsingasími:
511 1188 & 895 8298
Nicorette Freshmint
2 mg og 4 mg
í 210stk.pakkningum
Nicorette Freshmint er mýkra undir tönn en gefur
jafnframt þessa skemmtilegu brakandi áferð.
Aukaskammtur af piparmyntuolíu, mentóli og xylítóli
gefur ferskt og langvarandi myntubragð
og marrandi yfirborð.
20%afslátturtil 23.október
Se
pt
em
be
r
20
05