Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Side 10

Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Side 10
Alfreð Þorsteinsson borgar- fulltrúi og stjórnarformaður Orkuveitunnar hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu. Blöðin segja að honum sótt inn- an flokks, - og skoðanakannanir sýna að fáir Reykvíkingar mundu kjósa Framsóknarflokk- inn ef kosið yrði í dag. En Alfreð bendir á að ekki verð- ur kosið í dag, heldur eftir níu mánuði.. Hann hefur áður þurft að hafa fyrir því að komast í fyrs- ta sæti lista flokksins í Reykjavík, og undanfarin ár hefur hann verið valdamikill í borgarstjórn, stund- um kallaður aðalborgarstjórinn. Breiðholtsblaðinu tókst að króa Alfreð af mitt í öllum látunum og var með annars konar vandamál í huga, ýmis þau mál sem snúa að Breiðhyltingum, en Alfreð er for- maður hverfaráðsins í Breiðholti. Við spurðum hann hvað væri framundan í verkefnum sem varða íbúa Breiðholts. Tekið á í skólamálum „Eitt af brýnustu úrlausnarefn- um, sem snúa að Breiðholtinu í dag, eru framkvæmdir í skóla- og íþróttamálum. Bæði Öldusels- skóli og Breiðholtsskóli hafa lengi beðið eftir úrbótum í bygginga- málum. Báðir skólarnir hafa not- ast við of margar færanlegar kennslustofur í of langan tíma og mötuneytismál Ölduselsskóla hafa jafnframt setið á hakanum. Hverfaráð Breiðholts hefur fjallað um þennan vanda og tel ég að búið sé að tryggja fjármagn á næstu þriggja ára framkvæmdaá- ætlun til aðljúka þessum brýnu verkefnum,“ sagði Alfreð Þor- steinsson. -Hér í þessu blaði hefur það ver- ið gagnrýnt að íþróttafélög Breið- holts eru ekki á sama báti og stóru klúbbarnir niðri í bæ. Er að vænta úrbóta í þessum efnum? „Já, ég held að ÍR-ingar geti glaðst yfir því að þegar á þessu ári verður veitt fjármagni til bygg- ingar gervigrasvallar á félags- svæði þeirra. Sá völlur verður til- búinn til notkunar næsta vor,“ sagði Alfreð. „Það er rétt að borg- aryfirvöld hafa verið ötul við að liðsinna öllum stóru íþróttafélög- unum í borginni við uppbyggingu á íþróttaaðstöðu á félagssvæðum þeirra. Það má segja að ÍR sé í röðinni hvað þessa uppbyggingu varðar. Sjálfir hafa ÍR-ingar lagt áherslu á gervigrasvöll auk íþróttahúss. Nú er verið að skoða nánar hvers konar hús eigi að reisa á íþróttasvæði þeirra.“ -Hvaða vonir bindurðu við nýju þjónustumiðstöðina sem opnar í Mjóddinni um næstu mánaðamót? „Miklar vonir eru bundnar við þessa nýju þjónustumiðstöð fyrir Breiðholtshverfi sem opnar 1. október. Auk hefðbundinnar þjónustu í félags-, íþrótta-, og dagvistarmálum og annarri þjón- ustu, tengist lögreglan þjónustu- miðstöðinni með aðsetri á sama stað í Mjóddinni. Það er komin góð reynsla af samskonar mið- stöð í Grafarvogi og er vonast til að Breiðholtsbúar muni nýta sér vel þessa miðstöð. Markmiðið er að færa þjónustu borgarinnar nær íbúum og skerpa enn hverfa- vitund Breiðholtsbúa,“ sagði Al- freið Þorsteinsson í viðtalinu. -Hvernig metur þú Breiðholts- hverfin í dag? „Ég hef nú búið síðan 1972 í Breiðholtinu. Frá því að fyrstu íbúarnir fluttu hingað í hverfið hefur átt sér stað mikil breyting. Hverfið er orðið gróið, fallegir garðar við húsin, gangstígakerfi borgarinnar nýtist háum sem lág- um vel, hvort sem um er að ræða gönguferðinr eða hjólreiðar. Nálægðin við Elliðaárdalinn er ómetanleg. Þegar einnig er litið til þess að samgöngur hafa batnað verulega, má segja að það sé gott að búa í Breiðholtinu. Nýja þjón- ustumiðstöðin okkar mun enn auka á þau lífsgæði sem eru fólgin í því að búa í Breiðholtinu,“ sagði Alfreð Þorsteinsson aðlokum.„ SEPTEMBER 200510 Breiðholtsblaðið Heimsækja minnissjúkt fólk hálfsmánaðarlega Eitt af markmiðum Félagsstarfs Gerðubergs er að finna þátttak- endum hlutverk og tækifæri. Kemur þá margt til, áhugasviðin eru mörg og reynslubrunnar ótæmandi. Í mars 1995 hófst sam- starf við Stoðbýlið Foldabæ, heimili fyrir minnissjúka sem er í Grafarvogi. Á þeim tíma var heim- ilið tilraunaverkefni til þriggja ára. Reynslan var góð, margir lögðu hug og hönd að og framtíð- arrekstur tryggður. Vinir Foldabæjar frá Gerðu- bergi, karlar og konur, um það bil 20 manna hópur, hafa heimsótt heimilið öll árin, annan hvern fimmtudag, nema í sumarleyfi Fé- lagsstarfsins. Það er spjallað, sungið og dansað, og fyrir jólin er laufabrauðsskurður. Þrisvar á ári gera menn sér sérstakan daga- mun. Það er í nóvember áður en jólaasinn fer af stað, á Þorranum, og loks er grillað í garðinum áður en félagssstarfið fer í sumarleyfi. Í ár var útigrillið reyndar haldið síðar eða þann 23. ágúst. Starfsfólk, vinir og ættingjar heimamanna komu saman og héldu hátíð. Það var grillað í garðinum, allir unnu saman og það var sungið og spjallað og samglaðst í þessu góða samfélagi. Sérstaka athygli vakti hversu mörg börn og unglingar voru saman komin og tóku virkan þátt. Vinabandið flutti gömlu, góðu lög- in og Sigvaldi Þorgilsson dans- kennari stjórnaði línudansi, sem hann kenndi þarna á staðnum. Að sögn Margrétar Lilju Einars- dóttur forstöðumanns Foldabæj- ar komu 85 manns saman þennan dag. „Það er hrein upplifun og for- réttindi að vera þátttakandi í svo góðu og gefandi samstarfi sem áunnist hefur á einlægan og traustan máta,“ sagði Guðrún Jónsdóttir í Gerðubergi. „ Í öllu þessu starfi er mikil álúð og dug- ur þar sem hæfileikar og hjarta- hlýja eru í fyrirrúmi. Allt þetta góða fólk sem leggur af mörkum svo gott starf að líta til annarra sem lakar eru settir á ómældar þakkir skilið fyrir svo frábært brautryjendastarf sem unnið hef- ur verið án nokkurrrar fyrirmynd- ar,“ sagði Guðrún í spjalli við Breiðholtsblaðið. -fólk úr Félagsstarfinu í Gerðubergi hefur stutt við bakið á íbúum í Foldabæ í áratug ÞORGRÍMUR KRISTMUNDSSON heitir hann munnhörpuleikarinn sem hér spilar listilega með Gerðubergskórnum sem Kári Friðriksson stjórnar af röggsemi, en píanóundirleik annast Unnur Eyfells og hún stjórnar kórnum af og til, hress kona komin á níræðisaldurinn. Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi og formaður hverfa- ráðs Breiðholts segir margt gott í spilunum í framfara- málum Breiðholtsins: Á þessari mynd sést formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur taka á móti forseta Indlands Dr. Abdul Kalam og forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni í heimsókn í höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Aðstaða ÍR-inga verður stórbætt, byggingamálum skóla kippt í liðinn

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.