Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Qupperneq 14
SEPTEMBER 200514 Breiðholtsblaðið
Í júlí síðastliðnum skrifaði Gúst-
af Adolf Hjaltason, formaður
Sundfélagsins Ægis undir sam-
starfssamning við Reykjavíkur-
borg fyrir hönd Ægis. Í samningn-
um er starfssvæði Ægis skilgreint
sem austan Snorrabrautar og
sunnan Miklubrautar. Hverfi Ægis
eru því Hlíðarnar, Smáíbúða-
hverfið, Fossvogurinn - og síðast
en ekki síst, allt Breiðholtið.
Stjórn Ægis hefur ákveðið að
fara í kynningarátak í haust og
munu afrekssundmenn félagsins,
svo sem Ólympíu- og Heims-
meistarmótsfarinn Jakob Jóhann
Sveinsson og fleiri sundmenn
heimsækja grunnskólana í Breið-
holtinu og kynna sundíþróttina
fyrir 6 til 10 ára nemendum skól-
anna.
Vetrarstarfið að hefjast
Sundfélagið Ægir er nú að hefja
vetrarstarf sitt eftir sumarhlé.
Gengið hefur verið frá ráðningu
þjálfara og mun Eyleifur Jóhann-
esson, yfirþjálfari félagsins gegna
því starfi áfram og stýra starfinu
en Eyleifur mun hafa marga vel
menntaða og hæfa þjálfara sér
við hlið, sem munu sjá um þjálfun
einstakra sundhópa. Árangur
Ægiringa síðasta keppnistímabil
var stórglæsilegur, hvort sem lit-
ið er til Ólympíuleikanna, Heims-
meistaramótsins eða minni móta
á Íslandi. Bikarmeistaratitill og
fjölmörg Íslandsmet eru vitni um
árangur Ægiringa og stefna fé-
lagsmenn á að gera enn betur
næsta keppnistímabil.
Nú er verið að skrá nýja sund-
menn í félagið en boðið verður
upp á sundhópa fyrir yngri
sundmenn í Breiðholtslaug,
Ölduselslaug, Breiðagerðislaug
og Í Laugardalslauginni. Hægt er
að fá upplýsingar um einstaka
sundhópa og skráningu í þá á
vefsíðu Ægis, aegir.is og í síma
899 0617.
JAK
Breiðholt er innan starfssvæðis Ægis
Sundfélagið Ægir
- Jakob Jóhann Sveinsson og fleiri heimsækja skólana í Breiðholti í haust og kynna sundíþróttina
Ægiringar stóðu í ströngu á síðasta keppnistímabil en sundmenn fé-
lagsins náðu miklum og góðum árangri á fjölmörgum sundmótum.
Hér dregur Kristinn Jaferian ekki af sér í skriðsundi.
Ljósm.: JAK
Þrír ungir Ægiringar, Siggi Dan Kristjánsson, Hreinn Ingi
Örnólfsson og Anton Sveinn McKee taka við verðlaunum
á Aldursflokkameistaramóti Íslands.