Breiðholtsblaðið - 01.09.2006, Qupperneq 4
SEPTEMBER 20064 Breiðholtsblaðið
V I Ð T A L I Ð
Jónína Bjartmars tók við emb-
ætti umhverfisráðherra á liðnu
sumri. Hún hefur átt sæti á Al-
þingi um árabil en tók þar á
undan þátt í margvíslegu félags-
starfi, gegndi m.a. formennsku í
samtökunum Heimili og skóli
um árabil og stóð að stofnun
FKA- Félagi kvenna í atvinnu-
rekstri og var fyrsti formaður
þess. Hún segir starf sitt að fé-
lagsmálum hafa leitt til að hún
hóf að starfa á vettvangi stjórn-
málanna og síðar þá ákvörðun
að gefa kost á sér til setu á Al-
þingi. Jónína er Breiðholtsbúi.
Hún flutti í Seljahverfið fyrir
tæpum tveimur áratugum árum
ásamt eiginmanni sínum, Pétri
Þór Sigurðssyni hæstaréttarlög-
manni, og sonum þeirra tveim-
ur, Birni Orra og Erni Skorra.
Tengslin við náttúruna
drógu mig að
Seljahverfinu
„Seljahverfið er fyrir löngu orð-
ið að heimkynnum mínum. Ef ég
lít til síðari ára, þeirra sem ég hef
starfað í pólitíkinni, þá er Breið-
holtið mín heimahöfn.“ Jónína
segir þau hjónin hafa verið búin
að leita nokkuð eftir húsnæði í út-
jaðri byggðar þegar Seljahverfið
hafi orðið fyrir valinu. „Við vorum
að leita að framtíðarhúsnæði og
sem líkustum aðstæðum og við
höfðum alist upp við en fjölskylda
mín bjó um tíma í útjaðri byggðar
í Kópavogi þaðan sem stutt var í
opin svæði, náttúruna og jafnvel
húsdýr, sem menn bjuggu þá
með í bæjarlandinu. Það var fyrst
og fremst kyrrðin og nálægðin við
opin svæði og náttúruna sem
urðu til þess að við settumst að
efst í Seljahverfinu í Vatnsenda-
hvarfinu. Annars er ég innan úr
Hverfi eins og það heitir á milli
þeirra sem ólust upp í Bústaða-
og Smáíbúðahverfinu og mér
finnst ég alltaf tilheyra þeim hluta
borgarinnar.“ Jónína segir að
nokkuð vítt til hafi verið til veggja
í Seljahverfinu lengi framan af en
umhverfið hafi vissulega breyst
mikið á þeim nær tveimur áratug-
um sem þau hafi búið þar. „Þar
sem áður voru óbyggð svæði allt
í kring hefur byggðin í Kópavogi
teygt sig nú. En það hefur verið
gott að búa í Breiðholtinu, synir
okkar hafa alist þar upp og voru
þar bæði í leikskóla, á Hálsaborg
og síðan í Ölduselsskóla og ég hef
kynntist aðstæðum fólks í hverf-
inu ekki síst gegnum starf mitt að
skólamálum“.
Jónína segir nauðsynlegt fyrir
stjórnmálamenn að huga að
heimahögunum og gefa aðstæð-
um í heimabyggð glöggt auga.
Breiðholtið sé stærsta borgar-
hverfið í Reykjavík, einskonar
borg í borg. „Mér finnst stundum
einblínt um of á 101 svæðið og
fólkið sem þar býr en stóru út-
hverfunum ekki gefinn sá gaumur
sem þeim ber. Ég hef verið upp-
tekin af og hvatt til að stuðnings
við verslun og þjónustu innan
hverfisins vegna þess að mér
finnst það skipta mjög miklu máli
fyrir íbúana og ekki síður hverfis-
samfélagið sem heild“
Viljum geta verið stolt af
heimahögunum
Jónína segist einnig láta sér
mjög annt um útlit Seljahverfis-
ins og raunar alls Breiðholtsins.
„Ég tók því yfirlýsingum nýlega
kjörins borgarastjóra um fegr-
unarátak mjög fagnandi og ég
vona að þessu átaki verði fylgt
eftir en mér hefur fundist Breið-
holtið hafa orðið útundan mörg
undanfarin ár.“ Jónína segir að
margir staðir innan Seljahverfis-
ins, þar sem hún fer daglega um,
beri þess glögglega merki að
þeim hafi ekki verið sinnt. „Ég
held að ef þessu átaki borgar-
stjóra verði fylgt eftir þá verði
það hvatning fyrir íbúana til þess
að leggja enn meiri rækt við sína
eigin garða og umhverfi húsa
sinna. Ég tel einnig mikilvægt að
hafa góða umhirðu og umgengni
um umhverfið fyrir ungu fólki
sem verði því hvatning til þess
að tileinka sér snyrtimennsku.“
Ég vil hvetja borgaryfirvöld til
þess að láta ekki staðar numið
við átakið á liðnu sumri heldur
að halda þessu tímabæra og
merkilega starfi áfram af fullum
fullum krafti. Ég vil að við getum
verið stolt af hverfinu okkar
hvort sem um umhirðu þess og
útlit eða aðra þætti er að ræða og
vil leggja mitt af mörkum til þess
að svo geti orðið.“
Skólinn og samfélagið
Jónína var á sínum tíma í for-
svari fyrir foreldrasamtökin
Heimili og skóli auk þess að
Umhverfismálin eru engum óviðkomandi
Jónína Bjartmars umhverfisráðherra.
Loðfóðruð stígvél
Stærðir 25-35 Verð kr: 4.795.-
Með hverju keyptu pari fylgja
inniskór að eigin vali á barnið!
SKÓVERSLUN Í ÞÍNU HVERFI
MJÓDDINNI S: 557 1291 SPÖNGINNI S: 587 0740
Vandaðir skór á alla fjölskylduna í stærðum 16 - 50