Vesturbæjarblaðið - 01.05.2007, Page 1
5. tbl. 10. árg.
MAÍ 2007Dreift frítt í öll hús í Vesturbæ og Mi›borg
Slippasvæðið, Örfirisey og
Vatnsmýrin meðal lóðaframboða
Að minnsta kosti 1000 íbúðir
í nýjum hverfum á ári, uppbygg-
ingar- og úthlutunaráætlun á sér-
stakri vefsíðu, sanngjarnar úthlut-
unarreglur, fast lóðaverð sem á að
tryggja að allir hafi sama tækifæri
til að fá lóð og stóraukið verður
framboð sérbýlis. Þetta var m.a.
þess sem borgarstjórnarmeirihlut-
inn í Reykjavík kynnti í sl.viku.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóri opnaði nýjan vef fyrir borg-
arbúa sem sýnir áætlun næstu
ára í lóðaúthlutun. Borgarbúum
er nú í fyrsta sinn gert kleift að
skoða á netinu ný íbúðasvæði og
lóðir sem í boði verða. Vefurinn
felst í nákvæmu upplýsingakorti
sem sýnir uppbyggingarsvæðin í
borginni, hvar þau eru og hvenær
úthlutun hefst.
Í máli borgarstjóra um uppbygg-
ingar- og úthlutunaráætlun fyrir
íbúabyggð í Reykjavík kom m.a.
fram að lykilorðin eru fjölbreytni,
framboð og gæði.
Lykilsvæðin á næstu árum
eru Úlfarsárdalur, Reynisvatns-
ás, Slippasvæðið, Geldinganes,
Örfirisey og Vatnsmýrin.
“Markmiðið er að allir sem vilja
geti byggt og búið í Reykjavik og
að borgin verði fyrsti búsetukost-
ur sem flestra,” segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri. Hann
segir ennfremur að uppbygging-
aráform borgarinnar verði öllum
aðgengileg með þessum vef og
notendur geti öðlast heildarmynd
af uppbyggingarsvæðum og
úthlutun lóða.
Um 500 íbúðir í
miðborginni
Hanna Birna Kristjánsdóttir
formaður skipulagsráðs segir
að til úthlutunar á næstu árum
verði að minnsta kosti 1000 íbúð-
ir í nýbyggingarhverfum, u.þ.b.
500 nýjar íbúðir í miðborginni
og nágrenni og að úthlutað verði
þrisvar á ári eða í maí, septem-
ber og desember.
“Nægt framboð lóða í Reykja-
vík er framtíðin og í samræmi
við málefnasamning Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks
í borginni,” segir Hanna Birna.
Nýjar úthlutunarreglur verða
nú viðhafðar í Reykjavík, en
samkvæmt þeim getur hver ein-
staklingur sótt um eina lóð.„Eft-
ir að farið hefur verið yfir allar
umsóknir verður dregið úr þeim
umsóknum sem uppfylla öll skil-
yrði. Þannig ræðst í fyrsta lagi
hverjir fá lóðir og í öðru lagi í
hvaða röð umsækjendur fá að
velja sér lóð. Fast verð verður á
lóðum í nýju reglunum, 11 millj-
ónir króna fyrir einbýlishús, 7,5
milljónir króna fyrir parhús og
raðhús og 4,5 milljónir króna fyr-
ir fjölbýlishús.
Á vefnum geta notendur skoð-
að hvert svæði fyrir sig, stækk-
að myndir og opnað skjöl með
nánari upplýsingum um svæðin,
lesið greinargerðir, séð þrívídd-
armyndir, yfirlitsuppdrætti og
sneiðmyndir svo dæmi sé tekið.
Íslandsmeistaratitli KR í körfuknattleik var fagnað vel og innilega í sl. mánuði, en 7 ár voru liðin síðan
liðið vann þann titil síðast.
-BLAÐIÐ
KR-blaðið fylgir
Vesturbæjarblaðinu.
Viðtöl og kynning
á KR-liðinu.
St
af
ræ
na
p
re
nt
sm
ið
ja
n-
99
86
Eurovisontilboð
föstudag og laugardag
...gildir 11/5 og 12/5 eða á meðan birgðir endast
Úrvals lambafile með fitu
2.498k
g