Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2015, Qupperneq 4

Skinfaxi - 01.05.2015, Qupperneq 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Þegar markmið með stofnun ung-mennafélaga og íþróttafélaga eru skoðuð ber allt að sama brunni, félögin skulu stuðla að eflingu íþrótta- og æskulýðsstarfs og að heilbrigðum lífs- háttum í þeim samfélögum þar sem þau starfa. Sama er hvar við drepum niður fæti í sögunni, félögin hafa öll unnið af kappi að framgangi þessara markmiða og gera það enn. Það má vera öllum ljóst að áhrifin af starf- semi hreyfinganna eru mikil og skipta miklu máli í lífi einstaklinga og fjölskyldna um allt land. Með skipulögðu æskulýðs- og íþrótta- starfi er lagður grunnur að heilbrigðu sam- félagi þar sem heilsa og heill fólks á öllum aldri er höfð að leiðarljósi. Þetta hlutverk hafa eldhugarnir, sjálfboðaliðarnir, axlað af mikilli ábyrgð og í krafti starfa þeirra hafa orðið til verkefni af ýmsu tagi og þeir hafa komið að margs konar uppbyggingu. Þannig má segja að þeir hafi sett fingraför sín á ákvarðanir er varða uppbyggingu mann- virkja, skipulag og framkvæmd æskulýðs- og íþróttastarfs í nærsamfélagi sínu og á lands- vísu og þá ekki síst lagt hönd á plóg við félagslegt uppeldi einstaklinga sem aftur hefur búið til þann félags- og mannauð sem hvert samfélag býr yfir. Að starfa sem sjálfboðaliði á þessum vett- vangi er ein hlið en mig langar að nefna aðra hlið sem er ekki síður gefandi og mikilvæg. Það er árangurinn sem iðkendurnir ná og veita okkur sem á horfum mikla gleði og ánægju. Samtakamátturinn, sem verður til þegar íþróttamanni, félagi eða landsliði gengur vel á keppnisvellinum, er ólýsanlegur og kallar fram stolt yfir að fá að upplifa árangurinn. Ég efast um að það séu margar 330.000 manna þjóðir í heiminum sem geta státað af því að eiga landslið sem eru komin í loka- keppni Evrópu í handbolta og körfubolta, við það að komast í lokakeppni Evrópu í knattspyrnu, eru í 2. deild Evrópu í frjálsum íþróttum og lentu í verðlaunasæti á Evrópu- móti landsliða í hópfimleikum. Þá er ég ekki búin að telja upp alla þá einstaklinga í öðr- um íþróttagreinum sem hafa náð góðum árangri á alþjóðavísu. Við erum stolt sem þjóð yfir að eiga fulltrúa meðal þjóðanna og fylgjumst spennt með hvernig gengur. Það er ekkert sjálfgefi ð Fögnum þegar vel gengur og erum tilbúin að segja að það gangi betur næst ef árangur- inn fer ekki eftir því sem óskað hefur verið. Grunnurinn að þessu öllu saman er öflugt íþróttastarf á Íslandi. Mikill fjöldi barna og unglinga tekur þátt í íþróttum og er þátt- takan í raun með því mesta sem gerist sé hún skoðuð í samhengi við þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Góð íþrótta- aðstaða, menntaðir þjálfarar og sjálfboða- liðarnir, sem bera starfið uppi, gera afreks- fólkinu okkar kleift að vera í fremstu röð. En munum að það er ekki sjálfgefið að starfsemi æskulýðs- og íþróttahreyfinganna sé alltaf til staðar. Við verðum að hlúa að henni og halda áfram að eiga góða samfylgd með íslenskri þjóð, axla samfélagslegar skyldur og standa undir þeirri miklu ábyrgð að vera stærsta fjöldahreyfing á Íslandi. Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars Íslandi allt! Helga Guðrún Guðjónsdóttir Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ: Auður Inga Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Ungmenna- félags Íslands. Tók hún við starfinu 1. júní sl. Auður Inga er fædd árið 1978 og hefur undanfarin níu ár starfað sem fram- kvæmdastjóri Íþróttafélagsins Gerplu í Kópavogi. Áður var hún deildarstjóri á tveimur leikskólum í Noregi. Þar á undan var hún fimleikaþjálfari hjá Gerplu og hjá Kolbotn í Noregi og var m.a. yfirþjálfari hjá Gerplu. Þá hefur hún gegnt ýmsum † Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrver-andi formaður Ungmennafélags Íslands, lést þann 26. mars síðast- liðinn, á 84. aldursári. Hafsteinn fæddist í Hafnarfirði 28. apríl 1931. Hann ólst upp í Hafnarfirði til fermingaraldurs en fluttist eftir það með foreldrum sínum að Lamb- húskoti í Biskupstungum og 1950 að Syðri- Gróf í Flóa. Þar stundaði hann búskap til ársins 1961 er hann fluttist á Selfoss þar sem hann bjó og starfaði til æviloka. Hafsteinn starfaði lengst af sem fram- kvæmdastjóri sjúkrahússins á Selfossi. Hann sat í bæjarstjórn Selfoss í 14 ár og var m.a. formaður bæjarráðs um tíma. Hafsteinn tók frá unga aldri mikinn þátt í störfum innan ungmennafélags- hreyfingarinnar og var mikilvirkur á því sviði. Hann nam við Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal og dvaldi þar árin 1946–1948. Hann var m.a. formaður Umf. Vöku í Villingaholtshreppi 1950–1961, Umf. Selfoss 1962–1963 og sat í stjórn HSK 1961–1970. Þá var hann framkvæmda- stjóri Landsmóts UMFÍ á Laugarvatni 1965. Hafsteinn var kjörinn í varastjórn UMFÍ 1963 og síðan ritari 1965. Ritarastöðunni gegndi hann til 1969 er hann var kjörinn formaður UMFÍ á sambandsþingi að Laug- um. Hafsteinn var formaður samtakanna á árunum 1969–1979. Eitt af fyrstu verkum Hafsteins var að ráða Sigurð Geirdal fram- kvæmdastjóra. Saman hrintu þeir af stað mikilli sóknarbylgju ungmennafélagshreyf- ingarinnar, félögum fjölgaði stórlega, félög og sambönd vöknuðu af værum blundi og starfið blómstraði. Hafsteinn var gerð- ur að heiðursfélaga UMFÍ árið 1979. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ Auður Inga Þorsteinsdóttir nýr framkvæmdastjóri UMFÍ trúnaðarstörfum fyrir Fimleikasamband Íslands og verið kennari og fyrirlesari á ýmsum námskeiðum, bæði hérlendis og erlendis. Auður Inga lauk B.Ed.-gráðu frá Kenn- araháskóla Íslands árið 2002. Hún útskrif- aðist í júní 2015 með MBA-gráðu í við- skiptum og stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Auður Inga var valin úr hópi ríflega sjötíu umsækjenda en Hagvangur aðstoðaði stjórn UMFÍ við ráðningar- ferlið. Hún tók við af Sæmundi Runólfs- syni sem verið hafði framkvæmdastjóri UMFÍ í rúm 23 ár. Auður Inga Þorsteinsdóttir, nýr framkvæmda- stjóri UMFÍ. Hafsteinn Þorvaldsson flytur ávarp á héraðsþingi HSK í Brautarholti á Skeiðum 2012.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.