Skinfaxi - 01.05.2015, Side 18
18 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
D önsku landsmótin eiga sér langa sögu eða allt aftur til árs-ins 1862 er 103 karlar komu saman og kepptu í skotfimi. Þetta fyrsta mót stóð í sex klukkutíma og var haldið á
svipuðum slóðum og DGI-byen stendur nú í
Kaupmannahöfn. Sagan segir að borðhaldið
eftir mótið hafi tekið lengri tíma en keppnin
sjálf. Mótin voru í byrjun miklar hátíðir þar sem
gleði og gaman ríktu og snerust mikið um
þjóðarstolt. Fimleikar komu til sögunnar 1881
og hafa sett mark sitt á mótin síðan. Konur
tóku fyrst þátt í fimleikum í Silkeborg 1908.
Um aldamótin var talað um skandinavíska
hátíð því að ásamt Dönum tóku Norðmenn
og Svíar þátt. Á þriðja áratug 20. aldar var
dregið úr vægi keppnisíþrótta og meira lagt
upp úr sýningum. Á fjórða áratugnum bætt-
ust fleiri íþróttagreinar við eins og fótbolti,
handbolti, frjálsar og sund. Næstu tvo áratug-
ina var lögð meiri áhersla á þátttöku almenn-
ings og boðið upp á fleiri sýningar, viðburði
o.fl. Frá 1970 og fram á tíunda áratuginn jókst
fjölbreytni mótanna, fleiri og fjölbreyttari
íþróttagreinar bættust við og ungir sem
aldnir gátu verið með.
Í gegnum tíðina hafa dönsku landsmótin
tekið miklum breytingum. Þátttakendum
hefur fjölgað mikið sem og keppnisgreinum,
alls konar sýningum, viðburðum og smiðjum.
Í dag eru landsmótin sannkallaðar stórhátíð-
ir þar sem keppni, leikur, fræðsla og samvera
er það sem mestu máli skiptir. Fjölmennasta
landsmótið hingað til var haldið í Silkeborg
1998. Þá voru þátttakendur 45.054 og er tal-
ið að um 80.000 manns hafi komið á mótið.
Dönsku landsmótin (Landsstævne), sem
nú orðið eru haldin á fjögurra ára fresti, eru
stærstu íþróttahátíðir sem haldnar eru í Dan-
mörku. Síðasta landsmót DGI, sem var það
26. í röðinni, var haldið í Esbjerg 2013. Þar
voru þátttakendur 23.500. Yngri aldurshópar
voru fjölmennir en um þriðjungur þátttak-
enda var á aldrinum 15–25 ára. Setningar-
hátíðin fór fram í Blue Water Arena í Esbjerg
og var sjónvarpað beint á DR1 og TV-2. Talið
er að um 780.000 hafi fylgst með henni.
Nýjar íþróttir njóta vin
- á dönsku landsmótunum
Á mótinu í Esbjerg gátu þátttakendur í
fyrsta skipti sett saman sína eigin dagskrá,
t.d. tekið þátt í strandblaki og CrossGym einn
daginn, fótbolta annan, fimleikum með fim-
leikahópi þann þriðja og svo prófað þríþraut
eða farið í fitness-smiðju. Mótið var öllum op-
ið og þurfti fólk ekkert endilega að vera skráð
í félag. Aldurtakmark var 15 ár en börn voru
velkomin í fylgd með fullorðnum og var boð-
ið upp á ýmislegt sem þau gátu tekið þátt í.
Fjöldinn allur af smiðjum (workshops) var í
boði þar sem fólki gafst kostur á að auka inn-
sýn sína í ýmsar íþróttir. T.d. var hægt að fara
í það sem kallað var DGI Aqua Act en þar var
boðið upp á stórt reipi og ýmsar þrautir í
sundhöllinni. Þá var hægt að keppa í fótbolta
í sjö manna liðum og öðrum boltagreinum
á smærri völlum og með færri leikmönnum
í miðbænum.
Um 3.700 sjálfboðaliðar komu að fram-
kvæmd landsmótsins í Esbjerg. Til gamans má
geta þess að þeir elduðu 8,5 tonn af heitum
mat, drösluðu íþróttatækjum til og frá, smurðu
71.000 rúgbrauðssneiðar og margt fleira.