Morgunblaðið - 13.01.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.01.2015, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. J A N Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  10. tölublað  103. árgangur  RAFVESPA SEM EKKI ÞARF AÐ HLAÐA FERÐAFÉLAG BARNA ÓTRÚLEGA GAMAN AÐ HAFA UNNIÐ ÞAU FINNA ÆVINTÝRI Í ÖLLU 10 JÓHANN FÉKK GOLDEN GLOBE 30SMARTSCOOTER BÍLAR Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Launakostnaður ríkisins vegna lækna hækkar um tæp 30% með kjarasamningunum sem gerðir voru við Læknafélag Íslands í seinustu viku, skv. heimildum Morgunblaðs- ins. Samningurinn kveður bæði á um launahækkanir og kerfisbreyt- ingar og er ekki talið ósennilegt að heildarkostnaðarauki ríkisins geti orðið umtalsvert meiri en 30% þeg- ar upp verður staðið en það ræðst af því hvaða hagræðing næst með breytingum á vinnufyrirkomulagi. Kveðið er á um breyttar álags- og vaktagreiðslur og eiga greiðslur fyrir yfirvinnu að lækka á móti skipulagsbreytingum. Langstærsti hluti launahækkananna kemur til framkvæmda á þessu ári, en samn- ingurinn gildir til 30. apríl 2017. Samningurinn er afturvirkur frá júní í fyrra með 3,6% hækkun sem leggst ofan á launagrunninn og launataflan hækkar svo almennt um 10,2% frá seinustu áramótum. Ný launatafla tekur gildi sem felur í sér mismiklar hækkanir fyrir lækna, þar sem dregið er úr vægi álagsþátta í launum. Samkomulag varð einnig um að læknar fái 160 þús. kr. eingreiðslu en samningur þeirra rann út í janúar í fyrra. Kveðið er á um launahækkun um mitt þetta ár á móti kerfisbreyt- ingum. Þá eru í samningnum launa- pottar sem greiða á úr í tengslum við skipulagsbreytingar og verk- efni. Auk þessa hækka laun svo einnig á árunum 2016 og 2017. Hækkunin er tæp 30%  Stærsti hluti launakostnaðar ríkisins vegna læknasamninganna fellur til í ár  Heildarhækkanir gætu orðið vel yfir 30% ef hagræðingin gengur ekki eftir Kosningin » Atkvæðagreiðsla um læknasamninginn hófst í gær og lýkur aðfaranótt laugar- dags. » Um 420 læknar sóttu kynningarfund sl. föstudag. » Úrslit úr talningu gætu leg- ið fyrir á laugardaginn. Samningur Reiknistofu bankanna (RB) við stórfyrirtækið Sopra Bank- ing Software um uppsetningu nýs innláns- og greiðslukerfis á Íslandi mun leiða til hagræðingar og auka öryggi þjónustunnar. Þetta sagði Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, eftir að samkomulagið var handsalað í gær. Gamla kerfið umfangsmikið Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB, sagði verðmæti samningsins trúnaðarmál en staðfesti að á annað hundrað manns muni koma að upp- setningu nýja kerfisins sem á að vera komið í gagnið á fyrri hluta næsta árs. Nýja kerfið leysir af hólmi kerfi sem bankarnir byggðu upp fyrir bankahrunið og þjóna átti alþjóðlegum bönkum með þúsundir starfsmanna. baldura@mbl.is »16 Sparar bönkum mikið fé Morgunblaðið/Kristinn Landsbanki Kerfið var orðið úrelt.  RB innleiðir nýtt innlánskerfi á Íslandi Hestamenn eru farnir að viðra klárana eftir að þeir hafa verið stríðaldir um jól og áramót. Sjá mátti nokkra Fáksfélaga í útreiðum í vetrarstillunni í Víðidal í gær. Konurnar fóru hægt af stað. Þeir sem eru að þjálfa hesta fyr- ir keppni þurfa að vera að allan veturinn til að koma vel undirbúnir til vetrarmótanna. Fyrsta mót stærstu mótaraðarinnar í reiðhöllum landsins, Meistaradeildar í hestaíþróttum, verður í lok mánaðarins. Reiðhestarnir viðraðir í vetrarstillunni Morgunblaðið/Kristinn  Lítið mál er að kaupa tjónabíla á uppboðum og jafnvel má bjóða í bíla rafrænt. Ekkert eftirlit er haft með hverjir gera við þá bíla sem keyptir eru né hvernig gert hefur verið við þá. Fyrir vikið geta óþarf- ar slysagildrur verið í umferðinni, jafnvel án þess að eigendum sé það ljóst, til dæmis ef keyptur var við- gerður tjónabíll í góðri trú. Til þess að bíll geti talist öruggur á sama hátt og hann var fyrir tjón þarf við- gerðin að hafa verið gerð af vott- uðum fagaðilum. Þá þarf að skipta um vissa bita í burðarvirki bílsins en dæmi eru um að gert hafi verið við þá bita sem missa við það styrk- inn en bitarnir eiga að bera bíl- inn uppi og eru meginstoðir hans. Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir brýna þörf á eftirliti með viðgerðum á tjónabílum og það sé bæði öryggis- og neytendamál sem varðar alla að regluverkið í kringum tjónabíla, viðgerðir og sölu þeirra verði end- urskoðað. »Bílar Eftirliti með viðgerðum tjónabíla ábóta- vant hér á landi og skýra þarf línurnar Tjón Eftirlits er þörf með viðgerðum. Unnið er að því að leggja ljósleið- ara víða um land með tilheyrandi jarðraski. Minjastofnun Íslands ótt- ast að slíkt hafi áhrif á fornleifar sem kunni að liggja í jörðu. Af þeim sökum er nú unnið að verk- lagsreglum fyrir starfsmenn stofn- unarinnar. Hugmyndin er sú að verklags- reglurnar verði sendar bygging- arfulltrúum hvers sveitarfélags svo þeir geti kynnt sér þær sem og framkvæmdaaðilar. Að sögn for- stöðumanns stofnunarinnar verða þær tilbúnar í febrúar. Minjavörð- ur Suðurlands vakti athygli sveitar- félagsins Ölfuss á mikilvægi sam- vinnu í þessum efnum en síðustu mánuði var ljósleiðari lagður í sveitarfélaginu. Allt landið verður óðum ljósleið- aravætt, ef átaksverkefni Sigmund- ar Davíðs Gunnlaugssonar for- sætisráðherra gengur eftir. Í áramótaávarpi sínu um nýliðin ára- mót lofaði hann að hver einasti bær, dalur og fjörður yrði tengdur við ljósleiðara. Þannig yrði landið allt tengt við hraðbraut upplýsinga og samskipta. »14 Tryggja fornminjar við lagningu ljósleiðara Morgunblaðið/Ómar Ljósleiðari Frá framkvæmdum við lagningu ljósleiðara í Reykjavík.  Ákvörðun um að setja framhalds- menntun unglækna í lyflækningum í forgang reyndist vera heillaríkt spor, að sögn Friðbjörns Sigurðs- sonar, framhaldsmenntunarstjóra í lyflækningum á Landspítala. Um 25 námslæknar eru við lyflækninga- svið Landspítalans. Árið 2013 veitti heilbrigðisráðherra sérstaka fjár- veitingu til endurreisnar sérnáms- ins sem hefur leitt til eflingar alls sviðsins í heild. »4 Lyflækningasvið LSH stóreflt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.