Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 2

Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 advania.is/vinnufelagar Hafðu samband í síma 440 9010 eða í tölvupósti á sala@advania.is * Tilboð gilda til 31.01.2015 eða á meðan birgðir endast. á nýju ári Nýjar vélar JANÚAR TILBOÐ* Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bandaríska geimferðastofnunin NASA sendi ný- verið frá sér nýjar ljósmyndir af Holuhrauni, sem teknar eru úr gervihnettinum Landsat 8. Á ljósmyndunum sést glöggt hversu stórt land- svæði hraunið þekur og er tekið fram í grein sem fylgdi myndunum að hraunið þeki nú svæði sem er stærra en Manhattan-eyja í New York. Þar kemur einnig fram að sumir eldfjallafræðingar telji mögulegt að eldgosið muni vara í nokkur ár. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ís- lands var ástandið við Bárðarbungu óbreytt í gær, en alls mældust á um þriðja tug skjálfta í Bárðarbungu í fyrrinótt. Flestir þeirra voru hins vegar minniháttar. Stærsti skjálftinn mældist kl. 00.22 um nóttina, og var hann 4,4 að stærð. Fimm aðrir voru yfir 4 að stærð. Tveir skjálftar mældust síðan um sexleytið í gærkvöldi og voru þeir 4,5 og 4,2 að stærð. sgs@mbl.is Hraunflæmið orðið stærra en Manhattan Ljósmynd/NASA NASA sendir frá sér ljósmyndir af Holuhrauni Öskjuvatn Holuhraun Dyngjujökull Jökulsá á Fjöllum 2 km „Þetta er gríðarlega spennandi, ég fæ tækifæri til að vinna þarna að verkefnum sem ég hef haft mikinn áhuga á í rektorsstarfinu,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sem þegið hefur boð um að verða gesta- prófessor við Massachusetts Institute of Technology (MIT) í Boston eftir að hún lætur af embætti um mitt ár. „Það verða auðvitað þáttaskil þegar ég lýk störfum sem rektor eftir tíu ár í embætti en ég hlakka til að tak- ast á við ný verkefni. Þau lúta einkum að áhrifum upplýs- ingatækni og opinna netnámskeiða og annarra nýjunga í kennslu á starfsemi háskóla. Þau munu einnig snúa að aukinni verðmætasköpun á grunni vísindarannsókna. MIT stendur mjög framarlega á báðum þessum sviðum.“ Hún nefnir að MIT sé í fremstu röð við miðlun þekk- ingar um internetið og mikil þróun sé í kennsluháttum. Kristín mun vinna að þeim þætti í Stofnun í stafrænni kennslu og edX sem er samstarfsnet MIT og yfir 40 ann- arra háskóla og stofnana. Hún mun einnig tengjast MIT Media Lab sem er nýsköpunarsetur skólans. Þar eru stundaðar rannsóknir og útfærsla nýstárlegra hug- mynda þvert á hefðbundna skilgreiningu og skipulag fræðigreina. „Þarna vinnur fólk saman sem við fyrstu sýn virðist ekki eiga mikla samleið í vísindum, en það verða til spennandi hlutir þegar fólk með ólíkan bak- grunn kemur saman að verkefnum. Ég hef áhuga á að tengja mína grein, lyfjafræðina, slíkum verkefnum.“ helgi@mbl.is Þarna gerast hlutirnir  Kristín Ingólfsdóttir verð- ur gestaprófessor við MIT Á ný mið Nýjar dyr opnast fyrir Kristínu Ingólfsdóttur. „Við höfum fylgst með því hvað hef- ur gerst í kjölfarið á kjarasamning- unum sem gerðir voru á síðasta vetri og munum horfa til þeirra hluta,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar - stéttarfélags, þegar hann er spurður um áhrif kjarasamninga sem ríkið hefur gert við ýmsar starfsstéttir á undanförn- um mánuðum. Nóg af línum að fara eftir Sigurður segir að Flóabandalagið muni leggja fram kröfur sínar fyrir komandi kjaraviðræður undir lok mánaðarins og er ekki tilbúinn að nefna neinar tölur. „Það er nóg af línum til að fara eftir, það er eng- in vöntun á þeim,“ segir hann. Flestir kjarasamningar á almenna vinnu- markaðnum renna út í lok febrúar en ein- hverjir mánuði síðar, í lok mars. Svo virðist sem hugmyndin um langtímasamninga sem stefnt var að með kjarasamningunum síðasta vetur sé farin út um þúfur. „Við metum það á hverjum tíma, þegar kjarasamningar eru gerðir, hvort nægur stöðugleiki sé til staðar þannig að hægt sé að vinna með það. Ekki virðist það blasa við í augnablikinu að svo sé og fátt sem bendir til að hægt sé að ná nið- urstöðu sem leiði til lengri samn- ings,“ segir Sigurður. Líkur á skammtímasamningi „Í augnablikinu myndi ég telja minni líkur en meiri á að við séum að fara að gera langtímasamninga. En það mótast af efni mála.“ Hann segir ómögulegt að nefna ákveðinn tíma í því sambandi. helgi@mbl.is Horfum til þeirra samn- inga sem gerðir hafa verið  Flóabandalagið leggur kröfur sínar fram í lok mánaðarins Sigurður Bessason Dæmi eru um að fólk hafi ekki get- að orðið sér úti um rafræn skil- ríki, þar sem það hefur ekki átt heimangengt á útgáfustað, en kröfur um að fólk þurfi að sanna á sér deili þýða að ekki er hægt að senda út aðstandanda með umboð til þess að verða sér úti um rafræn skil- ríki, en þau þarf til þess að staðfesta skuldaleiðréttingu á fasteignalánum. Einnig gildir þetta um fólk sem bú- sett er erlendis. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri segir að í reglugerð nr. 990/2014 sé í 4. grein fjallað um und- anþágur frá því að leiðréttingin sé staðfest með rafrænni undirritun í þeim tilfellum þegar umsækjandi getur ekki orðið sér úti um rafræn skilríki. Þeir sem séu búsettir er- lendis, eða eigi ekki heimangengt, til dæmis vegna elli eða hrumleika, geti sótt um slíka undanþágu á vef ríkis- skattstjóra. Skúli Eggert segir að í gær hafi 673 umsóknir um slíka undanþágu borist, og að búið hafi verið að af- greiða um 400 slíkar vegna búsetu erlendis, og rúmlega hundrað um- sóknir þar sem aðstæður hindruðu að fólk gæti sjálft orðið sér úti um rafræn skilríki. sgs@mbl.is Hægt að fá undan- þágu Skúli Eggert Þórðarson  Umboð ekki nóg fyrir rafræn skilríki Vinna stendur nú yfir á Landspít- alanum við endurröðun biðlista, en þeir lengdust gífurlega vegna verk- fallsaðgerða lækna og skurðlækna sem stóðu yfir frá 27. október til 7. janúar. Sumum tímum er hægt að koma fyrir á göngudeildum, en erf- iðara reynist að koma öðrum tímum fyrir. T.d. hafði verið bókað í alla tíma í hjartaþræðingum. Hlíf Steingrímsdóttir, fram- kvæmdastjóri lyflækningasviðs Landspítalans, sagði í samtali við mbl.is í gær að endurröðunin væri frekar flókin, starfsemin væri það viðamikil. Þá hefði starfsemin rask- ast mismikið eftir deildum. ingileif@mbl.is Vinna nú úr biðlistunum Gert er ráð fyrir vaxandi norðaustanátt í dag með tilheyr- andi snjókomu og éljum. Sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður einna hvassast norð- vestantil á landinu og suðaustantil um tíma um morguninn. Talið er að vindhraði geti náð um 13-20 metr- um á sekúndu kringum hádegið, en síðan dragi heldur úr vindi. Frost verður á bilinu 0 og 7 gráður. Á morgun má svo gera ráð fyrir norð- lægri átt á bilinu 10-18 metrar á sekúndu og verður hvassast á an- nesjum norðantil. Frost og norðaust- anátt í kortunum Morgunblaðið/Kristinn Vetrarhörkur Gera má ráð fyrir frosti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.