Morgunblaðið - 13.01.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015
Því var lýst í Morgunblaðinu ádögunum hvernig almanna-
tenglar hafa fengið aukið hlutverk í
vinnudeilum hér á landi. Gunnar
Steinn Pálsson, sem komið hefur að
margvíslegum almanna-
tengslamálum í
gegnum tíðina,
greindi frá aðstoð
sinni við lækna og
hvernig metið var
hverju skyldi svara
og hvort svarað
skyldi því sem fram
hafði komið í fjöl-
miðlum.
Andrés Jónssonalmannatengill
sagði frá því hvern-
ig farið hefði verið
„með sjúklinga og
aðstandendur í fjöl-
miðla í heila viku“
vegna ákveðins máls þar til tókst að
knýja fram tiltekna niðurstöðu.
Umsvif almannatengsla hafaaukist mjög á liðnum árum og
fyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar
beita þeim ákaft í þeirri viðleitni að
hafa áhrif á umræðuna.
Óvíst er að almenningur geri sérfyllilega grein fyrir þessu.
Ennfremur er óvíst að fjölmiðlum
takist alltaf að varast spuna sem
settur er fram með aðstoð fag-
manna. Slíkir fagmenn, innan og
utan fyrirtækja og stofnana, eru
mun fleiri en fjölmiðlamenn og því
við ramman reip að draga.
Reykjavíkurborg hefur til aðmynda á að skipa miklum her
sem sinnir skipulegri upplýs-
ingagjöf og tekst oft ákaflega vel
upp við að passa upp á ímynd borg-
arstjóra.
Brýnt er í þessu nýja umhverfiað fjölmiðlar jafnt sem al-
menningur séu á varðbergi gagn-
vart spunanum.
Andrés
Jónsson
Varúð: Spuni!
STAKSTEINAR
Gunnar Steinn
Pálsson
Veður víða um heim 12.1., kl. 18.00
Reykjavík -1 snjóél
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -13 léttskýjað
Þórshöfn 3 skúrir
Ósló -6 frostrigning
Kaupmannahöfn 7 skúrir
Stokkhólmur 1 alskýjað
Helsinki -13 heiðskírt
Lúxemborg 5 skýjað
Brussel 8 skýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 3 skýjað
London 12 skúrir
París 7 alskýjað
Amsterdam 10 skýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 6 skúrir
Vín 6 heiðskírt
Moskva 1 skýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 6 skúrir
Winnipeg -26 léttskýjað
Montreal -2 snjókoma
New York 2 slydda
Chicago -5 alskýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:00 16:14
ÍSAFJÖRÐUR 11:33 15:50
SIGLUFJÖRÐUR 11:18 15:32
DJÚPIVOGUR 10:36 15:36
Tvö ný myndbönd á vegum Vitund-
arvakningar um kynferðislegt, and-
legt og líkamlegt ofbeldi gegn börn-
um útskýra það ferli sem hefst
þegar kynferðisbrot gegn börnum
eru kærð. Myndböndin, sem hugsuð
eru hvort fyrir sinn aldurshópinn,
bera titilinn „Leiðin áfram“ og eru
ætluð sem einskonar vegvísir fyrir
fórnarlömb kynferðisofbeldis við að
leita sér aðstoðar. Í lok myndband-
anna kemur fram að þolendur geti
staðið uppi sterkari en áður, fái þeir
rétta hjálp.
„Við fengum upplýsingar um að
þeir sem verða fyrir kynferðislegu
ofbeldi viti ekki hvert þeir eiga að
snúa sér,“ segir Jóna Pálsdóttir, for-
maður Vitundarvakningar. Segir
hún að sérstaklega hafi verið reynt
að gera efnið aðgengilegt í gegnum
Google og að vefsíða verkefnisins
innihaldi ýmis lykilorð og setningar
sem ungt fólk er líklegt til að slá inn.
Átök hafa áhrif
Þriðjungur þeirra sem leita sér
aðstoðar hjá Neyðarmóttöku vegna
kynferðisofbeldis eru börn. Þor-
björg Sveinsdóttir hjá Barnahúsi
segir mörg börn koma fram, gagn-
gert vegna þess að þau hafi séð um-
fjöllun í fjölmiðlum eða kynning-
arefni á við Leiðina áfram.
„Internetið er veröld unga fólks-
ins. Ég held að „Leiðin áfram“ og að
sjá andlit fólksins sem þau geta leit-
að til hjálpi og opni þeim dyr þar
sem óvissan er oft það sem hindrar
þau í að segja frá,“ segir Þorbjörg.
„Það gleður okkur í Barnahúsinu
þegar við sjáum að þetta ber árang-
ur því hvert einasta barn skiptir
máli.“ annamarsy@mbl.is
Leiðin áfram fyrir
unga brotaþola
Vegvísir Leiðin áfram er tvö myndbönd sem eru ætluð sem vegvísir fyrir
fórnarlömb kynferðisofbeldis við að leita sér aðstoðar.
Myndbönd vísa fórnarlömbum veginn
Beðið er eftir hentugu tækifæri til
þess að flytja þær 250 MP5 vél-
byssur sem Landhelgisgæslan fékk
frá norska hernum fyrir um ári aft-
ur til Noregs. Þetta sagði Hrafn-
hildur Brynja Stefánsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í
samtali við mbl.is í gær.
Talsvert hefur verið fjallað um
málið, en Landhelgisgæslan taldi að
um gjöf væri að ræða frá Norð-
mönnum. Norski herinn hefur hins
vegar sagt að alltaf hafi staðið til að
greiðsla kæmi fyrir vopnin. Gæslan
hefur hins vegar sagt að ekki komi
til greina að kaupa byssurnar af
Norðmönnum. Ákveðið var að þær
yrðu fluttar aftur til Noregs og
hafa þær verið í geymslu undan-
farna mánuði. Þær voru innsiglaðar
af Tollgæslunni vegna þess að
flutningspappírar reyndust ekki í
lagi.
Til stóð að lögreglan fengi 150
MP5 byssur af þessum 250 og hefur
hún lýst áhuga á að hluti af byss-
unum verði keyptur. Ekki liggur
fyrir hvort af því verður.
Byssurnar eru
enn í landinu og
bíða flutnings