Morgunblaðið - 13.01.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Sesta stólar
Plastskeljastóll með stálgrind, staflanlegur.
Litir: Hvítur, svartur, rauður og glær.
Hönnun:
Skel: Stefano Sandona fyrir Infinity.
Grind: Sturla Már Jónsson, Sólóhúsgögn.
Verð kr. 32.000
www.facebook.com/solohusgogn
Íslensk hönnun
og framleiðsla
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Str. 36-56
50%
afsláttur
BUXUR Á
ÚTSÖLU
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Laxdal Laugavegi - Dásamleg dömubúð
Nú er tækifærið að versla gæða merkjavöru á góðu verði
VETRAYFIRHAFNIR FRÁ CREENSTONE OFL.
GERRY WEBER, SPARIDRESS OG KJÓLAR,
PEYSUR,BOLIR OG BUXUR,
FRANK LYMAN KJÓLAR OG M.FL.
www.laxdal.is
STÓRÚTSALA
30-40% AFSLÁTTUR
Verðmæti útflutts áls dróst saman
Fram kom í Morgunblaðinu 10. janúar sl. að verðmæti útflutts áls og ál-
afurða hefði aukist um 14 milljarða á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs, borið
saman við sömu mánuði árið 2013. Þetta er ekki rétt. Raunin er sú að svo-
nefnt fob-verðmæti þessa útflutnings var 200,9 milljarðar þessa mánuði 2013
en 196,3 milljarðar í fyrra og dróst því saman milli ára. Við vinnslu fréttar-
innar var upphaflega horft til tímabilsins frá janúar til október 2013 og 2014
og var skjalið svo uppfært af starfsmanni Hagstofunnar með nýjum tölum
fyrir nóvember. Vegna misskilnings var aðeins árið 2014 uppfært á þennan
hátt en ekki árið 2013 líka. Fyrir vikið voru mislöng tímabil 2013 og 2014 bor-
in saman í fréttinni. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verð á minkaskinnum á heimsmark-
aði er farið að hækka á ný eftir mikla
lækkun vegna offramboðs á síðasta
ári. Verðið hækkaði um 10% að með-
altali á fyrsta uppboði sölutímabils-
ins hjá danska uppboðshúsinu þar
sem íslenskir minkabændur selja af-
urðir sínar. Betri skinnin, þar á með-
al þau íslensku, hækkuðu meira en
lakari skinnin og fá þeir því meiri
hækkanir en meðaltalið segir til um.
Bilið breikkar
„Mér sýnist jákvæðast að bilið á
milli lakari skinna og þeirra betri
jókst. Það er hækkun að heita má á
öllum flokkum en alltaf meiri í betri
flokkunum. Við erum eitt þriggja
landa sem framleiða mest af skinn-
um í betri hlutanum þannig að þetta
er jákvætt,“ segir Björn Halldórs-
son, formaður Sambands íslenskra
loðdýrabænda.
Kínverskir kaupendur áttu
janúaruppboðið nánast með húð og
hári. Þar hefur veturinn verið kaldur
og þarf að fylla á pelsalagerana.
Annar mikilvægur markaður fyrir
minkaskinn er í lægð. Kaupgeta í
Rússlandi er lítil vegna falls rúbl-
unnar. Kaupendur þaðan halda því
að sér höndum. Verðið er hins vegar
enn það lágt að kaupendur fyrir
markaði í Evrópu og Norður-Amer-
íku keyptu skinn og vógu á móti sam-
drættinum í Rússlandi.
Styrkleikamerki
á markaðnum
Björn segir að fyrsta uppboð árs-
ins sé alltaf mikilvægt þótt ekki sé
það stórt miðað við þau sem verða
haldin síðar í vetur. Uppþotið sem
varð í uppboðssalnum fyrir ári, þeg-
ar snörp verðlækkun var að koma
fram, er dæmi um það. „Það gefur
vísbendingar um markaðinn. Þetta
er mikil hækkun og að allt skuli selj-
ast sýnir að mikil eftirspurn er eftir
skinnum. Það sýnir styrkleikamerki
á markaðnum.“
Vegna verðlækkunarinnar í fyrra
hættu einhverjir framleiðendur, að
minnsta kosti í Kína. Samt er fram-
boðið svipað og þá eða 82-84 millj-
ónir skinna. Á móti samdrættinum
þarf að selja eitthvað af skinnum frá
síðasta sölutímabili sem kaupendur
stóðu ekki við að kaupa.
Verðið var það lágt á síðasta ári að
fáir minkabændur hér á landi hafa
getað rekið bú sín með hagnaði. „Ég
ímynda mér að með þessu verði
séum við komin yfir vatnsyfirborðið,
ef það helst,“ segir hann.
Minkaskinn hækka
á ný á heimsmarkaði
Íslensku skinnin fóru á góðu verði í danska uppboðshúsinu
Ljósmynd/Einar E. Einarsson
Minkur Falleg skinn á leið á uppboð. Íslensku minkaskinnin eru þau þriðju
bestu í heiminum og þar með í hópi þeirra verðmætustu og eftirsóttustu.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alls bárust Leiðbeininga- og kvört-
unarþjónustu Neytendasamtakanna
8.038 erindi á síðasta ári, og fjölgaði
þeim um 27% frá því á árinu 2013.
Þar af voru 4.482 erindi sem sneru
að vörum eða þjónustu og var lang-
stærsti hluti þeirra kvartanir, eða
4.126, en 356 erindi voru spurningar
um tiltekna vöru eða þjónustu. Þetta
kemur fram í ársskýrslu Leiðbein-
inga- og kvörtunarþjónustunnar,
sem birt er á vef Neytendasamtak-
anna.
Í skýrslunni er fjöldi erinda
greindur út frá ýmissi tölfræði, eins
og til dæmis eftir mánuðum. Kom í
ljós að í fyrra bárust langflest erindi
til Neytendasamtakanna í janúar-
mánuði og svo aftur í júní og júlí-
mánuði. Hildigunnur Hafsteins-
dóttir, yfirmaður Leiðbeininga- og
kvörtunarþjónustunnar, segir að
mörg erindi berist þeim að jafnaði í
janúarmánuði. „Það eru kannski
ýmsar ástæður fyrir því, til dæmis
eru núna verðbreytingar og virðis-
aukaskattsbreytingar, auk þess sem
fólk er að skila og skipta jólagjöfum
og svo eru janúarútsölur.“ Hildi-
gunnur bætir við að flugverkföllin
síðasta sumar séu líklega stærsti
þátturinn í fjölda erinda í júní og
júlí.
Þegar farið er yfir efni þeirra er-
inda sem bárust vegna vörukaupa
kemur í ljós að langflest þeirra
sneru að tölvum, farsímum og raf-
tækjum. Hildigunnur segir það sýna
hversu mikið raftæki komi við sögu í
daglegu lífi fólks. Þá séu þau oftar
en ekki dýrari en aðrar vörur og fólk
því líklegra til þess að kvarta komi
upp galli í þeim.
Hildigunnur segir að þjónustan
snúist ekki bara um kvartanir, held-
ur sé einnig veitt ráðgjöf. „Við vilj-
um endilega heyra sem mest í fólki.“
Morgunblaðið/Ernir Eyjólfsson
Raftæki Flest erindanna sem berast snúa að tölvum og raftækjum.
Sífellt fleiri leita
sér ráðgjafar
Um 8.000 erindi til Neytendasamtakanna
Á vef Neytendasamtakanna,
www.ns.is, má lesa ýmsar
reynslusögur félagsmanna sam-
takanna og þau álitamál sem
samtökin hafa greitt úr. Í einu
dæmi sem greint er frá á heima-
síðunni hafði félagsmaður
keypt sér sturtuklefa, sem var
ýmsum eiginleikum gæddur, og
hafði bæði útvarp og nudd.
Klefinn virkaði þó ekki sem
skyldi, því að „heilinn“ í honum
reyndist bilaður. Tókst Neyt-
endasamtökunum að sjá til
þess að neytandinn fengi klef-
ann endurgreiddan.
Sturtuklefinn
„heilabilaður“
KVARTANIR