Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Tilgangurinn er að hvetjafjölskyldur til útiverusaman. Þetta er ekkipössun fyrir börnin, for-
eldrar þurfa að koma með. Sér-
staða okkar er sú að ferðirnar
okkar eru ekki á forsendum full-
orðna fólksins, heldur er allt
skipulagt á forsendum krakkanna,
það er talað við þau í ferðunum,
málinu er ekki beint til foreldr-
anna. Fyrir vikið er þetta ofboðs-
lega skemmtilegt og einmitt frá-
bært fyrir fjölskyldur þar sem
krakkar hafa kannski verið tregir
til að fara einir í útivist með þeim,
því í þessum ferðum hafa börnin
mikinn félagsskap hvert af öðru,“
segir Brynhildur Ólafsdóttir en
hún heldur utan um Ferðafélag
barnanna, sem er undirdeild í
Ferðafélagi Íslands.
Þau fara í margar ferðir yfir
árið, ýmist stuttar dagsferðir þar
sem fuglar eru skoðaðir, pöddulíf
rannsakað, gjótur og klettar kann-
aðir eða kræklingar tíndir, eða
lengri ferðir á Kjöl, yfir Lauga-
veginn, í Þórsmörk, til Vestmann-
eyja eða eitthvað annað.
Hvers vegna sjást norður-
ljósin bara stundum?
Fyrsta ferðin hjá þeim verður
nk. föstudag en það er dagsferð og
er hún helguð himingeimnum. Þá
verður stjörnu- og norður-
ljósaganga á Hellisheiði þar sem
Sævar Helgi Bragason, kennari í
Háskólalestinni, svarar öllum
spurningum um norðurljósin,
stjörnurnar og vetrarbrautina. Til
dæmis af hverju stjörnur eru mis-
munandi á litinn og hvers vegna
norðurljósin sjást bara stundum.
Allt er skipulagt á
forsendum krakkanna
„Við segjum stundum að ef krakkarnir komi heim í hreinum fötum úr ferðunum
hafi ekki verið neitt sérstaklega gaman,“ segir Brynhildur Ólafsdóttir sem heldur
utan um Ferðafélag barnanna, þar sem boðið er upp á ótalmargt skemmtilegt.
Klettaklifur Árið 2012 var Búrfellsgjá m.a. könnuð, gengið var á Búrfell,
ótal gjótur, gjár og hellar skoðaðir og allir fengu að prófa klettaklifur.
Hangið á brúninni Í könnunarleiðangri til Vestmannaeyja 25. ágúst 2012.
Nú þegar frost og snjór hylur jörð og
blessaðir fuglarnir eiga erfitt með að
ná sér í æti þurfum við mannfólkið að
muna eftir að gera sem við getum til
að létta þeim lífið.
Fuglavernd vekur sérstaka athygli
á því að grágæsirnar fari ekki allar af
landi brott eins og flest tegunda-
systkin heldur reyna þær að þreyja
þorrann og góuna og treysta þá á
gæsku mannfólksins þegar snjór er
yfir öllu.
Grágæsir þiggja alls kyns brauð-
meti og ekki skaðar að væta það í ol-
íu eða tólg eða annarri feiti.
Einnig eru veiðimenn hvattir til að
hlífa þeim gæsum sem hafa hér vet-
ursetu enda varla feitur biti.
Við sem sitjum inni í upphituðum
húsum þegar vindar blása úti og
frostið bítur og varnar skepnum að
verða sér úti um fæðu ættum að
gauka góðgæti að þeim sem úti búa.
Vefsíðan www.fuglavernd.is
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Grágæs Falleg er hún blessunin en vetur konungur getur verið harður við hana.
Hugið að fiðurfénu í frostinu
Fjöldi góðra tónlistarmanna ætlar að
gefa vinnu sína á styrktartónleikum
sem verða í kvöld kl. 20 í Hlégarði í
Mosfellsbæ. Meðal þeirra sem fram
koma eru Bubbi Morthens og Dimma,
Kaleo, VIO, Ágústa Eva, Steindi jr.,
Karl Tómasson og Guðmundur Jóns-
son.
Tónleikarnir eru haldnir til styrktar
Brynju Hlíf Hjaltadóttur sem lenti í
mótorhjólaslysi í haust og missti
mátt í báðum fótum. Brynja er dóttir
hjónanna Hjalta „Úrsusar“ Árnasonar
og Höllu Heimisdóttur og rennur all-
ur ágóði tónleikanna í styrktarsjóð
fjölskyldu Brynju.
Endilega …
… njótið tónleika í kvöld og
styrkið Brynju í leiðinni
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bubbi Kemur fram með Dimmu.
Meira en helmingur jarðarbúa býr í
bæjum og borgum. Á Indlandi eins og
víða um veröldina er tilhneiging til sí-
vaxandi þéttbýlismyndunar. En ekki
hafa allir nóg að bíta og brenna í
þeim mannmörgu borgum og því
þurfa margir að leita ýmissa ráða til
að verða sér úti um aur til viðurværis.
Upp á ýmsu er tekið til að vekja at-
hygli og þessir ungu götulistamenn í
Nýju Delí á Indlandi brugðu á það ráð
í upphafi nýs árs að klæða sig upp
sem goð hindúatrúar, mála sig sterk-
um litum og setja upp höfuðföt.
Ganga síðan um göturnar í þeirri
veiku von að einhverjir gauki að þeim
smáaurum. Litadýrðin hefur vænt-
anlega glatt einhvern aflögufæran.
Ýmislegt gert til að verða sér úti um viðurværi
Skrautlegir götulistamenn með
hangandi hendur um háls
AFP
Kíkt út Sannarlega er hann vel málaður þessi sem kíkir út úr þríhjóli.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.