Morgunblaðið - 13.01.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.01.2015, Blaðsíða 11
Táreynsla Það má fara úr skóm og sokkum ef mann langar til og setja tærnar ofan í vatn, leir eða drullu. Hér er skemmtileg táreynsla í ævintýralegri reisu Ferðafélags barnanna um gamla Kjalveg dagana 16.-18. ágúst 2013. „Samstarfið við Háskóla Ís- lands fór af stað á hundrað ára af- mælisári Háskólans 2011 og heitir Með fróðleik í fararnesti. Þetta eru allskonar ferðir með fræði- mönnum úr öllum deildum sem ausa af sínum viskubrunni. Þannig er þekkingin tekin út úr turninum og henni dreift til barna og for- eldra þeirra.“ Geta meira en við höldum Brynhildur segir að mottóið hjá Ferðafélagi barnanna sé að það megi gera allt. „Við segjum stundum að ef krakkarnir komi heim í hreinum fötum til baka úr ferðalagi með okkur, þá hafi ekki verið neitt sérstaklega gaman. Til dæmis má fara úr skóm og sokk- um ef mann langar til og setja tærnar ofan í vatn, leir eða drullu. Við köllum það táreynslu.“ Brynhildur segir að það sé enginn hámarks eða lágmarks- aldur barna í ferðirnar. „Í dagsferðunum er fólk oft með ung börn á bakinu eða framan á sér, en í lengri ferðunum höfum við verið með allt niður í fimm ára krakka, þau geta miklu meira en við höldum, þau þurfa fyrst og fremst að skemmta sér og við verðum að vera duglega að hvetja þau, segja þeim sögur svo þau gleymi sér.“ Þau finna ævintýri í öllu Brynhildur og maður hennar Róbert Marshall fara sem leið- sögumenn í flestrar ferðirnar með Ferðafélagi barnanna, en auk þess vinnur Brynhildur hjá Ferðafélag- inu sem leiðsögumaður í öðrum ferðum. „Við eigum stóran hóp af börnum og þau ruslast oft með okkur, enda er þetta það skemmti- legasta sem við gerum. Í þessum ferðum er allt önnur nálgun heldur en hjá fullorðnum, krakkarnir heyra og sjá annað og öðruvísi en við og þau eru oft að spá og spek- úlera í einhverju sem við erum löngu hætt að hugsa um. Þau finna ævintýri í öllu, ef það er hola þá er einhver búin að stinga haus í hana, ef við rekumst á köngulló þá er henni fylgt eftir, og þau sjá alls- konar tröll og myndir í klettum.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 AFP Bjarga sér Þeir fóru um göturnar í Delí og báðu vegfarendur um ölmusu. AFP Ullar Skemmta má þeim sem á vegi verða með því að reka út úr sér tungu.  Passið að börnin drekki vel á göngu. Jafnframt þarf að passa upp á að þau haldi ekki í sér pissi, því það getur leitt til þess að þeim verði kalt og fái verk í magann.  Alltaf ætti að bæta á sig fötum í stoppum. Líkaminn er fljótur að kólna niður þegar hann er ekki á hreyfingu.  Ullarfatnaður er að jafnaði besti ferðaklæðnaðurinn enda heldur ullin einangrunargildi sínu og er hlý þótt hún sé vot.  Bómullarfatnaður er afleitur ferðafélagi því bómullin verður bæði þung og köld þegar hún blotnar og þornar illa.  Gallabuxur eru aldrei leyfilegar á fjöllum enda beinlínis lífshættu- legt að verða blautur í slíkri flík.  Í miklum kulda á veturna er nauð- synlegt að bera feitt krem, t.d. sérstakt kuldakrem, á kinnarnar.  Ef barnið á að bera bakpoka þá ætti hann að vera mjög léttur, helst bara með nesti barnsins eða aukapeysu, húfu og vettlinga. Barn undir átta ára aldri ætti aldr- ei að bera meira en sem nemur einum tíunda af þyngd sinni.  Það getur verið ágætt að láta eldri börn hafa einn göngustaf og stilla hann rétt fyrir þeirra hæð. Stafir gera hins vegar minna gagn hjá yngri börnum og vilja oftast bara flækjast fyrir fótunum á þeim. Nokkur góð ráð fyrir foreldra þegar farið er með börn í ferð Gaman í gjótu Margt er brallað í ferðinum, t.d. gjóturannsóknir. Bómullarfatnaður er afleitur ferðafélagi í útivist Mér finnst rigningin góð Veðrið er allskonar á fjöllum og gott að vera vel búin. – Öll börn geta farið í ferðalag. – Við viljum gjarnan hafa vin okkar með. – Við viljum taka þátt í að skipuleggja ferðina. – Okkur langar til þess að ganga á undan og ákveða hraðann. – Við viljum hafa tíma til þess að leika og upplifa spennandi hluti. – Við viljum hafa tíma til að tala um það sem fyrir augu ber. – Við viljum fá eitthvað gott þegar takmarkinu er náð. – Við viljum hafa það notalegt á kvöldin þegar við erum að gista. – Við viljum ekki vera frosin úr kulda, blaut eða smeyk. Ferðareglur barnanna VILJUM GANGA Á UNDAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.