Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 14

Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er myndu ekki gera það fyrr en 19. janúar, einfaldlega til að koma upp- lýsingum til almennings á eins skýran og góðan hátt og kostur er,“ segir Sigurður. Hann segir að í þeim greiðslukerfum þar sem ekki hefur verið óskað eftir pinni, t.d. í flugvélum og netviðskipum, verði hlutirnir óbreyttir frá því sem verið hefur. Það gildir einnig um þau greiðslukort sem innihalda ekki ör- gjörva, ef segulrönd greiðslukorts er lesin verður áfram beðið um und- irskrift. Fá íslensk kort án örgjörva „Það er eitthvað af kortum í um- ferð sem eru eingöngu búin seg- ulrönd,“ segir Sigurður og nefnir erlenda ferðamenn sérstaklega í því samhengi. Þá eru einnig fríðinda- kort og inneignarkort oftar en ekki einungis búin segulrönd. Sigurður segir að þeir korthafar sem ekki geta notað pinnið eigi að leita til síns banka eða sparisjóðs og sækja um undanþágu. „Í samfélaginu eru korthafar sem einhverra hluta vegna geta ekki notað pinnið. Ýmist vegna fötlunar eða af heilsufarsástæðum. Þessir korthafar þurfa að leita til síns banka eða sparisjóðs og sækja um heimild til þess að fá áfram að ýta á græna takkann,“ segir Sigurður en allir kortaútgefendur eru með til- búnar lausnir fyrir þetta fólk. Ekki lengur hægt að ýta á græna takkann  Landinn þarf að leggja pinnið á minnið fyrir 19. janúar  Hægt er að sækja um undanþágu, t.d. vegna fötlunar Ljósmynd/Pinnið á minnið Átak Rúmlega þrjú og hálft ár er síðan farið var af stað með átaksverkefnið „Pinnið á minnið“ og hefur landanum gengið vel að tileinka sér nýjungina. SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Landsmenn komast ekki lengur upp með að ýta á græna takkann þegar greiðsla fer fram með greiðslukortum með örgjörva eftir 19. janúar. Þurfa þá allir að vera búnir að leggja „pinnið á minnið“. Þetta segir Sigurður Hjalti Krist- jánsson, verkefnisstjóri Pinnið á minnið. Átaksverkefnið gengur út á að koma á réttri notkun greiðslukorta með örgjörva á Íslandi og er átakið unnið samkvæmt heimild Sam- keppniseftirlitsins. Farið var af stað með verkefnið fyrir liðlega þremur og hálfu ári. Landsmönnum hefur gengið vel að tileinka sér breytinguna „Nú snýr posinn að þér og þú þarft að staðfesta með pinni,“ segir Sigurður og bætir við að landsmenn hafi almennt lagt pinnið á minnið og gengið vel að tileinka sér breyt- inguna. „Þar til nú hafa allir útgef- endur greiðslukorta heimilað að það sé ýtt á græna takkann,“ segir Sig- urður og að verkefnisstjórnin hafi óskað eftir því að kortaútgefendur færu mjúklega í að gera kröfu um staðfestingu með pinni til að tryggja að kortaviðskipti yrðu sem hnökralausust á aðlögunartíma- bilinu sem nú er að ljúka. Hann segir það hverjum og ein- um kortaútgefanda í sjálfvald sett hvenær þeir innleiða endanlegt fyrirkomulag. Í svari við fyrirspurn Morgun- blaðsins segja stóru viðskiptabank- arnir þrír að þeir muni allir innleiða breytinguna; að ekki fáist lengur undanþága frá lykilorðinu með því að ýta á græna takkann, hinn 19. janúar næstkomandi. „Við fórum fram á það að þeir „Pinnið á minnið“ » Frá og með 19. janúar nk. verður ekki komist hjá því að stimpla inn PIN-númer þegar greitt er með greiðslukorti. » Breytingin hefur ekki áhrif á þau kort sem innihalda ekki ör- gjörva og viðskipti þar sem ekki er óskað eftir PIN-númeri. Sveitarfélög bíða þess nú að ríkis- stjórnin ákveði hvernig vega skal á móti tekjumissi sveitarfélaganna vegna skattfrjálsrar úttektar sér- eignarsparnaðar og ráðstöfunar hans til greiðslu húsnæðislána og hús- næðissparnaðar. Alþingi samþykkti skömmu fyrir jól breytingartillögu meirihluta um- hverfis- og samgöngunefndar um að fella niður bráðabirgðaákvæði í frum- varpi um breytingar á tekjustofnalög- um, sem kvað á um greiðslu sérstaks framlags úr jöfnunarsjóði sveitarfé- laga vegna áhrifa laganna um sér- eignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðis- sparnaðar á tekjur sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfélaga mótmælti harðlega breytingartillög- unni og í bókun stjórnar sambandsins segir m.a. að með samþykkt hennar muni aukið fjármagn jöfnunarsjóðs vegna tekna af bankaskattinum dreif- ast til hluta sveitarfélaga en ekki þeirra allra. Fjárhagslegum sam- skiptum ríkis og sveitarfélaga yrði stefnt í voða og nægt tilefni væri kom- ið upp til að sveitarfélögin leituðu eft- ir því með öllum ráðum að taka yfir Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. „Við fengum þau svör að komið yrði til móts við þetta með frumvarpi þar sem þessu yrði kippt í liðinn,“ segir Halldór Halldórsson, formaður sam- bandsins, spurður um stöðu þessa máls í gær. ,,Það hafði verið um það rætt að sveitarfélögunum yrði bætt þetta upp að vissu marki. Ákveðið hlutfall af aukatekjum ríkisins af bankaskattinum fer í jöfnunarsjóðinn eins og af öðrum tekjum ríkissjóðs en í þessu tilfelli fer það hugsanlega til sveitarfélaga sem verða ekki fyrir skerðingu. Við töldum okkur nálgast þetta best með þeim hætti að þessu yrði úthlutað sérstaklega í samræmi við útsvarstekjur.“ Bíða eftir ákvörð- un ríkisstjórnar  Vilja fá bætt tekju- tap vegna skattfrjáls- rar úttektar séreignar Morgunblaðið/Ómar Alþingi Ákvæði um að bæta sveitar- félögum tekjumissi var fellt út. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Framkvæmdir vegna lagningar ljós- leiðara og annarra lagna og lína hafa oft komið inn á borð Minjastofnunar Íslands og hafa þau mál verið tekin fyrir hvert fyrir sig. Ekki hafa orðið til skriflegar verklagsreglur í kring- um þessar framkvæmdir, hvorki af hálfu Minjastofnunar né skipulags- yfirvalda. Slíkar reglur eru hins- vegar í undirbúningi hjá Minja- stofnun samhliða vinnu við reglu- gerð með lögum um menningar- minjar. „Við vinnum að þessu núna til að tryggja að við verðum með frá upphafi í framkvæmdunum,“ segir Uggi Ævarsson, minjavörður á Suðurlandi. Hugmyndin er sú að verklagsregl- urnar verða sendar byggingar- fulltrúum hvers sveitarfélags svo þeir geti kynnt sér þær og eins framkvæmdaaðilum. Verklagsregl- urnar verða að öllum líkindum til- búnar í febrúar, að sögn Kristínar Huldar Sigurðardóttur, forstöðu- manns Minjastofnunar. Flestir ljósleiðarar eru lagðir í vegaxlir og þar eru ekki miklar líkur á að rekast á fornminjar. Málið vandast ef stytta á sér leið í gegnum óraskað land sem og ef leggja á heimtaugar yfir bæjarhól eða gömul bæjarstæði. Þar eru að öllum lík- indum fornminjar í jörðu. „Aðalmálið er að koma í veg fyrir að menningarminjar eyðileggist og að þetta sé gert í góðri samvinnu. Það ætti ekki að vera stórkostlegt mál. Við viljum ekki vera í löggu- leik,“ segir Uggi. Hann bendir á að ef minjavörður fengi upplýsingar um þær leiðir sem ljósleiðarinn yrði lagður þá væri hægt að ganga úr skugga um hvort mögulega væru einhverjar fornminjar í jörðu með því að fá fornleifafræðing á staðinn og taka út svæðið. Með því væri hægt að sneiða hjá skemmdum á stöðum sem eru augljósir minjastað- ir. Ef leikur vafi á hvort minjar eru líklegar á viðkomandi stað er það Minjastofnunar að ákveða hvaða meðulum skuli beitt. Síðustu mánuði var unnið að því að leggja ljósleiðara í sveitarfélagið Ölfus. Uggi fylgdist með fram- kvæmdunum sem gengu vel fyrir sig. „Í eitt skipti þurfti ég að biðja þá um að stækka beygjuna svo ekki yrði farið utan í hlaðinn vegg. Þeir urðu við því og það var lítið mál,“ segir Uggi og ítrekar mátt samvinn- unnar og þess að koma þessum mál- um í farveg verklagsreglna því ann- ars verði sú hætta til staðar að minjaverðir frétti utan af sér að byrjað sé á framkvæmdum af þessu tagi. Þá sé undir hælinn lagt hvort þeir verði fyrri til að taka út fyrir- huguð framkvæmdasvæði en plóg- urinn. Ljósmynd/Jim Smart Fornleifauppgröfturinn í Aðalstræti Ýmsar fornminjar leynast í jörðu. Líkur á fornleifum í bæjarstæðum  Minjastofnun semur verklagsreglur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.