Morgunblaðið - 13.01.2015, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.01.2015, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri höfuðborgarsvæðisins, og Dagur B. Eggertsson, borg- arstjóri, undirrituðu í gær nýjan samstarfssamning um átak gegn heimilisofbeldi. Er markmiðið að tryggja öryggi borgarbúa á heim- ilum sínum með því að veita þol- endum og gerendum betri þjónustu og bæta stöðu barna sem búa við heimilisofbeldi. Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri, segir að með samkomulaginu verði farið í nánara samstarf við lögregluna en áður. Nú verði farið í auknum mæli inn á heimili þegar mál af þessu tagi komi upp til þess að veita stuðning, bæði á vettvangi og strax í kjölfarið. „Markmiðið er að rjúfa vítahring heimilisofbeldis og taka á þessu samfélagsmeini sem það er á markvissari hátt en áður.“ sgs@mbl.is Saman gegn ofbeldi  Nýtt samkomulag lögreglu og borgar Morgunblaðið/Júlíus Undirritun Sigríður Björk og Dagur standa saman gegn ofbeldi. Ráðnir hafa verið þrír einstaklingar í stöðu yfirlækna við Landspítalann. Sigrún Edda Reykdal hefur verið ráðin yfirlæknir blóðlækninga. Sig- rún lauk námi frá læknadeild Há- skóla Íslands í júní 1985. Hún stund- aði framhaldsnám í almennum lyflækningum og blóðlækningum í Bandaríkjunum 1989-1996. Sigrún var settur yfirlæknir blóðlækninga frá september 2014. Gunnar Bjarni Ragnarsson hefur verið ráðinn yfirlæknir krabba- meinslækninga. Gunnar lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands í október 1998. Hann stundaði framhaldsnám í al- mennum lyflækningum og krabba- meinslækningum í Bandaríkjunum 2002-2008. Starfaði hann í þrjú ár sem krabbameinslæknir í Banda- ríkjunum en var ráðinn sérfræðing- ur í krabbameinslækningum við Landpítala í júlí 2011. Þá hefur Sigríður Þ. Valtýsdóttir verið ráðin yfirlæknir almennra lyf- lækninga. Sigríður lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands í júní 1993. Hún stund- aði framhalds- nám í almennum lyflækningum og gigtarlækningum í Svíþjóð 1995- 1999 og lauk doktorsnámi 2001. Frá október 2008 til ágúst 2014 starfaði Sig- ríður sem yfirlæknir á Heilbrigðis- stofnun Vesturlands á Akranesi eftir sex ár sem almennur lyflæknir og gigtarlæknir í Svíþjóð. ash@mbl.is Þrír yfirlæknar ráðnir á LSH Morgunblaðið/Ómar LSH Þrír yfirlæknar voru ráðnir.  Yfir blóðlækningum, krabbameins- lækningum og almennum lyflækningum Gunnar Bjarni Ragnarsson Sigrún Edda Reykdal Sigríður Þ. Valtýsdóttir Strætó bs. hefur fest kaup á 20 nýj- um strætisvögnum sem verða til- búnir til afhendingar á næstu dög- um. Í tilkynningu frá Strætó segir að vagnarnir, sem allir eru af gerð- inni IVECO Crossway LE, séu með vél skv. URO 6 staðli og mengi því og eyði minni olíu en aðrir bílar hjá Strætó. Einnig hafa minniháttar út- litsbreytingar verið gerðar á vögn- unum og í þeim eru ný og endur- bætt farþegasæti, ásamt full- komnum myndavélabúnaði sem eykur öryggi farþega og vagn- stjóra. Vagnarnir geta tekið 89 far- þega, 35 í sæti og 64 standandi. Í tilkynningunni segir að mikil- vægt sé að yngja þá til þess að halda rekstrarkostnaði í lágmarki og halda í við kröfur um öryggi og gæði. Nýir vagnar sem menga minna Nýr Strætó keypti 20 nýja vagna. ÞORRAMATUR Skútan Í LOK JANÚAR BLÓTUMVIÐ ÞORRANN EINS OG SÖNNUM ÍSLENDINGUM SÆMIR. Súrmatinn útbúum við sjálfir frá grunni og byrjar undirbúningur þessa skemmtilega tí ma strax að hausti. Þorramatinn er hægt að fá senda í sali, heimahús og panta í veislusal okkar. Allt um þorramatinn, verð og veislur á heimasíðu okkar. ÞJÓÐLEG ÞORRAHLAÐBORÐ FRÁVEISLULIST www.veislulist.is Veislulist - Skútan · Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.