Morgunblaðið - 13.01.2015, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 13.01.2015, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Grænlend-ingarveittu Kín- verjum í liðinni viku leyfi til að vinna járn í stórum stíl á Grænlandi. Leyfið hafði áður verið veitt bresku fyrirtæki, sem nú er gjaldþrota. Miklar vonir kviknuðu á Grænlandi þegar námafyrir- tækið London Mining gerði samning um stórfellda vinnslu á járni í október 2013. Talað var um að mörg hundr- uð störf myndu skapast á Grænlandi auk þess sem á milli tvö til þrjú þúsund verkamenn kæmu frá Kína. Hægt yrði að vinna járn úr námunum í 15 ár og Græn- lendingar fengju tæplega 665 milljarða króna skatttekjur. Ekkert varð hins vegar úr þessum áætlunum vegna þess að járn hrapaði í verði. Hið skuldum vafða breska fyrir- tæki, sem var með járnnámur í Afríku, lenti í vandræðum þegar verðið hrundi og ebólu- faraldurinn gerði síðan út um reksturinn. Samkomulagið við Kínverj- ana var gert í lok desember. Fyrirtækið, sem nú hefur réttindin, heitir því vinalega nafni General Nice og er með höfuðstöðvar í Hong Kong. Fyrirtækið er með rúmlega 100 dótturfyrirtæki í 80 lönd- um. Það rekur einkum kola- og járnnámur og hefur mest umsvif í iðnaðarbænum Tianj- in í norðausturhluta Kína. Námaréttindin eru í raun verðlaus sem stendur, en það gæti breyst taki verðið á járni við sér á ný. Kínverjar hafa löngum haft augastað á Grænlandi. Í mars í fyrra gerði kínverskt fyrir- tæki samkomulag við græn- lensk yfirvöld um stuðning við fyr- irætlanir um að vinna úran og aðra fágæta málma úr jörðu. Græn- lenska þingið ákvað 2013 að binda enda á 25 ára bann við vinnslu úrans, þóríums og annarra málma úr jörðu. Kínverjar hafa lengi sýnt Íslandi áhuga. Sá áhugi hefur verið tengdur því að nú sé ís- inn að hverfa og siglingaleiðir yfir norðurpólinn að opnast, en í raun nær hann lengra aft- ur. Ekkert land rekur jafn fjölmennt sendiráð á Íslandi og Kína og erfitt að sjá að um- fang samskiptanna kalli á þau umsvif. Áhugi Kínverja á Græn- landi er ekki óskyldur áhug- anum á Íslandi. Þeir hafa mik- inn áhuga á málefnum norðursins og starfsemi Norðurskautsráðsins. Með því að ná fótfestu á Grænlandi kunna Kínverjar að líta svo á að þeir eigi auðveldara með að rökstyðja áhuga sinn og halda því fram að þeir eigi hags- muna að gæta. Vinnsla á sjaldgæfum málmum, sem til dæmis eru mikilvægir í framleiðslu far- síma og tölva, fer að miklu leyti fram í Kína og suma þeirra er ekki víða að finna í heiminum. Fái Kínverjar að- gang að vinnslu þeirra á Grænlandi myndu þeir tryggja einokunarstöðu, sem öðrum stóveldum hugnast lítt. Grænlendingum veitir ekki af innspýtingu í efnahagskerfi sitt, en það þýðir ekki að loka megi augunum fyrir því að hjá efnahagsrisanum í austri er oft beint samhengi á milli um- svifa fyrirtækja og hagsmuna ríkisins. Hjá efnahags- risanum í austri er oft beint samhengi á milli umsvifa fyrirtækja og hagsmuna ríkisins} Umsvif Kína í norðri Nú styttist í aðraforkan í landinu verði upp- seld, að því er fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær. Hæg en stöðug aukning hefur verið á orkunotkun í landinu og hafa orkukaupend- ur fengið að finna fyrir minnk- andi samkeppni af hendi selj- enda. Landsvirkjun hefur beitt sér mjög fyrir því að unnið verði að undirbúningi að lagn- ingu rafstrengs til Bretlands og ýmsir aðrir hafa sýnt því nokkurn áhuga. Í því efni hef- ur áhersla verið lögð á að næg um- framorka sé í land- inu og að ekki þurfi að fara út í stór- felldar virkjanir til að standa undir sæstrengnum. Mikilvægt er í umræðu um mögulega raforkusölu um sæ- streng, líkt og önnur mál af þeirri stærðargráðu, að for- sendur séu réttar. Nauðsyn- legt er áður en lengra er haldið í þeirri umræðu og undir- búningi þess máls að gera grein fyrir því hvað slíkur strengur myndi þýða í nýjum virkjanaframkvæmdum. Hvar á að virkja vegna raforkusölu um sæstreng?} Orkan uppseld A fbrigði af minnimáttarkennd er meðal þess sem skýrir þá auðmýkt gagnvart útlendingum sem oft gætir meðal Íslendinga. Komi er- lendir spámenn með fulla vasa af peningum hingað til lands fá þeir yfirleitt prýði- legar viðtökur, það er ef þeir leggja áferðarfal- legar viðskiptaáætlanir á borðið. Úti á landi er hljómgrunnurinn yfirleitt bestur, þar sem við- kvæði sveitarstjórnarmanna er að nú skapist ný störf og tækifæri til vaxtar og viðgangs. At- hafnamönnum þessum – ólígörkum allra þjóða – bjóðast ýmis afsláttarkjör enda hagsmunir í húfi. Reynsla eftirhrunsáranna hefur þó sýnt okkur að fæst af verkefnum þeim sem útlend- ingarnir kynna verða að veruleika. Forsvars- menn Landsvirkjunar spurði ég fyrir all- mörgum árum hvort algengt væri að spekúlantar litu þar inn með hugsanleg orkukaup í huga. Orkusalarnir brostu í kampinn og staðfestu að slíkir erind- indrekar væru oft á ferðinni. Endursagt á mannamáli var svarið að frá skrifstofunni væru stöðugar ferðir í bakaríið að kaupa vínarbrauð handa gestum; mönnum sem hafa heim- inn allan undir þegar þeir leita að fjárfestingarkostum. Haustið 2009 var blaðamönnum og fleiri boðið austur í Þorlákshöfn þar sem forsvarsmenn sveitarfélagsins kynntu þá mikla möguleika til atvinnuuppbygginga sem þar væru til staðar. Farið var vítt um sveitarfélagið og tekin sól- arhæð. „Á síðustu árum hafi á þriðja tug erlendra aðila kynnt sér staðhætti í Ölfusi með uppbyggingu þar í huga; fyrirtæki í álframleiðslu, sólarkísilvinnslu og fleiru. Slíkur stóriðnaður kallar á góða hafn- araðstöðu,“ sagði í frétt Morgunblaðsins um þennan leiðangur. Nú, meira en fimm árum eftir að þessi frásögn birtist, hefur fátt gerst þar eystra. Engin eru iðjuverin og Bitruvirkj- un á Hellisheiði hefur enn ekki verið reist. Og við getum haldið áfram. Gagnaver á Blönduósi hefur reynst tálsýn ein svo og heilsuþorp á Flúðum og í Mosfellsbæ og einkasjúkrahús á Miðnesheiði. Olíuhreinsunarstöð á Vest- fjörðum og í Skagafirði urðu aldrei að veru- leika, koltrefjaverksmiðjan á Króknum er ókomin og allar áætlanir um rafkaplaverk- smiðju á Seyðisfirði runnu út í sandinn. Þá var tómatagróðurhúsið mikla sem átti að vera í Grindavík skýjaborgin ein. Þá hefur staðið til að reisa vatnsverksmiðjur hér og þar á landinu en skemmst er frá því að segja að þær fyrirætlanir hafa aldrei komst á flot. Ósanngjarnt væri að fullyrða að allar þær áætlanir sem nefndar eru hér að framan hafi verið helberar sjónhverf- ingar: tilraunir til að blekkja ístöðulausa Íslendinga. Allir vilja sinni byggð vel og taka auðvitað fagnandi hverju nýju tækifæri sem kemur inn á radarinn. En almennt talað þá mættu margir hér á landi taka með meiri fyrirvara agentum frá útlöndum, sem koma til Íslands í þeim eina tilgangi að kanna aðstæður. Finnst fínt að borða íslensk vínarbrauð, daginn áður en þeir fljúga handan um höf og láta ekki sjá sig framar. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Spekúlantar borða vínarbrauð STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Enn ríkir óvissa um stöðugengistryggðra lána,tæpum fimm árum eftirað Hæstiréttur Íslands dæmdi gengisviðmiðun lána ólög- lega. Mun Hæstiréttur á næstunni dæma í tveimur málum er snúa að ágreiningsatriðum vegna útreikn- inga gengistryggra lána. Mál þessi varða fullnaðarkvittanir og vaxta- greiðslur aftur í tímann en það sem greinir málin tvö að er að í öðru þeirra er um vanskil viðskiptavinar að ræða en í hinu hefur viðkomandi staðið í skilum. Síðastliðinn föstudag féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem fjármögnunarfyrirtækinu Lýsingu var gert að endurgreiða konu rúm- lega 380.000 krónur ásamt vöxtum vegna ofgreiddra vaxta af bílaláni sem hún tók hjá fyrirtækinu árið 2007. Var Lýsing að auki dæmt til að greiða málskostnað konunnar með álagi, rúmlega 1.880.000 krónur, og eina milljón króna sekt til ríkissjóðs þar sem fjármögnunarfyrirtækið fór ekki að fyrri dómi sem féll í máli konunnar snemma á síðasta ári. Þá kemur einnig fram í dómsorði hér- aðsdóms að Lýsing þurfi að gefa út afsal fyrir umrædda bifreið til kon- unnar. „[Í fyrra dómsmálinu] krafðist hún þess að fá nýjan endurútreikn- ing á láni sínu hjá Lýsingu þar sem tekið yrði mið af fullnaðarkvitt- unum. Lýsing taldi hins vegar að hún skuldaði enn 700.000 krónur en hún var búin að reikna það út að hún væri búin að borga þetta og ætti inni um 400.000 krónur,“ segir Sigurvin Ólafsson, lögmaður konunnar. Héraðsdómur vísaði aðal- og varakröfu konunnar frá dómi þegar málið var tekið fyrir í apríl síðast- liðnum en féllst hins vegar á þrauta- varakröfu þess efnis að Lýsingu væri óheimilt að krefja hana um frekari vaxtagreiðslur en hún þegar hafði greitt frá 2007 til 2010 við end- urreikning lánsins. Töldu hana ekkert eiga inni Þegar þriggja mánaða áfrýj- unarfrestur rann út hafði lögmað- urinn samband við Lýsingu og bað hann fyrirtækið um nýjan útreikn- ing á bílaláni konunnar. „Þá sendu þeir bara aftur sama útreikning, sem tekur ekki mið af fullnaðargreiðslum, og sögðu hana ekkert eiga inni og skulda enn 700.000 krónur,“ segir Sigurvin og bætir við að konan hafi því í raun verið neydd til þess að höfða nýtt mál fyrir héraðsdómi og fékkst sem fyrr segir niðurstaða í því fyrir síð- ustu helgi. Lýsing unir ekki dómi Í samtali við Morgunblaðið seg- ir Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Lýsingar, fjármögnunarfyrirtækið nú þegar hafa tekið ákvörðun um að áfrýja þessum dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. „Ástæðan fyrir þessari ákvörð- un er sú að ekki er á nokkurn hátt hægt að fallast á niðurstöðu dóm- arans,“ segir Þór og heldur áfram: „Þetta mál er afskaplega sérstakt, eins og segir raunar berum orðum í dómi héraðsdóms, og varðar ýmis réttarfarsleg atriði sem ágreiningur er um. Það er því einfaldlega sjálf- sagt að fá Hæstarétt til þess að skera úr um þessi atriði. Réttar- farssekt í málinu er því gersam- lega fráleit í því ljósi,“ segir hann en að öðru leyti vill Þór lítt tjá sig um mál einstakra viðskiptavina þegar enn á eftir að fá endanlega nið- urstöðu í þeim fyrir dóm- stólum. Lýsing varð undir í héraði en mun áfrýja Morgunblaðið/Eggert Fjármögnunarfyrirtæki Upplýsingafulltrúi Lýsingar segir fyrirtækið nú þegar hafa tekið ákvörðun um að áfrýja nýföllnum dómi héraðsdóms. Jóhannes S. Ólafsson, lögmað- ur hjá Impact lögmönnum sem m.a. reka sérþjónustu á sviði gengistryggingarmála, segir að nýfallinn dómur Héraðsdóms Reykjavíkur sé að sínu mati hárréttur þótt vissulega megi deila um hvort rétt sé að dæma réttarfarssekt líkt og gert var. Spurður við hverju megi bú- ast þegar málið fer fyrir Hæstarétt Íslands svarar Jó- hannes S.: „Ég spái því að málið vinnist efnislega, líkt og mín mál sem fara fyrir Hæstarétt nú í febr- úar. Í raun bendir ekkert til annars. En ég veit svo sem ekki hvað verður gert við réttar- farssektina og álagið. Það er ómögulegt að segja fyrir um það.“ Á von á efnis- legum sigri DÓMUR SAGÐUR RÉTTUR Hæsti- réttur Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.