Morgunblaðið - 13.01.2015, Side 24

Morgunblaðið - 13.01.2015, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 ✝ Anna SigurrósSigurjóns- dóttir fæddist í Hafnarnesi við Fá- skrúðsfjörð 13. janúar 1937. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað 2. janúar 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigurjón Níelsson, f. á Fá- skrúðsfirði 2.4. 1892, d. 7.1. 1971, og Björg F. Bergsdóttir, f. á Krossi Beruneshr. 21.4. 1899, d. 28.4. 1973. Systkini Önnu Sigurrósar eru Alberta, f. 19.8. 1916, d. 29.2. 2004, Svanhvít, f. 3.10. 1917, d. 7.10. 1991, Ingólfur, f. 7.8. 1919, d. 18.1. 2000, Björg, f. 11.9. 1920, d. 8.10. 2010, Ottó, f. 10.10. 1922, d. 23.5. 2005, Laufey, 11.3. 1927, d. 12.2. 2009, Guðrún, f. 25.4. 1929, hann þrjú börn og fjögur barnabörn. 3) Sigurjón, f. 2.4. 1959 eiginkona hans er Guð- rún Þóra og eiga þau fjögur börn og sjö barnabörn. 4) Kristján, f. 5.5. 1960. 5) Lauf- ey Sigríður, f. 2.9. 1962, eig- inmaður Eggert Ólafur og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. 6) Guðbjörg Þór- dís, f. 11.5. 1964, eiginmaður Einar Sverrir, eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. 7) Ei- ríkur, f. 1.12. 1970, eiginkona hans er Jóhanna Linda og eiga þau tvær dætur. 8) Sig- urður Nikulás, f. 9.3. 1977. Anna Sigurrós ólst upp í Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, 16 ára gamallar lá leið hennar á vertíð suður í Sandgerði þar sem hún vann hjá Miðnesi ásamt því að vera ráðskona á bát. Þar kynntist Anna Krist- jáni. Árið 1956 lá leið þeirra austur á Eskifjörð þar sem þau hófu búskap og bjuggu þar alla tíð. Anna var hús- móðir mestan hluta ævi sinn- ar. Útför Önnu fór fram frá Eskifjarðarkirkju 10. janúar 2015. Bergþóra, f. 7.7. 1930, d. 14.1. 2010, Níels, f. 24.9. 1931, Jó- hanna, f. 6.11. 1932, Sigurveig, f. 3.1. 1934, Lára, f. 29.5. 1938, og Ragnar, f. 19.11. 1945. Hinn 25. des- ember 1957 giftist Anna eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristjáni Ragnari Bjarnasyni frá Eski- firði, f. 21.8. 1935. Foreldrar hans voru Bjarni Kristjáns- son, f. 13.2. 1911, d. 23.1. 1998, og Laufey Sigurð- ardóttir, f. 23.9. 1914, d. 30.8. 2001. Anna og Kristján eign- uðust átta börn, þau eru: 1) Jóna Björg, f. 14.5. 1956 og á hún fimm börn, níu barna- börn og tvö langömmubörn. 2) Bjarni, f. 2.7. 1957 og á Elsku amma. Ég trúi ekki að ég sé að kveðja þig í hinsta sinn, en ég vil trúa því að núna sért þú komin til ömmu og afa í Hafnarnes, þinn uppáhaldsstað. Ég hef reyndar notið þeirra forréttinda að hafa þig og afa í næsta húsi allt mitt líf og hef því átt ótrúlega margar og skemmtilegar stundir með þér. Allar þær minningar sem ég á um þig hafa verið mér ofarlega í huga undanfarnar vikur. Eins og þegar ég kom alltaf til ykkar í Bleiksárhlíðina í fallega húsið sem þið byggðuð. Alltaf fékk maður hlýtt faðmlag, gott spjall og varst þú alltaf tilbúin að gera allt fyrir mig. Upp úr standa minningar þegar við sátum við eldhúsborðið og spiluðum rommý, yatzy og þú kenndir mér að leggja kapal og spjöll- uðum, hlógum og skemmtum okkur vel. Einnig hvað þú ljóm- aðir og skemmtir þér vel við að vera í eldhúsinu að baka og elda. Þegar ég fór að hugsa um öll bingóin sem við fórum á var ekkert annað hægt en að brosa, þar sem við sóttum bingó til næstu fjarða líka og þekkt á Austurlandi sem „bingófjöl- skyldan“. Mikið á ég eftir að sakna þessara stunda. Ég man líka hvað það var gaman að fara með þér í Hafn- arnes og heyra þig segja sögur frá því þú áttir heima þar. Þú hafðir lag á að kenna manni ýmislegt, ég man hvað þú varst stolt af mér þegar ég kom með prjóna og garn til þín og bað þig um að kenna mér að fitja upp, loksins lærði ég það svo kom að því að ég kom til þín og bað þig að kenna mér. „Hvað get ég kennt þér?“ var svarið, jú það var eitthvað sem þú gast kennt mér og það var að prjóna þumal. Svo fannst mér svo gam- an að baka fyrir ykkur afa upp úr uppskriftabókunum þínum og hvað þið voruð þakklát fyrir það og ánægð að geta boðið upp á kökurnar sem þú varst vön að baka. Þú varst alltaf svo þakklát fyrir allt sem maður gerði fyrir þig, sama hversu lítið mér fannst það vera. En núna verð ég að hugga mig við þær fjölda- mörgu minningar sem ég á um þig og þær myndir sem ég á. Ég elska þig endalaust mikið elsku amma mín, eins yndislega manneskju eins og þig er ekki auðvelt að finna. Elsku afa minn og Stjána þinn skal ég hugsa vel um. Minning þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Þín Þóra. Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir ✝ Magnús H.Magnússon fæddist á Sauð- árkróki 6. nóv- ember 1932. Hann lést á líknardeild Landspítalans 4. janúar 2015. Foreldrar hans voru Hólmfríður El- ín Helgadóttir, f. 14. janúar 1900, d. 22. júní 2000, og Magnús Halldórsson, f. 30. maí 1891, d. 13. desember 1932. Systkini hans eru Sigríður, f. 20. júlí 1925, Regína Margrét, f. 14. mars 1927, Dóra Ingibjörg, f. 7. júní 1928, Margrét Helena, f. 1. janúar 1930, d. 3. mars 2014, Jón arsson börn þeirra, Einar Magn- ús, Arnar Steinn og Bjarki Þór. 3) Sigríður, f. 31. maí 1963, maki Sturla Jónsson börn þeirra, Ína Salome og Jón Ágúst. 4) Magnús, f. 5. nóvember 1964, börn hans, Ívar Örn, Rósa Jóna og Róbert. Barnabarnabörnin eru orðin 10 talsins. Magnús lærði bifvélavirkjun við Iðnskóla Sauðárkróks, fékk síðar meistararéttindi í bifvéla- virkjun 14. október 1959. Hann vann fyrst um sinn hjá Kaup- félagi Skagfirðinga. Flutti suður 1958, hóf störf hjá Vélsmiðju Hafnarfjarðar. Stofnaði síðan eigin rekstur 1969 til 1982. Það- an fór hann til Ofnasmiðjunnar og endaði síðan starfsferil sinn hjá Olíudreifingu. Magnús var virkur þátttakandi í karlakórn- um Þröstum frá árinu 1959, og seinni ár með eldri Þröstum. Útför Magnúsar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. janúar 2015, kl. 15. Ósmann, f. 28. júní 1931. Hinn 14. jan- úar 1961 gekk Magnús að eiga eft- irlifandi eiginkonu sína, Sigríði Bjarna- dóttur, f. 22 mars 1932, úr Hafn- arfirði. Foreldrar hennar voru Júlía Magnúsdóttir og Bjarni Erlendsson, bæði látin. Magnús og Sigríður eignuðust fjögur börn. Þau eru 1) Hólmfríður, f. 29. október 1960, maki Árni Guðnason börn þeirra, Ásbjörn Árni, Sigríður Maggý, Ágústa Guðný og Magnús H. 2) Hildur, f. 3. júlí 1962, maki Þorsteinn Ein- Elsku pabbi. Það er erfitt til þess að hugsa að þú sért farinn og komir aldrei aftur eftir stutt en erfið veikindi. Söknuðurinn er mikill hjá okkur en eftir sitja margar góðar og skemmtilegar minningar um þig. Pabbi fæddist á Sauðárkróki og var yngstur sex systkina. Hann missti pabba sinn þegar hann var aðeins sex vikna gamall. Um sex ára aldur fór hann um sumarið í til bróður ömmu, Magnúsar, og konu hans Jónu í Héraðsdal í Lýtingsstaða- hreppi og sjö ára að aldri fór hann þangað alveg í fóstur ásamt systkinum sínum Jónsa og Reg- ínu og var þar til fermingarald- urs. Flutti þá til Sauðárkróks til móður sinnar og hóf fljótlega nám í Iðnskóla Sauðárkróks í bif- vélavirkjun og lauk því námi árið 1950 og fékk meistararéttindi ár- ið 1959. Árið 1958 kynntust mamma og pabbi, þau giftu sig 14. janúar árið 1961. Þau eign- uðust okkur systkinin á fimm ár- um frá árinu 1960-1964. Og var oft mikið fjör á heimilinu. Pabbi og mamma byrjuðu sinn búskap hjá ömmu og afa á Suðurgötu 49. Árið 1966 fluttum við á Álfaskeið 95 sem pabbi byggði og bjuggum við þar til ársins 1980. Þá byggði hann Smárahvamm 12 og bjugg- um við þar til ársins 1996 en þá vorum við flogin úr hreiðrinu. Fluttu þau síðan í Klettabyggð og þaðan í Skipalónið. Pabbi og mamma voru mjög samheldin hjón, ferðuðust mikið og eigum við öll mjög góðar minningar frá þeim ferðum. Þau voru mjög dugleg að ferðast með okkur á sumrin, í útilegur og veiðiferðir. Einnig voru þær margar ferðirn- ar á Sauðárkrók í heimsókn til ömmu og frændfólks. Ekki má gleyma sunnudagsrúntinum sem endaði alltaf á bílasölum og bíla- sýningum enda var aðaláhuga- mál pabba bílar og var hann allt- af á hreinum og nýbónuðum bíl og skipti reglulega um bíla. Árið 1995 byggðu pabbi og mamma sumarbústað í Vaðnesi sem heitir Grund og var það þeirra sælu- reitur. Þar áttum við margar skemmtilegar og góðar samveru- stundir sem gleymast aldrei. Pabbi var alltaf eitthvað að dunda þar enda mjög handlag- inn, duglegur, vinnusamur og einnig listrænn í sér. Hann stoppaði aldrei, eins og mamma sagði oft. Hann varð allaf að vera að gera eitthvað. Hann pabbi okkar gat allt. Þegar pabbi hætti að vinna sat hann ekki auðum höndum. Þá fór hann að taka þátt í heimilisstörfum, fór að elda baka o.fl. og fannst mömmu það mjög ánægjulegt. Mikill gesta- gangur hefur alla tíð verið á heimili pabba og mömmu og fannst barnabörnunum alltaf mjög notalegt að koma í heim- sókn og fá brúna og mjólk og eða jólaköku sem afi hafði bakað. Elsku pabbi, við þökkum þér fyr- ir allt sem þú kenndir okkur og allar góðu samverustundirnar munum við geyma í hjarta okkar að eilífu og við hugsum vel um mömmu. Hvíl þú í friði. Þín börn, Hólmfríður, Hildur, Sigríður og Magnús. Í dag kveð ég tengdaföður minn og vin í yfir þrjátíu ár. Þetta byrjaði allt á: „Það er kominn strákur í kjallarann og ég ekki spurður um leyfi.“ Þetta var ekki í eina skiptið sem ég fékk að heyra það því þegar við Sigga ætluðum að gifta okkur kom: „Ég hef nú ekkert verið spurður og á hana enn.“ Það var ekkert annað í stöðunni en að semja við kallinn og á þeim tíma var algengt að ábyrgð væri á hlutum sem okkur samdist um. Það var ávallt stutt í léttleikann. Óskalagastundin í Vaðnesinu verður ekki sú sama en það er okkar Árna að viðhalda henni og spila fyrir þína hönd Gullnu vængi. Ég vil þakka þér allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjöl- skyldu og eins og við ræddum um þá er það okkar að taka við. Blessuð sé minning þín. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Kær kveðja, Sturla Jónsson. Elsku Maggi tengdapabbi minn. Núna ertu farinn og hug- urinn reikar til baka yfir allar stundirnar sem þú eyddir með okkur. Er ég óendanlega þakk- látur fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gefið af þér. Mín fyrsta minning um þig var þegar þú komst um borð í Dag- fara og þá bentu félagar mínir á þig og sögðu þig vera tilvonandi tengdapabba minn. Ég þurfti aldrei að biðja um hjálp frá þér, þú komst bara boðinn og búinn til að hjálpa. Þú lánaðir mér bíl- inn þinn þrátt fyrir að þekkja mig lítið sem ekkert, þú smíðaðir alla ofna í húsið hjá okkur, þú kenndir mér að sjóða og þú smíð- aðir palla á vörubílinn hjá mér og þrátt fyrir að vera 82 ára gamall komstu í sumar og hjálpaðir okk- ur Hólmfríði að setja upp sperr- ur í sumarbústaðinn hjá okkur. Ég gæti talið endalaust upp fyrir hvað ég er þakklátur þér. Erum við búin að gera mikið saman, ferðast og bralla ýmislegt. Þú þurftir alltaf að hafa eitthvað að gera, það þurfti mikið til að fá þig til að stoppa og slaka á. Við átt- um margar góðar stundir á Grund og var heiti potturinn staðurinn þar sem þú opnaðir þig og við gátum talað saman um allt og ekkert. Við biðjum þig, Drottinn, að blessa þá hrjáðu. Þú birtir oss syndugum mátt þinn á jörð. Lát náðarsól rísa, veg þeim öllum vísa er villir fóru leið, hafa týnt sinni hjörð. Þú leiðir oss, Drottinn, að lindunum hreinu. Þú ljósið þitt kveikir við himnanna stól. Um tíma þó syrti þá brátt aftur birtir, þú breiðir út þinn faðm og veitir oss skjól. Vér flytjum þér lofgjörð, þú líknar og græðir og léttir oss göngu í stormanna klið. Frá ánauð og helsi gef hjörð þinni frelsi. Þín hjálp er jafnan nær! Ó, Guð veit oss frið. (Óskar Ingimarsson) Ógleymanlegur maður er far- inn og mun ég halda í minningu þína. Takk fyrir allt og allt. Þinn tengdasonur, Árni. Elsku afi. Þín verður sárt saknað af okkur systkinunum. Það verður erfitt að hugsa til þess að afi verður ekki í sum- arbústaðnum, Grund, í sumar til þess að taka á móti okkur. Þú átt- ir alltaf erfitt með slaka á í sum- arbústaðnum. Það síðasta sem þú varst að gera var að smíða falleg fuglahús og handrið fyrir ömmu svo hún ætti auðvelt með að fara niður á tún, þú þurftir alltaf að hafa eitt- hvað að gera. Þú hafðir skoðanir á ýmsum hlutum og þrátt fyrir að amma hefði meiri áhuga fyrir tískunni og hverju fólk klæddist þá léstu okkur heyra það ef þér mislíkaði eitthvað, en allt í góðu. Einnig vita nú flestir að þú hafðir mikinn áhuga fyrir bílum og hafðir gam- an af því að fara á bílasölur og bara aðeins að skoða eins og þú sagðir alltaf. Bíllinn hjá þér var alltaf eins og hann væri nýkom- inn úr kassanum því alltaf varst þú að bóna og þvo. Ef bíllinn hjá okkur aftur á móti var ekki nógu hreinn hafðirðu orð á því og bauðst okkur að koma og þrífa hann hjá þér, og þá voru alltaf teknar pásur til þess að fá sér mjólkurglas með kökunum sem þú hafðir bakað. Laugardagslottóið var fastur liður hjá þér og þú máttir alls ekki missa af því, því þú ætlaðir svo sannarlega ekki að missa af stóra vinningnum. Elsku afi takk fyrir allar heim- sóknirnar, hlýjuna og faðmlögin í gegnum árin. Blessuð sé minning þín. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þín barnabörn Ína Salome og Jón Ágúst. Elsku afi. Núna ertu farinn og ég á erfitt með að trúa því að ég eigi ekki eftir að sjá þig eða heyra í þér aftur. Þú vildir alltaf hafa mig hjá þér; alveg sama hversu gömul ég var þá vildirðu alltaf hafa mig lengur. Þegar ég var lítil stelpa hjá ykkur ömmu á Smára- hvamminum þá var gert mikið, ég man eftir að sitja við hlið þér þegar þú sast og spilaðir á skemmtarann og söngst. Þegar ég var hjá ykkur um helgar fór- um við alltaf í sjoppuna til að lotta og ég fékk síríuslengju, eða við fórum ísrúnt á Skallann. Þeg- ar ég hugsa til baka þá vildi ég alltaf vera hjá ykkur eða allavega þangað til gelgjan tók völdin. Þegar ég eignaðist börnin mín voruð þið amma ekki lengi að láta sjá ykkur og koma og sjá nýja fjölskyldumeðliminn. Og var það alltaf þannig að þegar þið komuð út í Garð til mömmu þá var ég mætt á svæðið til að hitta ykkur með krakkana. Mér þykir svo óendanlega vænt um þig elsku afi minn og á ég alltaf eftir að minn- ast þín og góðu stundanna okkar. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth) Nafna þín, Sigríður Maggý. Magnús H. Magnússon Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT S. MAGNÚSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði sunnudaginn 4. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunardeildar Áss. . Þór Hafsteinn Hauksson, Sigrún Alfreðsdóttir, Magnús Hauksson, Elín Norðdahl, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SÆVAR HALLDÓRSSON ljósmyndari, Barmahlíð 52, lést á Landspítalanum sunnudaginn 4. janúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 15. janúar kl. 13.00. Soffía Sævarsdóttir, Helgi Vilberg, Jónína Margrét Sævarsdóttir, Guðrún Sigríður Sævarsdóttir, Kristján Vídalín Jónsson, Hrönn Sævarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Jón Alvar Sævarsson, Steinunn Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.