Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 27

Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 lagði upp laupana og vann á ýmsum veitingastöðum og í söluturnum með skóla. Á þessum árum eignaðist mað- ur vini sem maður hefur enn sam- band við, suma hverja. Í endurminn- ingunni standa sumrin upp úr þegar farið var í fótbolta á sólbjörtum sum- arnóttum eftir lokun á miðnætti.“ Ása Dagný var knattspyrnuþjálfari hjá Fram 1994-2001, þjálfaði yngstu flokka drengja flest árin og einnig 3ja og 4. fl. kvenna eitt eða tvö tímabil. Einnig vann hún við íþrótta og/eða knattspyrnuskóla flest sumur á þess- um árum. Hún starfaði auk þess á ýmsum öðrum stöðum, með annarri vinnu, í sumarvinnu eða eingöngu, s.s. hjá Póstinum, Gallerý fiski, sem aðstoðamaður sjúkraþjálfara á Landakoti og á Reykjalundi. Ása Dagný kenndi íþróttir og líf- fræði við Austurbæjarskólann 1998- 2000, var sjúkraþjálfari á Reykja- lundi 2004-2005 og hefur verið sjúkraþjálfari á Landspítalanum við Hringbraut frá ársbyrjun 2006. Ása Dagný sat í stjórn Félags ís- lenskra sjúkraþjálfara 2006-2012. Hún lætur lítið yfir afrekum, verð- launum eða viðurkenningum: „Við unnum þó 2. deild 1995 þegar ég lék með meistaraflokki kvenna í Aftur- eldingu og ég varð framhalds- skólameistari með FB árið 1991.“ Helstu áhugamál Ásu Dagnýjar eru íþróttir, einkum knattspyrna: „Ég hef æft, keppt og þjálfað knatt- spyrnu um árabil þó að ég sé hætt því að mestu núna. Ég æfði og keppti einnig í handbolta og badminton sem krakki en hætti í handboltanum um 18 ára, spilaði eitt til tvö tímabil nokkrum árum seinna með Aftureld- ingu í B-deild. Ég spilaði hins vegar knattspyrnu með yngri flokkum Aftureldingar til 1991 og með meistaraflokki félagsins 1994-97, með 2. fl. og meistaraflokki Fram 1991-93, með meistaraflokki Stjörnunnar 1998-99, og með Fjölni 1999 og 2001 og sameinuðu liði Aftur- eldingar og Fjölnis árið 2000. Auk þess hef ég nú stundað blak með Aft- ureldingu síðastliðin þrjú ár. Ég fer í golf á sumrin, á skíði á vet- urna og reynum þá að drífa alla fjöl- skylduna með. Auk þess hleyp ég af og til. Síðan eru synirnir mikið í íþróttum og segja má að íþróttaiðkun þeirra sé hluti af áhugamálum mínum því við fylgjum þeim á knatt- spyrnumót og aðrar keppnir. Þeir æfa knattspyrnu, allir þrír, og þeir tveir eldri eru líka í golfi og badmin- ton.“ Fjölskylda Eiginmaður Ásu Dagnýjar er Jón Smári Pétursson, f. 3.12. 1978, raf- virki. Foreldrar hans eru Pétur Lár- usson, f. 17.10. 1937 bóndi í Káranesi Kjós, og Marta Finnsdóttir, f. 7.3. 1943, bóndi þar. Þau hafa þó brugðið búi en synir þeirra tóku við búinu og er sá elsti bóndi á jörðinni. Synir Ásu Dagnýjar og Jóns Smára eru Gunnar Smári Jónsson, f. 3.2. 2005, nemi í Krikaskóla; Arnar Dagur Jónsson, f. 7.12. 2007, nemi í Krikaskóla, og Steinar Kári Jónsson, f. 14.6. 2010, leikskólanemi í Krika- skóla. Hálfbróðir Ásu Dagnýjar, sam- feðra, er Steinn Gunnarsson, f. 27.9. 1970, kennari, búsettur í Danmörku. Foreldrar Ásu Dagnýjar eru Gunnar Guðmundsson, f. 9.4. 1947, d. 23.7. 1987, raftæknir í Mosfellsbæ, og Kolbrún Jónsdóttir, f. 8.7. 1943, fyrrv. verkakona í Mosfellsbæ. Úr frændgarði Ásu Dagnýjar Gunnarsdóttur Ása Dagný Gunnarsdóttir Guðrún Stefánsdóttir húsfr. í Hjarðarholti Gestur Bjarnason b. í Miðdalskoti og Hjarðarholti í Kjós Ásbjörg Gestsdóttir húsfr. í Rvík Jón Jónsson bifreiðarstj. Í Rvík Kolbrún Jónsdóttir verkak. í Mosfellsbæ Margrét Jónsdóttir húsfr. á Hunkubökkum Jón Pálsson b. á Hunkubökkum á Síðu Margrét Guðmundsdóttir ljósmóðir í Rvík Greta Jónsdóttir fyrrv. fulltr. á Ísafirði og í Rvík Gunnar Jónsson bifreiðastj. í Rvík Samúel Jónsson húsasmiður og málari Guðbjörg Gestsdóttir húsfr. í Rvík Erna Guðlín Helgad. búsett í Rvík Stefán Hjörleifsson tónlistarmaður Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins Guðný Jenný Ásmundsdóttir fyrrum landsliðsmarkm. í knattspyrnu Sigríður Guðrún Einarsdóttir húsfr. í Rvík Konráð Ingimundarson sjóm. í Eyjum og vélstj. í Rvík Sigurveig Stella Konráðsdóttir húsfr. í Rvík Guðmundur Þ. Björnsson málarameistari í Rvík Gunnar Guðmundsson raftæknir í Mosfellsbæ sem lék með gullaldarliði Fram í knattspyrnu Margrét Vigfúsdóttir húsfr. í Rvík Björn Jóhannsson frá Selnesi á Skaga, búsettur í Rvík Bjarni Pétursson rafvirki og sjómaður í Bolungarvík Lára Pétursdóttir heildsali í Rvík Jóhann Gylfi Gunnarsson rennismiður og bílstj. í Rvík Rannveig Gunnarsdóttir bankam. Í Rvík Hannibal fæddist í Fremri-Arnardal í Skutulsfirði 13.1.1903. Foreldrar hans voru Valdimar Jónsson, bóndi þar, og k.h. Elín Hannibalsdóttir. Bróðir Hannibals var Finnbogi Rútur, alþm. og bankastjóri. Eiginkona Hannibals var Sólveig Ólafsdóttir og urðu synir þeirra landsþekktir, þeir Arnór heimspeki- prófessor, Ólafur, rithöfundur og fyrrv. vþm., og Jón Baldvin, fyrrv. alþm. ráðherra, formaður Alþýðu- flokksins og sendiherra. Hannibal stundaði sjósókn og verkamannavinnu á unglingsárum og lauk prófi frá kennaraskólanum í Jonstrup 1927. Hann var skólastjóri í Súðavík 1929-31, stundaði skrif- stofustörf hjá Samvinnufélagi Ísfirð- inga, kenndi 1931-38 og var skóla- stjóri Gagnfræðaskólans á Ísafirði 1938-54. Hann hóf afskipti af verka- lýðsbaráttu um 1930, var formaður Verkalýðsfélags Álftfirðinga í tvö ár og Verkalýðsfélagsins Baldurs á Ísafirði 1932-39, forseti Alþýðu- sambands Vestfjarða 1934-54 og for- seti ASÍ 1954-71, bæjarfulltrúi á Ísa- firði 1933-49, alþm. 1946-73 og ráðherra í tveimur vinstristjórnum, Hermanns Jónassonar 1956-58 og Ólafs Jóhannessonar 1971-73. Hannibal fór á þing fyrir Alþýðu- flokkinn 1946, var formaður flokks- ins 1952-54, klauf flokkinn 1956 og gekk til kosningasamstarfs við Sósíalista sem forsvarsmaður Málfundafélags jafnaðarmanna und- ir nafni Alþýðubandalags og var for- maður þess 1956-68, skildi þá við Al- þýðubandalagið og stofnaði Samtök frjálslyndra og vinstrimanna 1969 og var formaður þeirra er þau unnu stórsigur í þingkosningum 1971 og felldu Viðreisnarstjórnina. Samtök Hannibals tóku þá þátt í nýrri vinstristjórn sem Hannibal rakst illa í enda bendir ýmislegt til að hann hefði fremur kosið að fram- lengja Viðreisnarstjórn með Alþýðu- flokki og Sjálfstæðisflokki en að mynda nýja vinstristjórn. Hann lauk síðan stjórnmálaferlinum í gamla góða Alþýðuflokknum sem hann hafði ungur gefið hjarta sitt. Hannibal lést 1.9. 1991. Merkir Íslendingar Hannibal Valdimarsson 90 ára Kristín Þórarinsdóttir 85 ára Aðalberg Pétursson Ingibjörg Gísladóttir Kristján Halldórsson Rannveig Friðriksdóttir 80 ára Bjarni Guðráðsson Gunnar Hólmgeir Jónsson Ólafía S. Einarsdóttir Ólafur Jóhannsson Reynir Eiríksson Sigrún Stella Ingvarsdóttir 75 ára Aðalheiður Alfreðsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Lilja Guðbjörg Magnúsdóttir Sigmundur Tómasson Sigvaldi Arnoddsson Skúli Bergmann Hákonarson Sólveig Antonía Þorgeirsdóttir 70 ára Eðvarð Franklín Benediktsson Grétar Guðni Guðnason Guðríður Sólveig Þórarinsdóttir Kolbrún Kjarval Kristinn Ástvaldsson Margrét Ingólfsdóttir 60 ára Axel Jóhannes Yngvason Gísli Jón Höskuldsson Guðríður Ólafía Magnúsdóttir Hrafnhildur Jónsdóttir Hörður Jónasson Ingigerður Jónsdóttir Jón Bjarnason Magnús Ástvaldsson Pálmey Gróa Bjarnadóttir Sigurvaldi R. Hafsteinsson Sigvaldi Guðjónsson 50 ára Fanney Ósk Hallgrímsdóttir Guðni Þór Skúlason Hafsteinn Viktorsson Hrafnhildur Proppé Josef Nerud Nanna Guðmundsdóttir Ottó Másson Stefán Bjarnhéðinsson Wieslaw Grzegorz Sadowski Þórunn Ragnh Sigurðardóttir 40 ára Anney Bæringsdóttir Bjarney Oddrún Hafsteinsdóttir Gestur Þórisson Halldóra Andrésdóttir Jenný V. Gunnarsdóttir Laila Sæunn Pétursdóttir Margeir Sæbjörnsson Margrét A.R. Konráðsdóttir Margrét Helgadóttir Valdís Þorsteinsdóttir Örvar Þór Ólafsson 30 ára Dawid Patryk Król Elfa Rún Kristinsdóttir Guðrún Hafdís Thoroddsen Jón Kristófer Jóhannsson Julien Brice Fasseur Kolbrún R. Ragnarsdóttir Lilja Guðrún H. Róbertsdóttir Marcin Nerwinski Ólafur Nils Sigurðsson Velizar Antonov Marchovski Til hamingju með daginn 30 ára Hrönn ólst upp á Svalbarðseyri og Akureyri, býr í Horsens í Danmörku, lauk prófi í hársnyrtingu 2005 og starfar hjá Frisör Morgenhår. Maki: Steingrímur Jóns- son f. 1979, nemi í Via Uni- versity College. Börn: Sonja Bríet, f. 2008, og Helgi Sævar, f. 2010. Foreldrar: Helgi Snæ- bjarnarson, f. 1965, og Helga Eymundsdóttir, f. 1959. Hrönn Helgadóttir 30 ára Magnús ólst upp í Kópavogi, býr í Reykjavík, lauk prófum í margmiðlun við Margmiðlunarskólann og starfar hjá Myndformi. Maki: Erla Soffía Jóhann- esdóttir, f. 1986, starfar við ferðaþjónustu. Foreldrar: Ingiberg Magnússon, f. 1944, myndlistarmaður, og Guðrún Þórunn Gísladótt- ir, f. 1953, landfræðingur við Veðurstofuna. Þau búa í Kópavogi. Magnús Gísli Ingibergsson 30 ára Sófus ólst upp í Þorlákshöfn, er nú bú- settur í Kópavogi, lauk stúdentsprófi frá FSU og er verslunarstjóri ELCO í Lindum. Börn: Alexander Árni, f. 2008, og Sara Lind, f. 2011. Foreldrar: Hafsteinn Ás- geirsson, f. 1949, sér- fræðingur við ferjusigl- ingar í Noregi, og Kristín Árnadóttir, f. 1951, kaup- maður í Noregi. Sófus Árni Hafsteinsson Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu. FYRSTU SNJALL- HEYRNARTÆKIN Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum. App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.