Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 28

Morgunblaðið - 13.01.2015, Page 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Á STIGUM, TRÖPPUM, ÁSTÖNDUM OG BÚKKUM Í YFIR 30 ÁR Þarftu að framkvæma? Við eigum pallana fyrir þig Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér finnst um of sótt að þér úr öll- um áttum. Hvíldu þig augnablik ef þú þarft eða fáðu þér kaffibolla. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur tekið á að hitta gamla vini og rifja upp löngu liðna daga. Eftir nokkra daga verður þessu öfugt farið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér virðist ætíð takast að vekja hrifningu annarra. Markmið þitt næstu vik- urnar verður að víkka sjóndeildarhringinn með ráðum og dáð. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að huga vel að stöðu þinni bæði í starfi og einkalífi. Treystu innsæi þínu en bíddu þó til morguns með að hrinda hugmyndum þínum í fram- kvæmd. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að finna leið til þess að vinna hugmyndum þínum brautargengi. Leitaðu allra leiða til að nýta það. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er engin ástæða til þess að láta smáatriði standa í veginum fyrir því að tilskilinn árangur náist. Nú er rétti tím- inn til að stefna félögunum saman til fund- ar og leggja á ráðin. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhverjir undirstraumar fljóta um vinnustað þinn. Enda muntu uppskera í ríkum mæli. Reyndu aðra og blíðari aðferð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast þín eigin viðbrögð. Reyndu að miðla málum á for- dómalausan hátt. Hafðu það að leiðarljósi að sannleikurinn er alltaf sagna bestur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef þú neitar að fara milliveginn færðu þínu framgengt. Ef þú færð of mik- inn tíma til þess að vinna eitthvað verður útkoman miklu lakari en þegar skilafrestur er skammur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Viðkvæmni gerir vart við sig í nánu sambandi í dag. Vandkvæði tengd samgöngum að undanförnu leysast. Ekki er heldur úr vegi að sinna rómantíkinni og sletta úr klaufunum með smáfólkinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver lofar þér öllu fögru í dag, taktu því sem sagt er með fyrirvara. Nú verður erfitt en gaman að komast að safaríkasta hlutanum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ný ævintýri geta birst þér ef þú hefur kjark til þess að brjóta upp venjur hversdagsins. Búðu þig undir slíka ákvarð- anatöku. Gunnar Birgisson hefur veriðráðinn bæjarstjóri í Fjalla- byggð, sem að sjálfsögðu kveikti í vísnasmiðum á Boðnarmiði. Ár- mann Þorgrímsson kvað Bjart yfir Fjallabyggð: Felst í sýn til framtíðar fátt sem betra yrði. Gunnar Birgis gerður var greifi af Héðinsfirði. Síðan orti hann um nýja tíma yfir Fjallabyggð: Grænka hlíðar, gróa börð gulli skrýðast fjallatindar Sælu blíðu Siglufjörð sveipa þýðir hægri vindar. -------- Aftur fyrstur er um sinn afl þó missti skamma hríð Eins og Kristur upprisinn af sér hristir liðna tíð. Aðalsteinn Svanur Sigfússon lét líka til sín heyra: Aftur var nú orðinn kappi einhvers virði: Gunnar taldi að geðveikt yrði gott að búa í Héðinsfirði. Áslaug Benediktsdóttir sagði þannig frá tíðindunum: Hræring varð í hafinu hratt gekk fiskisaga, er Gunnar kom úr kafinu á köldum Tröllaskaga. Hjálmar Freysteinsson orti á Boðnarmiði á laugardag: Er líður á kvöldið viðmótsþýður ég verð, verkadrjúgur og laginn, en ég er með svolítið seinkaða dægurgerð og syfjaður allan daginn. Hitt og þetta hafa menn um mig sagt; hinu er ekki að neita, að fyrir mér dagana oft hefur eyðilagt ömurleg klukkuþreyta. Ármann Þorgrímsson gerði skemmtilega grein fyrir sjálfum sér þegar hann upplýsti um ættir sínar og uppruna á Boðnarmiði: „Móðurætt: Ættarfylgjur Þor- geirsboli og Hálsskorni Fúsi. Þetta er norður-þingeyskt kyn úr Þistilfirði og Núpasveit. Menn kannski heyra klaufadyn hvað svo gerist Boli veit. Föðurætt: Ættarfylgjur óþekktar (ónefndir pokaprestar). Hæsta ber þar Hraunkotsætt þeir halda mikið upp á grín. Út í hana er svo bætt einhverju frá Reykjalín.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af nýjum bæjarstjóra, klukku- þreytu og ættarfylgjum Í klípu MARTEINN HATAÐI AÐ BORÐA EINN – EN ELSKAÐI SPARNAÐINN SEM FYLGDI ÞVÍ. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG BÝST VIÐ AÐ ÞÚ VILJIR EKKI NEITT AF ÞESSUM OSTI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að segja „ég elska þig“ fyrst. JÆJA, ODDI, SÆKTU PRIKIÐ! EFTIR AÐ ÉG KASTA ÞVÍ, EF ÞAÐ HENTAR... KJAMMS ÉG HEF NOTIÐ ÞESS AÐ EIGA ÞENNAN TESOPA MEÐ ÞÉR Í EFTIRMIÐDEGINU, HELGA OG ÉG VONA AÐ ÞÚ SÉRT AÐ FARA AÐ FÁ HEIMSENT Í KVÖLDMATINN... Einhver fróðlegustu og skemmti-legustu samtöl sem Víkverji á þessi misserin eru við fimm ára gamla sonardóttur hans. Óborgan- legt að fylgjast með því þegar blessuð börnin uppgötva heiminn, hægt og bítandi. Sú stutta hafði verið upplýst um það að hefð væri fyrir því að fólk óskaði sér einhvers við áramót og tók hún því tækifæri að sjálfsögðu fegins hendi. Eini vandinn, trúði hún afa sínum fyrir, var að óskin hafði af einhverjum ástæðum ekki ræst. Allmörgum dögum eftir ára- mótin. Og hvers óskaðir þú þér? spurði afinn forvitinn. „Ég óskaði mér þess að fá heitan pott og trampólín í garðinn.“ x x x Víkverji er með húsgest þessavikuna, unglingsstúlku frá Grikklandi. Um er að ræða sam- starfsverkefni framhaldsskólans sem dóttir Víkverja stundar nám við í Reykjavík og sambærilegs skóla í Grikklandi og raunar mun fleiri löndum. Erlendu nemend- urnir koma hingað og dveljast á heimilum íslensku nemendanna í eina viku og síðan fara íslensku nemendurnir utan og dveljast á heimilum þeirra. Ekki er endilega um bein skipti að ræða, þannig að ekki er víst að dóttir Víkverja fari til Grikklands, þótt hún kjósi það raunar helst. Frakkland, Spánn, Rúmenía og fleiri lönd koma líka til greina. Víkverji stakk upp á því að dóttirin skellti sér til Aser- baídsjan en það er víst ekki í boði. x x x Víkverja þykir þetta sniðugtverkefni og vel til þess fallið að kynna dóttur hans fyrir menn- ingu framandi landa. Stíf dagskrá er fyrir erlendu nemendurna alla vikuna og fá þeir að sjá eitthvað af landinu og blanda geði við ís- lenska jafnaldra sína. Einhver furðaði sig á því að hinir erlendu gestir veldu að koma um miðjan janúar en eflaust er það bara meira ævintýri. Gefur þeim tæki- færi til að upplifa kuldann, snjó- inn og svo auðvitað það sem flest- ir í hópnum tala sérstaklega um – norðurljósin. Vonandi láta þau sjá sig í vik- unni. víkverji@mbl.is Víkverji Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín þig, ó Guð. (Sálmarnir 42:2)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.