Morgunblaðið - 13.01.2015, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Óbr
eytt
verð í 4 ár
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Jóhann Jóhannsson tónskáld hlaut
Golden Globe-verðlaun fyrir bestu
frumsömdu tónlist í kvikmyndinni
The Theory of Everything í leik-
stjórn James Marsh. Í kvikmyndinni
er rakin saga eðlisfræðingsins
Stephens Hawkings og eiginkonu
hans, Jane. Er Jóhann fyrstur Ís-
lendinga til þess að hljóta þessi virtu
verðlaun en Björk Guðmundsdóttir
hefur tvisvar hlotið tilnefningu til
verðlauna á hátíðinni. Með sigri sín-
um skaut Jóhann þekktum tónlist-
armönnum, líkt og Trent Reznor,
sem var tilnefndur fyrir tónlistina í
Gone Girl og Hanz Zimmer fyrir
Interstellar, ref fyrir rass. Á blaða-
mannafundi Golden Globe sagði Jó-
hann mikinn heiður að fá að taka
þátt í verðlaunahátíðinni en hann
væri enn að laga sig að umhverfinu.
„Að hafa unnið er ótrúlegt. Þetta er
rosalega gaman,“ sagði Jóhann.
Þakkaði fjölskyldunni
Jóhann var hógvær þegar hann
tók við verðlaununum og í ræðu
sinni tileinkaði hann þau fjölskyldu
sinni á Íslandi og í Danmörku, og
teyminu sem vann með honum að
tónlistinni. Þakkaði hann leikstjór-
anum James Marsh sérstaklega fyr-
ir að bjóða sér að taka þátt í gerð
myndarinnar sem hann sagði mikinn
heiður. Þá sagði hann einnig að gæði
handritsins, leikstjórnarinnar og
frammistaða leikaranna hefði gert
starf hans mun auðveldara en ella.
Óskarsverðlaunin á næsta leiti
Kvikmyndin hefur nú þegar hlotið
mikið lof gagnrýnenda og unnið til
fjölda verðlauna. Myndin hlaut fjór-
ar tilnefningar til verðlauna á Gol-
den Globe en auk Jóhanns fékk Ed-
die Redmayne, sem fer með
hlutverk Stephen Hawkings, verð-
laun fyrir hlutverk sitt í myndinni.
Felecity Jones var einnig tilnefnd
fyrir hlutverk sitt sem eiginkona
Hawkings í flokknum um bestu leik-
konu í aðalhlutverki og hlaut myndin
tilnefningu sem besta dramatíska
kvikmyndin.
Jóhann er einnig tilnefndur til
BAFTA-verðlauna í Bretlandi en
báðar tilnefningarnar þykja vís-
bendingar um tilnefningu til hinna
eftirsóttu Óskarsverðlaunanna.
Enginn Íslendingur hefur hlotið þau
verðlaun.
Jóhann hefur um langt skeið verið virkur
við tónsmíðar en hann hefur náð athygli
heimsbyggðarinnar á undanförnum árum.
Rokkunnendum barst tónlist Jóhanns
hvað fyrst til eyrna þegar hann lék á
hljómborð og gítar með hljómsveitinni
HAM sem var hvað virkust á árunum 1988
til 1994. Þá vakti hann fyrst athygli sem
tónskáld fyrir tónlist sína við leikritið
Englabörn 2001 en samnefnd plata var
gefin út. Árið 2004 var Jóhann farinn að
láta almennilega til sín taka á sviði kvik-
myndatónlistar en þrjú lög af plötunni
Englabörn voru notuð í kvikmyndinni Wic-
ker Park. Hefur tónlist hann verið notuð í
ýmsum verkum í Bandaríkjunum en Jó-
hann samdi til dæmis tónlistina fyrir
heimildamyndina The Miners’ Hymns eftir
Bill Morrison og spilaði tónlistin stóran
sess í henni.
Jóhann var orðaður við Óskarinn árið
2013 fyrir frumsamda tónlist sína í
spennutryllinum Prisoners. Gæti svo farið
að hann hreppti þessi eftirsóttu verðlaun
í ár en undanfarin sjö ár hafa Golden
Globe-verðlaunahafar fyrir bestu frum-
sömdu tónlist einnig hlotið verðlaun á
Óskarsverðlaununum.
Tölfræðin hliðholl Jóhanni
VERÐLAUNAÐUR ROKKARI
Golden Globe-hátíðin í Los Angeles
Ótrúlega gaman að hafa unnið
Jóhann Jóhannsson hlaut fyrstur
Íslendinga Golden Globe-verðlaun
ATP
Sigur Jóhann Jóhannsson var sigri hrósandi með verðlaunin sem hann hlaut á Golden Globe-kvikmyndahátíðinni.
AFP
Bestur Eddie Redmayne var verðlaunaður fyrir hlutverk sitt sem Stephen Hawking í kvikmyndinni.
Þekktasti höfundur franskra teikni-
myndasagna, hinn 87 ára gamli Al-
bert Uderzo, skapari sagnanna um
Ástrík, er sestur í helgan stein.
Hann hefur nú birt tvær nýjar teikn-
ingar til að sýna samstöðu með fórn-
arlömbum árásarinnar á ritstjórn
tímaritsins Charlie Hebdo.
Teikningarnar birtust fyrst í
franska dagblaðinu Le Figaro og
hafa síðan verið birtar víða.
Önnur teikningin sýnir Ástrík slá
andstæðing hátt í loft upp um leið og
hann segir reiður: „Moi aussi je suis
un Charlie“ – Ég er líka Charlie.
Hin myndin er skissulegri og sýn-
ir félagana Ástrík og Steinrík drúpa
höfði, þeir hafa tekið niður hjálma
sína og Ástríkur réttir fram rós.
Hundur Ástríks, Krílríkur, lítur
sorgmæddur til áhorfandans.
„Ég er ekki að breyta verkum
mínum heldur vil ég einungis hylla
teiknarana sem guldu fyrir teikn-
ingar sínar með lífinu,“ er haft eftir
Uderzo í Le Figaro. „Hvernig getur
nokkur gert svona lagað? Hvernig
getur fólk sem þykist vera mennskt
myrt fólk sem það hefur aldrei hitt
en telur að það hafi sagt eitthvað
rangt og sé réttdræpt upp frá því?
Þetta er brjálæði,“ segir Uderzo.
„Nú taka ungir teiknarar við kefl-
inu og ég óska þess að þeir stígi
kjarkmiklir fram. Þeir munu aldrei
gleyma því hvernig starfsbræður
þeirra voru leiknir – enginn hefði
getað búist við þessu.“
Viðbrögð Í nýjum teikningum bregðast Uderzo og Ástríkur við ódæðunum.
Kappinn Ástríkur
er líka Charlie