Morgunblaðið - 13.01.2015, Side 36

Morgunblaðið - 13.01.2015, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Björn hætti samdægurs 2. Eyþór fann ástina á Tinder 3. Mamma bannar annað legóverkefni 4. Birmingham „alfarið múslímsk“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Unglingsstúlkur verða í sviðsljós- inu hjá Gaflaraleikhúsinu í Hafnar- firði annað kvöld þegar það frum- sýnir leikritið „Konubörn“ sem er samið og leikið af sex stúlkum. Verk- inu leikstýrir Björk Jakobsdóttir. Unglingsstúlkurnar semja og leika  Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir, mynd- listarmaður og formaður Sam- bands íslenskra myndlistarmanna, heldur klukkan 17 í dag fyrirlestur í Ketilhúsi Lista- safnsins á Akur- eyri. Í erindinu, sem Jóna Hlíf kallar „Kjarna“, fjallar hún um listsköpun sína en einnig um starf sitt sem for- maður SÍM. Formaður SÍM fjallar um list og félagsmál  Sunna Gunnlaugs píanisti hefur flakkað víða um lönd síðustu misseri ásamt tríói sínu. Í kvöld kemur tríóið fram á djasskvöldi í KEX Hostel við Skúlagötu, ásamt Snorra Sigurð- arsyni trompetleik- ara. Auk Sunnu skipa Þorgrímur Jónsson og Scott McLemore tríóið og flytja þau úrval sí- gildra djass- laga. Tríó Sunnu kemur fram ásamt Snorra Á miðvikudag Norðlæg átt 10-18 m/s, hvassast norðantil og él, en léttskýjað um landið sunnan- og suðvestanvert. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 13-20 m/s og él, en 18-23 suð- austantil. Dregur úr vindi eftir hádegi og léttir heldur til syðra. Frost 0 til 7 stig, en sums staðar frostlaust við sjávarsíðuna. VEÐUR Þórsarar stimpluðu sig af krafti inn í baráttuna um sæti í úrslitakeppni Dom- inos-deildar með sigri á ÍR í gærkvöldi. Þeirra langbesti maður var Vincent Sanford sem lék algjörlega lausum hala og skoraði alls 42 stig, þar af 29 í fyrri hálfleik ein- um. Benedikt þjálfari sagði kauða ekki einu sinni hafa verið nálægt því að sýna slíka takta á æfingum. » 2 Þórsarar með í baráttunni „Olísdeild kvenna í handknattleik er jafnari og meira spennandi en síðustu ár,“ segir Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir, línu- maður úr Gróttu, en Seltjarn- arnesliðið virðist nú tilbúið til að berjast um titlana við Fram, Stjörn- una og ÍBV, jafnvel fleiri lið, eftir að hafa fengið Önnu og Karól- ínu Bæhrenz til sín fyrir tímabilið. Rætt er við Önnu um stöðu mála í deildinni í íþróttablaðinu í dag. » 2-3 Deildin jafnari og meira spennandi í vetur „Ég má stíga aðeins inn á æfingarnar með liðinu. Ég get verið með í vörn- inni til að byrja með en má ekki lenda í návígi í sókninni. Þó enn sé smá í land þá eru þetta góðar fréttir,“ segir Þorgerður Anna Atladóttir, landsliðs- kona í handknattleik, meðal annars í samtali við Morgunbalðið í dag. Hún fór í sína aðra aðgerð vegna axlar- meiðsla í byrjun ágúst. »4 Fimm mánuðir liðnir frá aðgerðinni hjá Þorgerði ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Sigurður Helgason, yfirmatreiðslu- meistari Grillsins, mun keppa í lokakeppni matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or sem haldin verður í Lyon í Frakklandi dagana 27. og 28. janúar. Sigurður mætir ekki óundirbúinn til leiks því hann hefur verið að æfa sex daga vikunnar ásamt hjálparkokkum sínum Rúnari Pierre Heriveaux, Hinriki Erni Lárussyni og Karli Óskari Smárasyni síðan um miðjan sept- ember. Í keppninni mun Sigurður fram- reiða franskan vatnaurriða og perluhænu ásamt meðlæti. Hljóm- ar einfalt en er það alls ekki. „Dómarar biðja um þjóðleg áhrif í útliti og bragði af réttunum. Ég spila með reyk, sem við notum mik- ið hér á Íslandi, ég nota íslenskan hreindýramosa og einiber sem ég tíndi í sumar og svo er ég að vinna með íslenska náttúru, stuðlaberg og hraun,“ segir Sigurður. Margt annað sem spilar inn í Matreiðslumennirnir mæta í æf- ingaeldhúsið snemma á morgnana. Vinnudagurinn er langur og strangur og stendur yfirleitt fram á kvöld. „Það hljómar skrýtið að æfa að matreiða tvo rétti frá september fram í janúar en það er svo margt annað sem spilar inn í. Það er hönnun, skipulag, okkar líkamlega form, sérsmíði og annað sem kem- ur við sögu. Vissulega hljómar þetta sem langur tími en undirbún- ingurinn er mjög nauðsynlegur.“ Sigurður segir að á bak við keppnisdaginn sé mikil vinna en liðið sé gott og þeir viti alveg hvað þeir séu að gera. „Þessi tími, fimm og hálf klukku- stund, sem keppnin stendur yfir, er eins og að hlaupa spretthlaup í fimm og hálfa klukkustund. Álagið er gríðarlegt, hraðinn mikill, það skiptir máli að líkaminn og einbeit- ing ráði við allt sem þarna verður í gangi.“ Alls munu 24 af fremstu kokk- um heimsins keppa um hylli dóm- ara. Lokahnykkur undirbúnings íslenska liðsins stendur nú yfir og það var mikið um að vera í eldhús- inu þegar Morgunblaðið bar að garði í gær. „Við fáum klukkutíma til að stilla upp kvöldið áður og það verður að æfa það. Eftir eldamennskuna fáum við líka klukkustund til að þrífa og ganga frá. Það þarf því allt að ganga upp.“ Æft fyrir óvissuna í Bocuse d’Or  Sigurður Helga- son hefur æft nánast daglega síðan í september Morgunblaðið/Þórður Á æfingu Rúnar og Sigurður með hráefnið, perluhænu og urriða. Áður en keppnin hefst fær Sigurður að kíkja í hálftíma á markað í Lyon til að velja sér hráefni en hann veit ekki hvað verður þar á boðstólum. Sigurður og félagar létu sérsmíða fyrir sig eftirmynd af eldhúsinu sem verður í Lyon. Allt laust pláss er nýtt til hins ýtrasta. „Eldhúsið skiptir máli því hér æfum við hreyf- ingar og reynum að nýta hverja sek- úndu því hún skiptir máli. Ætli við séum ekki að fara með til Lyon rúmlega tonn af tækjum og tólum og rúmlega 100 kíló af mat- vælum. Þetta hljómar svolítið mikið því við erum jú bara að elda 14 skammta af hvoru.“ Kostnaðurinn er mikill og hleypur á tugum millj- óna en á bak við Sigurð er Bocuse- akademían og fleiri styrktaraðilar. „Þetta er risastórt verkefni og það skiptir öllu að vera með góða aðila á bak við sig. En allt sem umfram er tek ég á mig,“ segir Sigurður tilbú- inn að skrá nafn sitt í Bocuse- sögubækurnar. Tonn og tugir milljóna EKKI BARA HNÍFAR OG BRÝNI FARA MEÐ TIL LYON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.