Morgunblaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Í
leiklistarmeðferð eru að-
ferðir leiklistar notaðar til að
hjálpa fólki að öðlast betri
skilning á sjálfum sér og um-
hverfi sínu og til að hvetja til
breytinga. Leiklistarmeðferð hefur
verið notuð með góðum árangri með
ólíkum hópum í mörg ár, t.d. á geð-
deildum, meðferðarheimilum, í fang-
elsum, á elliheimilum, í skólum og á
einkareknum meðferðarstofum,“
segir Sigríður Birna Valsdóttir leik-
listarmeðferðarfræðingur.
Hún heldur tveggja eininga
námskeið í leiklistarmeðferð við
Listaháskóla Íslands undir lok apr-
ílmánaðar og fram í maí.
Nasasjón af leiklistarmeðferð
Sigríður Birna segir námskeiðið
sjálft vera býsna stutt og er markmið
þess að kynna þessa aðferð sem einn
möguleika í meðferðarvinnu. Nem-
endur fá nasasjón af uppruna, kenn-
ingum og aðferðum leiklistarmeð-
ferðar í gegnum stutta fyrirlestra,
umræður og þátttöku í verkefnum og
æfingum. Sérstök áhersla verður
lögð á hlutverkaaðferðina og notkun
svokallaðs frávarps innan hennar (e.
Projective Techniques). Þá munu
nemendur sjálfir fá að upplifa
leiklistarmeðferð.
Sigríður Birna lauk meistara-
prófi í leiklistarmeðferð frá New
York-háskóla árið 2002. Þó hún sé
ekki sú eina á landinu með slíka próf-
gráðu þá veit hún ekki til þess að það
séu fleiri starfandi leiklistarmeðferð-
arfræðingar hér á landi núna.
Sigríður Birna er sjálfstætt
starfandi fjölskyldu- og leiklistar-
meðferðarfræðingur, samhliða því
kennir hún leiklist í Hagaskóla. Leik-
listin og meðferðin tvinnast því sam-
an í hennar störfum. „Ég nýti vel
þennan bakgrunn og hann hefur
áhrif á alla mína vinnu með skjól-
stæðingum, hvort sem um hópa eða
einstaklinga er að ræða. Leiklistar-
meðferð hentar ekki bara fólki sem
er opið og þorir að leika. Síður en
svo. Það er einmitt mjög gott að nota
aðferðir leiklistarmeðferðar með ein-
staklingum sem eiga erfitt með að tjá
tilfinningar sínar og eru lokaðir.
Leikum öll mörg hlutverk
Leiklistarmeðferðarfræðingar
vinna m.a. út frá þeirri hugmynd að
allir leiki mörg hlutverk í gegnum líf-
ið og því fleiri hlutverkum sem við
höldum á lofti og tengjumst því heil-
brigðari erum við. Stundum festumst
við í fáum eða jafnvel einu hlutverki
og þá þurfum við hjálp til þess að
tengjast öðrum hlutverkum í lífi okk-
ar og kynnast þeim betur.
„Það sem er gott við leiklistar-
meðferð er að maður er ekki alltaf að
vinna með sjálfan sig. Ekki beint.
Stundum líður manni illa en hefur
ekki hugmynd af hverju það er. Þá
næ ég betri árangri með því beita
öðrum aðferðum en að spyrja beint:
„hvernig líður þér?“ „hvað ertu að
hugsa?“ Þá er mjög gott að nota t.d.
frávarpsaðferðir, varpa vandanum
eitthvað annað og ræða það. Í minni
vinnu hef ég notað t.d. grímur, ljós-
myndir, dót, steina, kort, kvikmynd-
ir, og hlutverkaleiki. Í þessu sam-
hengi bendir Sigríður Birna á að
leiklistarmeðferð sé skyld listmeð-
ferð, þar vinnur fólk með annan efni-
við, t.d. teikningar, leir og fleira í
þeim dúr.
Í þau skipti sem Sigríður Birna
hefur kynnt starf leiklistarmeðferð-
arfræðingsins þá hefur hún undan-
tekningalaust fengið góð viðbrögð og
fólk er forvitið um starfið
Hún hefur unnið meira og
minna með unglingum og fjöl-
skyldum þeirra alla sína starfsævi.
Hún segir það einstaklega gefandi og
skemmtilegt starf. „Mér finnst ung-
lingar í dag alveg frábærir og á eng-
an hátt erfiðari nú en áður. Tilfinn-
ingarnar og vandamálin sem upp
koma eru svipuð og ég get ennþá sett
mig í spor þeirra,“ segir Sigríður
Birna.
Hún bendir á að það sem hafi
breyst mest á þessum tíma er net-
notkunin. Upplýsingaflæðið er orðið
mikið og unglingar þurfi að læra að
nota netið á ábyrgan hátt. „Hraðinn
og áreitið í nútímasamfélagi er einnig
mjög mikið og unglingar þurfa að
læra að vinna úr því.“
Leikið í
gegnum lífið
Námskeið í leiklistarmeðferð er eitt af þeim ótal fjöl-
breyttu og skemmtilegu námskeiðum sem eru í boði
við Listaháskóla Íslands á vormisseri. Sigríður Birna
Valsdóttir leiklistarmeðferðarfræðingur kynnir þessa
aðferð en hún sótti menntun sína til Bandaríkjanna.
Hún hefur unnið með börnum, unglingum og fjöl-
skyldum þeirra í nokkra áratugi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leiklistarmeðferðarfræðingur „Í leiklistarmeðferð eru aðferðir leiklistar notaðar til að hjálpa fólki að öðlast betri
skilning á sjálfu sér og umhverfi sínu og til að hvetja til breytinga.“ Þetta segir Sigríður Birna Valsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söngleikur Fyrir tveimur árum leikstýrði Sigríður Birna metnaðarfullum
söngleik um Konung ljónanna en í ár verður það Mama Mía.
Mið-Ísland, grínhópurinn er kominn
saman á ný og sýnir fyrir fullum sal
af fólki í Þjóðleikhúskjallaranum um
helgar. Uppselt var í janúar og hefur
hópurinn því bætt við sýningum.
Björn Bragi Arnarsson, einn af
meðlimum hópsins segir að gott sé
að skemmta fólki í kjallaranum og
kitla hláturtaugarnar. „Við erum
bæði að sjá fólk sem hefur komið oft
að sjá okkur og eins margt af nýju
fólki. Þetta er ný sýning þannig að
fólki sem hefur séð okkur áður er
óhætt að mæta, það eru allir með
glænýtt efni. Það er líka gaman að sjá
að fólk á öllum aldri er að koma á
sýningarnar. Þetta er ekki eins og
fyrst þegar við byrjuðum þegar það
voru bara vinir okkar sem mættu.“
Hann segir engar tvær sýningar al-
veg eins. „Það eru alltaf einhverjar
breytingar á milli sýninga. Bæði
þróast efnið sem við erum að vinna
með og eins tökum við kannski að-
eins fyrir málefni líðandi stundar.
Frumsýningin og lokasýningin eru
til dæmis yfirleitt mjög ólíkar, þá hef-
ur efnið breyst mikið hjá flestum.“
Þjóðleikhúskjallarinn hentar vel í
svona sýningu og er Björn sammála
því. „Við lítum á Þjóðleikhúskjall-
arann sem okkar heimavöll. Höfum
verið þar í nokkur ár og kunnum mjög
vel við okkur.
Ef við teljum með sýningarnar okk-
ar á landsbyggðinni þá voru það um
15 þúsund manns sem komu og kíktu
á okkur.“
Í þessari sýningu er Bergur Ebbi
ekki með en hann er í námi í Kanada.
Í hans stað munu Anna Svava, Saga
Garðarsdóttir og Þorsteinn Guð-
mundsson skiptast á að koma fram
með okkur.
„Anna Svava er með okkur núna og
er fáránlega fyndin. Hún er kasólétt
og gerir mikið grín að því. Saga Garð-
ars mætir svo til leiks í febrúar,“
sagði Björn Bragi.
benedikt@mbl.is
Mið Ísland mætt á ný í Þjóðleikhúskjallarann
Kjallarinn er okkar heimavöllur
Morgunblaðið/Golli
Mið-Ísland Í grínhópinn hafa bæst
Anna Svava og Saga Garðarsdóttir.
Frá árinu 2003 hefur hún starf-
að sem leiklistarkennari í Haga-
skóla. Undir hennar stjórn hefur
stór hópur nemenda sett reglu-
lega upp metnaðarfulla söng-
leiki. Fyrir tveimur árum settu
þau upp söngleikinn Konung
ljónanna. Sú sýning vakti mikla
lukku enda metnaðurinn ávallt
mikill.
Nú eru þau að setja upp
söngleikinn Mama mia þar sem
78 nemendur munu standa á
sviði. Þetta er tíundi söngleik-
urinn sem hún setur á svið.
Setur upp
Mama mia
SÖNGLEIKIR