Morgunblaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015 Í lausu lofti Dómararnir virtust harla ánægðir þar sem þeir fylgdust með Jóni Sigurði Gunnarssyni svífa í loftinu þar sem hann sýndi fimleikaatriði á Reykjavíkurleikunum í Ármannsheimilinu. Ómar Plötu Bjarkar, Vulnicura, var lekið á netið sunnudaginn 18. janúar. Hún kom út formlega tveimur dög- um síðar. Helstu er- lendu miðlar voru bún- ir að birta dóma fyrir þessa helgi. Morgun- blaðið birti dóm nú á laugardaginn og Víðsjá og Síðdegis- útvarpið brugðust við með úttektum. Hingað til hef ég ekki séð neitt mat lagt á plötuna annars staðar, en þetta er skrifað á sunnudags- morgni, 25. janúar. Illa brugðist við Miðað við virknina í tónlistarlífinu hérna heima, áhugann o.s.frv. finnst mér þessi vöntun hið undarlegasta mál. Sérstaklega í ljósi þess að fljótt er hægt að bregðast við á tækniöld og ekki vantar vitneskj- una hér eða skriffærn- ina. Nú erum við með (auk þess sem ég nefndi í upphafi) DV, Fréttablaðið og Fréttatímann og allir miðlarnir með vefsíður eðli- lega. Fjöldi útvarpsrása og ein- hverjar sjónvarpsstöðvar meira að segja. Kjarninn og Nútíminn eru í gangi (og Stundin brátt) og svo eru tónlistarvefsíður eins og Rjóminn, straum.is og albumm.is, Blær og Kvennablaðið. Og og og hýsingar- aðila vantar ekki. Mér liggur við að segja að þögnin sé ærandi. Enda- laust er skrifað um bankamál sem enginn skilur og enginn hefur áhuga á, rýnt er af krafti í íþróttirnar og lagt mat á stöðuna allan sólarhring- inn þar. En ekki í þessu tilfelli. Er mikilvægasti tónlistarmaður Íslands fyrr og síðar gefur út nýja plötu, sem er ekkert venjuleg þar að auki (sjá erlenda dóma), hafa landar hennar, sem búa yfir mikilvægu innsæi í list Bjarkar, ekki brugðist við. Hvar eru menningarrýnarnir? Ég er ekki að tala um fréttir af plötunni. Og ég hef átt gefandi skoð- anaskipti um plötuna á Fésbók, bæði á veggnum mínum og í sértækum tónlistarhópum en það er ekki held- ur það sem ég er að tala um. Það eitt og sér nægir ekki. Ég er að tala um dóma/pistla/greiningu, þar sem stig- ið er fram og gagnrýnið mat lagt á gripinn. Og þetta þarf ekkert að vera langhundur eður torf. Bara rökstuddar skoðanir, í einhverju formi. Er hægt að kenna smæð landsins um í þessu tilfelli? Varla, því að smæðina tiltökum við gjarnan til að hampa því hversu æðisleg við séum! Mér þætti vænt um ef einhver gæti hjálpað mér, því að ég skil þetta ekki. Er virkilega ekki vettvangur fyrir menningarrýna að stíga fram og taka púlsinn á svona viðburði eins og öðrum? Ég kalla eftir meiri grósku, meiri skrifum og meiri virkni hvað þetta varðar. Að þetta fólk sýni af sér sama dugnaðinn og listamennirnir sjálfir. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen »Er virkilega ekki vettvangur fyrir menningarrýna að stíga fram og taka púlsinn á svona viðburði eins og öðrum? Arnar Eggert Thoroddsen Höfundur er doktorsnemi í tónlistar- fræðum við Edinborgarháskóla og tónlistarblaðamaður. Björk og þögnin ærandi Nýverið var tilkynnt að ríkið hygðist hefja framkvæmdir við sjúkrahótel á lóð Land- spítalans (Lsp) við Hringbraut á vordögum og yrði það tilbúið eftir þrjú ár. Af þessu tilefni er haft eftir Stefáni B. Veturliðasyni fram- kvæmdastjóra hluta- félagsins um nýbygg- ingar spítalans, að þessu hóteli verði komið fyrir á bílastæðum við hlið kvennadeildarinnar … „þetta er ein- faldasta byggingin og ein sú minnsta sem til stendur að byggja á lóðinni“. Af fréttinni að dæma væri það ekki tiltökumál að byrja á þessu litla verk- efni í framtíðaruppbyggingu spít- alans sem væri nánast handan við hornið. Umgjörð þessarar fréttar vekur athygli, ekki síst í ljósi þess að látið er í veðri vaka að hér sé um sjálfsagt forgangsmál að ræða og mikið fram- faraspor fyrir alla hlutaðeigandi. Af þessu tilefni er haft eftir heilbrigðis- ráðherra að mikil hag- ræðing verði af fram- kvæmdinni sem spari spítalanum mikla fjár- muni: „Þetta er flókið og stórt verk og hag- ræðingin sem reiknuð er inn af sjúkrahótelinu er verulegur hluti þeirra 2,3 milljarða króna sem ætlað er að spara við að sameina sjúkrahúsið, starfsemi þess, undir einum hatti …“ Til að halda því til haga þá verður þetta hótel ekkert smotterí. Fjög- urra hæða með 77 herbergjum og fjögur þúsund fermetrar að stærð. Byggingakostnaður 1,5-2 milljarðar. Til að setja þetta í samhengi við þekktar stærðir þá er allur barna- spítalinn rúmir 6.000 fermetrar og Hótel Saga t.a.m. með um 200 her- bergi. Í allri framkvæmdinni sem fyrirhuguð er á lóð Lsp kannski ekki svo stór hluti eða um 6% áætlaðs byggingamagns. En á hins vegar að standa undir 35% af meintri hagræð- ingu við byggingu nýs Lsp að sagt er! Nú er það svo að sjúkrahótel er ekkert nýtt fyrirbæri. Hefur verið til staðar um árabil. Nú rekið skv. út- boði og á fjárreiðum Sjúkratrygg- inga Íslands (SÍ). Heildarverðmiðinn árið 2014 var um 102 miljónir fyrir 57 herbergi, sem talið var fullnægjandi og Lsp nýtti um 40 herbergjanna að jafnaði fyrir skjólstæðinga sína en 30-40% á annarra vegum. Í þessari tölu er heildarkostnaður, þ.e. hús- næði, fæði og þjónusta gesta hótels- ins. Er þá eitthvað að því fyrir- komulagi sem nú er við lýði sem kallar á bráðar breytingar og aukin útgjöld? Ýtarleg viðhorfskönnun sem bráðasvið Lsp gerði á afstöðu gesta til þjónustu sjúkrahótelsins sýnir að 97% eru ánægðir eða mjög ánægðir og 3% eru hlutlaus en enginn er óánægður. Jafnframt er talið að dvöl gesta á hlýlegu hóteli utan hefðbund- ins sjúkrahúsumhverfis geti hraðað bata og aukið virkni sjúklinga. Að ofansögðu er nokkuð ljóst að bygging sjúkrahótels verður að telj- ast hæpin yfir höfuð þó ekki nema á fjárhagslegum forsendum einum saman. Verið er að fara í mjög dýra framkvæmd og stækka hótelið um 20 herbergi frá því sem nú er og nokkuð ljóst að rekstrarkostnaður mun aukast til muna. En hafa ber í huga að hann er allur á forræði SÍ en ekki Lsp. Á þetta að vera slíkt forgangsmál sem af er látið? Hvernig á þessi bygging að geta skilað 35% af hag- ræðinu við nýjan Lsp? Ýmis þjónusta Lsp er í dag ekki ásættanleg eða er einfaldlega ekki til staðar. Þar er af ýmsu að taka. Nú ber að halda því til haga að stjórnvöld hafa nú hafið endurnýjun fyrirliggj- andi tækja skv. áætlun þar um og er það vel. En „nýjungar“ sem í ná- grannalöndum okkar þykja sjálf- sagðar og raunar hversdagslegar hafa setið á hakanum og er ekki ætl- að að gagnast íslenskum sjúklingum á næstunni. Hér má nefna dæmi af handahófi. Krabbameinssjúklingar mega t.d. búa við þá staðreynd að ekki er til á landinu, og verður ekki á næstu árum, jáeindaskanni (pet- skann) sem bætir greiningu krabba- meina og eftirfylgni krabbameins- meðferða til muna. Útvaldir fá þó að fara til Köben í þetta skann. Jáeinda- skanni greinir mun betur en venjuleg sneiðmynd úrbreiðslu krabbameina og stuðlar þannig að markvissari meðferð en ella (skurðaðgerð, geislar eða lyfjameðferð), sjúklingum til ómældra hagsbóta. Slíkt tæki með húsakosti er talið kosta svipaða fjár- hæð og fyrirhugað sjúkrahótel og mætti auðveldlega koma fyrir við K- byggingu Lsp á skömmum tíma, ef vilji er til, í stað nýrrar innkeyrslu á svæðið eins og nú er unnið að. Væri nú ekki nær að að nýta fjár- muni skynsamlegar en með nýju sjúkrahóteli. Til að mynda með jáein- daskanna? Þannig væri hægt að koma fjármagni fljótt og vel til vinnu með miklum ábata þeirra sem í hlut eiga. Það þarf ekki að bíða eftir nýj- um Lsp til að koma þessu á koppinn. Núverandi áætlun er í raun ólíðandi og engum til framdráttar. Eftir Stefán E. Matt- híasson » Væri nú ekki nær að að nýta fjármuni skynsamlegar en með nýju sjúkrahóteli, til að mynda með jáeinda- skanna? Stefán E. Matthíasson Höfundur er læknir og formaður Samtaka heilbrigðisfyrirtækja. Sjúkrahótel – skynsamleg forgangsröðun?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.