Morgunblaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015
DÚKAR RÚMFÖT HANDKLÆÐI SKYRTUR
Láttu okkur
sjá um
þvottinn
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Vinstri flokkurinn Syriza, með
Alexis Tsipras í broddi fylkingar,
vann í gær stórsigur í grísku þing-
kosningunum. Þegar búið var að
telja þriðjung atkvæða í gærkvöldi
var flokkurinn með 35,4 prósent at-
kvæða á bak við sig en Nýi lýðræð-
isflokkurinn, flokkur Antonis Sam-
aras núverandi forsætisráðherra,
var með 29 prósent atkvæða.
Þegar útgönguspár birtust, um
klukkan 17 að íslenskum tíma, var
þegar ljóst að Syriza-flokkurinn
hefði unnið sannfærandi sigur í
þingkosningunum. Af því tilefni
sagði talsmaður flokksins, Panos
Skourletis, í viðtali við grísku sjón-
varpsstöðina Mega TV að um sögu-
legan sigur væri að ræða.
„[Þetta eru] skilaboð sem ná ekki
einungis til grísku þjóðarinnar,
heldur munu þau enduróma um
gervalla Evrópu,“ sagði hann.
Vilja afskrifa evruskuldir
Nú kann svo að fara að Grikk-
land lendi upp á kant við alþjóðlega
lánadrottna sína enda hefur Syriza-
flokkurinn lýst því yfir að hann vilji
endursemja um fyrirkomulag er-
lendra lána og afskrifa að stórum
hluta erlendar skuldir Grikklands.
Hefur flokkurinn einnig talað fyrir
því að aðhaldsaðgerðum hins op-
inbera verði hætt hið fyrsta.
Núverandi ríkisstjórn Grikklands
hefur á sama tíma lagt áherslu á
áframhaldandi samstarf við Evr-
ópusambandið, Seðlabanka Evrópu,
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og frekari
aðhaldsaðgerðir, sem forsætisráð-
herrann segir hafa skilað miklum
árangri að undanförnu.
Var bjartsýnn á kjördag
Þegar Alexis Tsipras mætti á
kjörstað í Aþenu í gærdag gaf hann
sér tíma til þess að ræða stuttlega
við þá fjölmiðlamenn sem þar voru.
Sagði hann aðhaldsaðgerðir ekki
hluta af sameiginlegri framtíð Evr-
ópu. Þess í stað megi mun fremur
finna þar hugtök á borð við lýð-
ræði, samstöðu og samvinnu.
Antonis Samaras forsætisráð-
herra kaus í heimabæ sínum Pylos.
Í aðdraganda kosninganna hefur
hann m.a. lýst því yfir að með því
að kjósa vinstri flokkinn Syriza séu
Grikkir að taka mikla áhættu. Ráð-
herrann gaf fjölmiðlamönnum einn-
ig kost á stuttu viðtali á kjörstað og
sagði hann þá þingkosningarnar
snúast um hvort fólki kjósi að horfa
fram á veginn eða hvort menn vilji
heldur snúa sér að hinu óþekkta.
„Ég er bjartsýnn vegna þess að
ég trúi því að enginn muni stofna
Evrópuþátttöku lands okkar í
hættu,“ er haft eftir Samaras á
kjörstað.
„Þeir trúa ekki á Evrópu“
Í lokaræðum sínum fyrir nýaf-
staðnar kosningar fóru formenn-
irnir tveir mikinn og lofaði Tsipras
í ávarpi sínu að hann myndi end-
urheimta virðingu Grikklands út á
við. Samaras sagði það hins vegar
óráðlegt að kjósa Syriza-flokkinn
nú þegar fjárhagsleg endurskipu-
lagning, sem hann hafði stutt, væri
byrjuð að skila árangri, en skuldir
landsins eru um 175 prósent af
vergri landsframleiðslu.
„Syriza mun egna alla Evrópu
gegn Grikklandi [...] Þeir skilja
ekki Evrópu, þeir trúa ekki á Evr-
ópu,“ sagði ráðherrann í ávarpi
sínu.
Yfirburðasigur Syriza í Grikklandi
Vinstri flokkurinn Syriza mældist með 35,4% atkvæða í gærkvöldi þegar þriðjungur atkvæða hafði
verið talinn Sigur Syriza mun enduróma um gervalla Evrópu, er haft eftir talsmanni flokksins
AFP
Fögnuður Stuðningsmenn Syriza-flokksins fögnuðu ákaft þegar útgönguspár birtust enda var þá strax ljóst að
flokkurinn hefði unnið sannfærandi sigur í þingkosningunum. Sögðu þær flokkinn hljóta 35,5-39,5% atkvæða.
Skömmu áður en liðsmenn þýsku
öfgahreyfingarinnar PEGIDA fjöl-
menntu á götum Dresden í gærdag
birtist viðtal við Frank-Walter
Steinmeier, utanríkisráðherra
Þýskalands, þar sem hann sagði and-
múslímsk viðhorf hreyfingarinnar
skaða ímynd landsins erlendis.
„Hér heima vanmetum við skað-
ann sem slagorð og mótmælaspjöld
PEGIDA, um útlendingahatur og
rasisma, hafa þegar haft. [...] Hvort
sem við viljum það eða ekki þá fylgist
heimsbyggðin grannt með Þýska-
landi,“ sagði utanríkisráðherrann í
áðurnefndu viðtali við þýska dag-
blaðið Bild.
PEGIDA á Íslandi
Heiti samtakanna stendur fyrir
„Evrópskir föðurlandsvinir gegn ísl-
amsvæðingu Vesturlanda“ og voru
þau stofnuð í borginni Dresden. PE-
GIDA hefur nú einnig náð til Ís-
lands, en yfir 2.100 manns hafa þeg-
ar lækað Facebook-síðu þeirra hér.
AFP
Fjöldafundur Stuðningsmenn PEGIDA mættu með spjöld og fána á útifund
sinn í Dresden. Einn þeirra hélt á lofti afskræmdri mynd af kanslaranum.
PEGIDA skaðar
ímynd Þýskalands
Stuðningsmenn fjölmenntu í Dresden
Öfgasveitir Boko Haram réðust í
fyrrinótt á borgirnar Monguno og
Maiduguri í Nígeríu með tilheyr-
andi átökum og mannfalli. Hafa
sveitirnar nú náð yfirhöndinni í
Monguno, sem er í norðausturhluta
landsins, en meðal þess sem víga-
menn stjórna þar nú er herstöð sem
áður tilheyrði hersveitum Nígeríu.
„Við börðumst við þá í alla nótt
en þeim tókst engu að síður að ná
stjórn á bænum og herstöðinni sem
þar er,“ segir háttsettur nígerískur
hershöfðingi, sem ekki vildi koma
undir nafni, í viðtali við fréttaveitu
AFP. „Hermenn okkur neyddust til
þess að leggja á flótta eftir að hafa
barist við hryðjuverkamennina í
fjölmargar klukkustundir,“ hefur
AFP eftir öðrum hermanni. Búist
er við því að herinn geri fljótlega
áhlaup á sveitirnar í þeirri von að
ná herstöðinni aftur á sitt vald.
Um helgina réðust sveitir sam-
takanna á bæinn Kambari og létust
þá minnst 15, þar af fjölmörg börn.
Herstöð féll í hendur Boko Haram
AFP
Öfgamenn Leiðtoginn er til vinstri.
Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap-
ans, segir morð vígamanna Ísl-
amska ríkisins á japönskum gísl
vera bæði „svívirðilegt og ófyrir-
gefanlegt.“ Þá krefst forsætisráð-
herrann þess að öðrum japönskum
manni, sem samtökin halda í gísl-
ingu, verði sleppt án tafar, en um-
mælin lét hann falla í viðtali við jap-
anska fréttamiðilinn NHK.
Hinn látni hét Haruna Yakuwa
og starfaði hann sem verktaki á
sviði öryggismála. Hinn maðurinn
heitir Kenji Goto og starfar hann
sem blaðamaður. Ef marka má
myndband sem
öfgasamtökin
birtu á netinu um
helgina var Ya-
kuwa háls-
höggvin af víga-
mönnum.
„Slíkt hryðju-
verk er svívirði-
legt og ófyrirgef-
anlegt [...] Ég
fordæmi það
kröftuglega,“ sagði Abe jafnframt.
Forseti Bandaríkjanna hefur einnig
fordæmt þetta grimmilega morð.
Aftakan bæði svívirðileg og ófyrirgefanleg
Shinzo
Abe