Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015
Skákdagur Íslands er haldinn í dag á afmælisdegi FriðriksÓlafssonar, en hann er ekki eini skákmeistarinn sem á af-mæli. Bergsteinn Ólafur Einarsson er 34 ára í dag en hann
varð ólympíumeistari 16 ára og yngri árið 1995 með íslenska lands-
liðinu. Aðrir í sveitinni voru Jón Viktor Gunnarsson, Bragi Þor-
finnsson, Björn Þorfinnsson og Einar Hjalti Jensson. „Þetta var há-
punkturinn hjá mér í skákinni. Ég hef dregið mikið úr
taflmennskunni en tek þátt í einstaka hraðskákmótum og Íslands-
móti skákfélaga. Maður losnar aldrei við bakteríuna.“ Bergsteinn er
í dag með 2.221 stig. „Ég náði aldrei yfir 2.300 stig, mig minnir að
ég hafi náð hæst u.þ.b. 2.280 stigum upp úr aldamótunum.“
Bergsteinn er forstöðumaður Markaðsáhættu hjá Landsbank-
anum og hefur verið það síðustu þrjú ár, en starfið snýr að eftirliti
með markaðs- og lausafjáráhættu bankans. „Það er aldrei að vita
nema maður grípi í skák í tilefni dagsins til heiðurs Friðriki. Það
eru einhver skákborð hér í vinnunni og nokkrir fínir skákmenn.“
Bergsteinn hefur aðeins fiktað við brids síðustu árin. „Við vorum
nokkrir skákmenn sem langaði að prófa þetta og það er skemmti-
legt, en skákin er nú samt merkilegri.“
Foreldrar Bergsteins eru Einar Norðfjörð en hann var bæjar-
tæknifræðingur hjá Seltjarnarnesbæ og Kristín Þórðardóttir sem
var talsímavörður hjá Landsímanum en hún lést árið 2000.
Bergsteinn Einarsson er 34 ára í dag
Skákmeistari Bergsteinn mun líklega grípa í skák í dag en góð
aðstaða er til skákiðkunar á vinnustað hans, Landsbankanum.
Á afmæli á
skákdegi Íslands
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hafnarfirði Jóhannes
Ásgeir Bjarnason fædd-
ist 16. júní 2014 kl. 9.02.
Hann vó 4.280 g og var
52,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Hildur
Dögg Ásgeirsdóttir og
Bjarni Friðrik Jóhann-
esson.
Nýir borgarar
F
riðrik fæddist í Reykjavík
26.1. 1935 og ólst upp við
Laugaveginn, skammt
fyrir innan Hlemm.
Hann var í Austurbæj-
arskóla og Laugarnesskóla, lauk
landsprófi við Ingimarsskóla, stúd-
entsprófi frá MR 1955, helgaði sig síð-
an skákinni alfarið um nokkurra ára
skeið en hóf síðan nám í lögfræði við
HÍ 1962 og lauk embættisprófi þaðan
1968.
Friðrik var fulltrúi í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1968-74, at-
vinnuskákmaður 1974-78, forseti Al-
þjóða skáksambandsins, FIDE, 1978-
82, ritstjóri Lagasafns Íslands 1982-83
og skrifstofustjóri Alþingis 1984-2005.
Friðrik er einn sigursælasti skák-
meistari Íslendinga, fyrr og síðar og
var um skeið í hópi örfárra, allra
sterkustu skákmanna heims. Hann
varð fimm sinnum Íslandsmeistari í
skák, fyrst 1952, og tvisvar sinnum
Norðurlandameistari, 1953 og 1971,
varð alþjóðlegur skákmeistari 1956 og
Friðrik Ólafsson, stórmeistari og fyrrv. forseti FIDE – 80 ára
Tveir snillingar Friðrik Ólafsson og Bobby Fischer tefla á minningarmóti um Alékín heimsmeistara í Bled árið 1961.
Hógværi snillingurinn
Í úlfaldaferð Friðrik og Auður með Bergljóti og Áslaugu í Lanzarote, 1974.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
EKKISLEIKJA
MALBIKIÐ Í FROSTINU!
-NAGLADEKKIN
UNDIRHJÓLIÐ
FÁST ÍGÁP