Morgunblaðið - 22.04.2015, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. A P R Í L 2 0 1 5
Stofnað 1913 93. tölublað 103. árgangur
TÓNLISTAR-
HÁTÍÐ Í
HEIMAHÚSUM
GUÐJÓN OG
ARON GÆTU
MÆST Í ÚRSLITUM
HÚN ER ALLTAF
ÓAÐFINNANLEG
Í KLÆÐABURÐI
ÍÞRÓTTIR FLAGÐIÐ CLAIRE Í SPILABORG 10EIVÖR Í HAFNARFIRÐI 30
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leki Vatnið streymir út í Fnjóská.
„Þetta er ekki það sem við ósk-
uðum okkur og mun klárlega tefja
verkið,“ segir Einar Hrafn Hjálm-
arsson, staðarstjóri Ósafls, aðal-
verktaka Vaðlaheiðarganga, um
nýjasta vatnslekann í göngunum.
Þar streyma nú út austan megin um
500 lítrar á sekúndu af köldu vatni.
Valgeir Bergmann, fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga
hf., segir auðvelt að vera vitur eftir
á og segja að bora hafi mátt fleiri
rannsóknarholur í bergið, en það
hafi hins vegar ekki verið hægt að
sjá sprunguna fyrir sem opnaðist
núna. Til greina kemur að færa
bormenn yfir í Eyjafjörð, eftir að
stórum blásara hefur verið komið
upp í göngunum þeim megin. »9
Framkvæmdir tefj-
ast í Vaðlaheiði
Deilur harðna
» 16 félög í SGS hafa sam-
þykkt verkföll frá 30. apríl.
» Kjaradeilum nær allra ASÍ-
félaga vísað til sáttameðferðar.
» Lítið sem ekkert þokaðist á
sáttafundum í gær.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Hugmyndir um hækkun og breyting-
ar á persónuafslættinum eru meðal
þess sem komið hefur óformlega til
tals í samtölum viðsemjenda á al-
menna vinnumarkaðinum og við
stjórnvöld um leiðir til að koma kjara-
viðræðunum í gang.
Til tals hefur komið skv. heimildum
blaðsins að í tengslum við samkomu-
lag í kjaramálum verði persónuaf-
slátturinn hækkaður um tiltekna upp-
hæð og mögulega yrði einnig gerð sú
breyting á skattkerfinu að afsláttur-
inn færi stiglækkandi eftir því sem of-
ar drægi í tekjustiganum. Engin stað-
festing hefur þó fengist frá
ríkisstjórninni á þessu. Þorsteinn
Víglundsson, framkvæmdastjóri SA,
staðfestir það eitt að menn hafi velt
vöngum yfir hvort og þá með hvaða
hætti breytingar á persónuafslætti
gætu komið að gagni í viðræðunum en
það sé allt mjög óformað.
Töluverð umræða hefur einnig far-
ið fram um eflingu starfsmenntunar
m.a. í verslun og ferðaþjónustu sem
geti skilað starfsfólki meiri launa-
hækkunm og aukið framleiðni.
MLeita að þráðum »4
Persónuafsláttur skoðaður
Óformlegar hugmyndir um breytingar í skattakerfinu og um eflingu starfs-
menntunar taldar geta liðkað fyrir í kjaradeilum SGS samþykkir verkföll
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
(þegar komið var fram á nótt í
Melbourne í Ástralíu, þar sem hún
er stödd á jarðhitaráðstefnu) að
það lægi fyrir að frumvarp hennar
um náttúrupassa yrði ekki afgreitt
sem lög á þessu þingi og hún hefði
engin áform um að leggja frum-
varpið fram aftur á næsta þingi.
Ráðherra sagði að leita yrði ann-
arra leiða til þess að tryggja að
staðinn yrði vörður um þær nátt-
úruperlur sem væru á forræði rík-
isins. „Viðfangsefnið fer ekki frá
okkur þótt náttúrupassinn verði
ekki að veru-
leika. Við ber-
um enn ábyrgð
á því að upp-
bygging á inn-
viðum fari fram
á ferða-
mannastöð-
unum. Þá
ábyrgð munum
við axla, óháð
örlögum þessa
frumvarps,“ sagði Ragnheiður
Elín. Ráðherra sagði að stjórnvöld
yrðu að hugsa uppbyggingu
þeirra ferðamannastaða sem ríkið
bæri ábyrgð á út frá þeirri
ábyrgð.
„Það er það sem við erum að
skoða núna og þá fjármögnun sem
við verðum að afla til verkefnisins
munum við tryggja úr ríkissjóði
reynist ekki samstaða um aðrar
fjármögnunarleiðir,“ segir Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra.
MNáttúrupassi » 15
Fjármögnun úr ríkissjóði líkleg
Ráðherra gefur náttúrupassa upp á
bátinn Leitað verður annarra leiða
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
„Við hefðum aldrei þorað að vona að svona vel
færi. Þetta er í raun kraftaverk,“ segir Bjarni
Einarsson, faðir drengjanna Einars Árna og
Hilmis Gauta sem voru nær drukknaðir við Reyk-
dalsstíflu í Hafnarfirði. Aðeins viku eftir slysið
eru þeir hins vegar hinir hressustu og skarta sín-
um breiðustu brosum, hlaupa um gangana og nán-
ast ómögulegt er að greina að þeir hafi verið í lífs-
hættu fyrir aðeins fáeinum dögum.
Í ítarlegu viðtali við fjölskylduna á mbl.is vildi
fjölskyldan öll koma á framfæri þakklæti til
þeirra sem hafa hjálpað þeim að ná bata eftir slys-
ið; björgunaraðilum, starfsfólki Landspítalans,
lögreglunni og öðrum sem komu að fyrstu hjálp.
if@mbl.is
Kraftaverkabræður sem brosa nú við lífinu
Morgunblaðið/RAX
Hlýr fjölskyldufaðmur Frá vinstri Einar Árni, Hafdís Jónsdóttir, Bjarni Einarsson, Hilmir Gauti, Jón Axel og Kristjana Júlía.
Jón Helgi Egilsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans, segist
lengi hafa verið þeirrar skoðunar
að rannsaka beri viðskiptin með
danska bankann FIH á sínum tíma.
Hann bendir á að traust veð hafi
verið fyrir láni Seðlabanka Íslands
til Kaupþings, seðlabankastjóri hafi
gefið það út að skýrsla yrði gerð
um málið í febrúar í vetur. »12
Vill rannsókn á við-
skiptunum með FIH
Ferðamönnum
sem leggja á Sól-
heimajökul fjölg-
ar ár frá ári og
fara margir að
honum án leið-
sagnar. Leið-
sögumaður segir
„frumskógarlög-
mál“ gilda við
jökulinn.
Sveinn Krist-
ján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á
Hvolsvelli, kveðst hafa áhyggjur af
ferðamönnum á svæðum á borð við
Sólheimajökul og Breiðamerkur-
sand. »4
Án leiðsagnar á
Sólheimajökul
Hætta Fjölmargir
leggja á jökulinn.
Laun á Íslandi þau
7. hæstu í Evrópu
Útborguð laun á Ís-
landi umreiknuð í evr-
ur hafa hækkað mikið
síðan árið 2009 og
voru þau orðin þau
sjöundu hæstu í Evr-
ópu við síðustu ára-
mót, samkvæmt hag-
stofu ESB, Eurostat.
Hagfræðingur segir
þetta sýna að Ísland sé ekki lág-
launaland. »12