Morgunblaðið - 22.04.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
VITA
léttir þér
lífið
VITA er lífið
Vaxtalaus ferðalán
til allt að 12mánaða
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
74
07
9
4/
20
14
Fjölskyldan kemst í sólinameðVITA fyrir aðeins
25.900kr. ámánuði*Vaxtalaust
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
*M.v. 2 fullorðna og 2 börn til Mallorca eða Calpe á völdum dagsetningum.
Skráðu þig í netklúbbinn -VITA.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nú þegar allir bíða í ofvæni eftir vorinu er um að gera
að flikka svolítið upp á útlitið og létta á hárvextinum.
Hundurinn Nökkvi var einn þeirra sem fóru í hársnyrt-
ingu á dögunum hjá Sunnu Dís, hundasnyrti á hunda-
snyrtistofunni Gæludýr.is. Væntanlega hefur Nökkvi
fisléttur tekið til við lipur hlaup þegar út var komið.
Nökkvi fór í hársnyrtingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gott er að létta svolítið á skrokknum fyrir vorhlaupin
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra segir það nú vera ljóst að
Evrópusambandið taki mark á bréfi
íslenskra stjórnvalda þar sem sagði
að Ísland væri ekki lengur umsókn-
arríki um aðild að ESB og segir hann
að sambandið muni bregðast við
bréfinu.
Vísar hann þar til ákvörðunar sem
tekin var á fundi ráðherraráðs ESB
um almenn málefni, um að Evrópu-
sambandið fari yfir ákveðna verk-
ferla í kringum aðildarviðræður um-
sóknarríkja ESB.
Tillagan var lögð fram af utanrík-
isráðherra Lettlands á fundi ráðsins
í gær og er tillagan komin til vegna
þess sem fram kom í umræddu bréfi
utanríkisráð-
herra en þar fóru
íslensk stjórnvöld
fram á að sam-
bandið færi yfir
verkferla í kring-
um aðildarvið-
ræður.
„Þetta verður
ekki skilið öðru
vísi. Þeir taka mið
af því sem íslensk
stjórnvöld segja í sínu bréfi og telja
svo þarna að þeir ætli að fara í gegn-
um sína verkferla og annað,“ segir
Gunnar Bragi.
Mikið var deilt um bréfið í síðasta
mánuði og sögðu þingmenn stjórn-
arandstöðuflokkanna að Evrópu-
sambandið gæti ekki tekið mark á
bréfinu þar sem ekki lægi fyrir
þingsályktun um afturköllum ESB-
aðildarumsóknarinnar. Gunnar segir
þessa ákvörðun ráðherraráðsins
taka af allan vafa um hvort ESB
hyggist bregðast við bréfinu.
„Ég tel þetta vera mjög gott svar.
Þetta er niðurstaða þessa ráðs og ég
geri ráð fyrir að þetta verði svarið
sem við munum fá frá þeim form-
lega. Þegar það kemur þá geri ég ráð
fyrir að þetta verði innihaldið,“ segir
Gunnar Bragi. Hann segist ekki eiga
von á því að neitt komi frá Evrópu-
sambandinu til íslenskra stjórnvalda
nema staðfesting á þessu.
„Síðan förum við að tínast af list-
um,“ segir Gunnar og bætir við að
með þessu sýni ráðherraráðið og
sanni að það ætli sér að virða vilja ís-
lenskra stjórnvalda. „Enda kom ekk-
ert annað til greina,“ segir hann.
ESB tekur ákvörðun
vegna bréfs ráðherra
Gunnar Bragi
Sveinsson
Utanríkisráðherra segir ljóst að ESB taki mark á bréfinu
Heppinn áskrifandi Morgunblaðsins
eignast glænýja Toyota Corolla-
bifreið í dag. Dregið verður í áskrif-
endahappdrætti Morgunblaðsins
fyrir hádegið. Strax verður haft
samband við vinningshafann þegar
nafn hans hefur verið dregið út.
Vinningurinn er Toyota Corolla
af nýjustu kynslóð og hlaðin auka-
búnaði. Verðmæti bílsins er
4.899.000 krónur. Mörgum les-
endum er í fersku minni þegar
happdrættið um þennan bíl var
kynnt 27. febrúar sl. og Morgun-
blaðinu var snúið við. Leikurinn
með blaðið og happdrættið er sam-
starfsverkefni Morgunblaðsins og
Toyota á Íslandi. Toyota fagnar því
á þessu ári að liðin eru 50 ár frá því
að fyrsta Toyota-bifreiðin var flutt
til landsins.
Þetta er í annað skiptið á árinu
sem Morgunblaðið efnir til áskrif-
endahappdrættis þar sem bifreið er
í vinning. Hjónin Einar Guðmunds-
son og Ásdís Svava Hrólfsdóttir frá
Bolungarvík unnu Volkswagen
e-Golf bifreið að verðmæti 4.490.000
krónur þegar dregið var í áskrif-
endahappdrættinu 20. febrúar sl.
Einar þakkaði konu sinni að þau
unnu bílinn og sagði: „Hún vildi
ekki segja Morgunblaðinu upp á
meðan við skruppum til Kanarí.“
Allir sem greiða áskrift að
Morgunblaðinu, hvort heldur í
prentútgáfu eða rafrænni útgáfu,
eru sjálfkrafa þátttakendur í happ-
drættinu.
Áskrifendahappdrætti Morgun-
blaðsins heldur áfram og verður nýr
bílavinningur kynntur í lok mán-
aðarins. gudni@mbl.is
Dregið í áskrifendahapp-
drætti Morgunblaðsins í dag
Ljósmynd/Torfi Agnarsson
Vinningur Einhver áskrifandi
Morgunblaðsins eignast þennan bíl.
Glæný Toyota
Corolla í vinning
„Við vorum með tæp 47 tonn í ár á
móti 23 tonnum í fyrra,“ segir Þórð-
ur Birgisson á Mána ÞH 98 sem
stímdi hægt og rólega í átt að heima-
bryggju á Húsavík eftir grásleppu-
vertíð. Aflinn í lokatúrnum var 5,6
tonn.
Þórður ætlar að huga að vélar-
skiptum nú þegar hann er búinn
með veiðidagana sína en alls mátti
veiða í 32 daga. „Ég er með Daewoo-
vél í bátnum, hún eyðir nánast engri
olíu þannig að ég er aðeins að melta
þetta.“
Grásleppuveiði hefur verið víða
góð fyrir norðan. „Það er alveg bölv-
að að þurfa að taka upp í svona mok-
veiði,“ sagði Þórður. benedikt@mbl.is
Bölvað að þurfa að taka upp
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Banaslys varð í gærdag þegar fólks-
bíll og jepplingur sem mættust á
Biskupstungnabraut skullu saman
nokkuð ofan við Borg í Grímsnesi.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar, Ís-
lendingur á sjötugsaldri, sem var
einn í bílnum, lést en erlend hjón í
jepplingnum voru flutt á slysadeild
Landspítala. Endurlífgunartilraunir
sem vegfarendur, þ.m.t. ökumaður
og farþegi hinnar bifreiðarinnar
hófu á vettvangi og var fram haldið á
leið á sjúkrahús af sjúkraliði báru
ekki árangur og var maðurinn úr-
skurðaður látinn fljótlega eftir komu
þangað.
Þetta er fimmta banaslysið í um-
ferðinni í ár.
Banaslys í
Grímsnesi
Sumardagurinn fyrsti verður held-
ur kaldur samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar. Spáð er norðanátt
með éljum á Vestfjörðum, Norður-
og Austurlandi.
Þá er reiknað með frosti víða um
land en á Suðurlandi á þó að hald-
ast þurrt og hitinn þar nokkrar
gráður yfir frostmarki yfir daginn.
Þar ætti auk þess að sjást til sólar.
Reiknað er með að kuldakastið
standi fram í næstu viku.
Sumardagurinn
fyrsti verður kaldur
Huginn VE-55 er væntanlegur til
Vestmannaeyja seinni partinn í dag
með um 1.850 tonn af kolmunna. Afl-
inn verður unninn í mjöl og lýsi. Um
tugur íslenskra skipa var að kol-
munnaveiðum í gær syðst í færeysku
lögsögunni við landhelgismörkin að
þeirri skosku. Tólf íslensk skip mega
vera þar samtímis að veiðum. Ein-
hver voru farin í land með afla.
Fjöldi skipa af ýmsu þjóðerni var
á kolmunnaveiðum beggja vegna lín-
unnar í gær. „Ég taldi þarna um sjö-
tíu skip um daginn. Það voru Fær-
eyingar, Rússar, Íslendingar og
Norðmenn,“ sagði Guðmundur Hug-
inn Guðmundsson, skipstjóri á Hug-
in. Hann sagði að ekki hefði verið
mikill kraftur í veiðum. „Við þurftum
að draga lengi og það gaf eitthvað
bara part úr sólarhringnum. Það var
lítið á kvöldin og nóttunni. Það
veiddist aðallega á morgnana og eitt-
hvað yfir daginn. Stundum var þetta
ágætt en það var eins og gengur þeg-
ar svona margir eru að veiðum.“
Guðmundur segir að aflinn sé
ágætis kolmunni en aðeins blandað-
ur. Hann segir að þeir ætli að bíða
aðeins með að hefja kolmunnafryst-
ingu um borð.
Þröng á
kolmunna-
miðunum