Fréttablaðið - 09.11.2015, Side 4
Skin Blossom eru margverðlaunaðar
lífrænt- og veganvottaðar húðvörur.
Innihalda ekki paraben, silikon, tilbúin litar/ilmefni eða önnur skaðleg efni.
Fást í Heilsuveri Suðurlandsbraut 22,
á Heimkaup.is og í Akureyrarapóteki Kaupangi.
Facebook: Skin Blossom á Íslandi.
400.000
380.000
360.000
340.000
320.000
300.000
280.000
260.000
240.000
220.000
200.000
0-70 m2 210+ m2 heimild: þjóðskrá Íslands
✿ Þróun fermetraverðs á höfuðborgarsvæðinu eftir stærð
Viðskipti Eftirspurn eftir litlum íbúðum
hefur sjaldan verið meiri en um þessar
mundir. Samkvæmt nýrri skýrslu
Greiningar Íslandsbanka er fermetra-
verð íbúða í minnsta stærðarflokki (0
til 70 fermetrar) orðið 50 prósentum
hærra en íbúða í stærsta stærðarflokki
(210 fermetrar og þar yfir). Munurinn
nam 15 prósentum þegar íbúðaverð
var með hæsta móti fyrir hrun. Ný
rannsókn Jóhanns Sigurðssonar arki-
tekts sýnir að stórt húsnæði er lágt á
forgangslistanum bæði hjá ungu fólki
og svo eldra fólki með háar tekjur. Þrátt
fyrir vaxandi kaupmátt almennings
virðist eftirspurn eftir stærra húsnæði
ekki hafa vaxið eins og fyrir hrun. Ef
til vill á eftirspurnin eftir stærra hús-
næði hins vegar eftir að fylgja þegar við
færumst frekar inn í þenslutímabilið
að mati Ingólfs Bender, forstöðumanns
Greiningar Íslandsbanka.
Jón Guðmundsson, annar eigenda
Fasteignamarkaðarins, segist hafa fund-
ið fyrir minni eftirspurn eftir stærri fast-
eignum að undanförnu, en staðsetning
minni íbúðanna skýri að hluta til verð-
muninn. „Vegna aukinnar eftirspurnar
og lítils framboðs af minni eignum þá
hefur fermetraverð þeirra hækkað veru-
lega. Það eru trúlega að uppistöðu til
þær eignir sem eru miðsvæðis á höfuð-
borgarsvæðinu sem skapa þennan til-
vitnaða þverskurð. Það er mun meiri
eftirspurn eftir eignum miðsvæðis en
í úthverfum,“ segir Jón. Hann bendir
einnig á að 80 prósent allra kaupsamn-
inga á þessu tímabili varði minni eignir
en 20 prósent varði stærri eignir og þar
séu verðsveiflurnar miklu meiri.
Jón telur að breytingar á lánastarf-
semi bankanna hafi að hluta til valdið
þessari breytingu. „Það hafa alltaf
verið miklu fleiri kaupendur að minni
eignum en stærri. Í uppsveiflunni fyrir
hrun voru bankar að lána 90 og allt að
100 prósent af andvirði stórra eigna og
þar af leiðandi voru miklu fleiri kaup-
endur að þeim eignum. Nú er mun
erfiðara að fá lán fyrir stærri eignum og
kaupendur þurfa að leggja fram meira
eigið fé,“ segir Jón.
Aðspurður segir Jón að tíminn sem
litlar íbúðir seljast á hafi styst en tím-
inn sem stærri og dýrari eignir seljast á
hafi lengst síðustu mánuði. Hann telur
trúlegt að verkföll og samningar sem
staðið hafa yfir um launakjör fólks hafi
spilað að einhverju leyti þar inn í. „Við
reiknum með að það tímabil sé yfir-
stigið þannig að markaðurinn gæti
færst aftur í eðlilegra horf,“ segir Jón.
Hann segir erfitt að meta sölutímann
á stærri eignum en minni og vel stað-
settar eignir seljist í fleiri tilfellum en
færri á viku til tíu dögum.
Ingólfur tekur undir með Jóni að
eftirspurn eftir stærra húsnæði eigi ef
til vill eftir að aukast á komandi miss-
erum, í efnahagsuppsveiflu hafa stærri
íbúðirnar fylgt eftir síðar. „Þetta hefur
byrjað í smáu og eftir að hagur heimil-
anna vænkast og fleiri hafa efni á því að
búa stærra, þá fylgir eftirspurnin þar á
eftir,“ segir Ingólfur.
saeunn@frettabladid.is
Minni áhugi er á stærri húsum en fyrir hrun. Ástæða þess er meðal annars að fólk þarf að tefla fram mun meira eigin fé í dag.
Fréttablaðið/Ernir
Stærri íbúðir eru að detta úr tísku
Eftirspurn eftir minni íbúðum hefur aukist töluvert og er fermetraverð þeirra orðið 50 prósentum hærra en stærra húsnæðis.
Samkvæmt nýrri könnun hefur ekki einungis ungt fólk heldur einnig eldra tekjuhærra fólk áhuga á að búa í litlum íbúðum.
Stór hús fá lítið vægi
Rússland Vladimír Pútín Rússlands-
forseti tekur þátt í loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna, sem haldin
verður í París dagana 30. nóvember
til 11. desember næstkomandi.
Laurent Fabius, utanríkisráðherra
Frakkslands, staðfesti þetta í gær.
Pútín mun hitta þar bæði Barack
Obama Bandaríkjaforseta og Xi
Jinping, forseta Kína, auk fjölmargra
annarra þjóðarleiðtoga.
Fyrirkomulagið á ráðstefnunni
verður frábrugðið fyrri ráðstefnum
þar sem þjóðarleiðtogar hafa ekki
komið fyrr en undir lokin, þegar
undirsátar þeirra hafa fundað dögum
saman. Í þetta skiptið koma þeir
strax í byrjun viðræðna, sem þykir
auka líkurnar á því að samkomulag
takist að þessu sinni.
Rússland hefur þarna mikilvægu
hlutverki að gegna vegna þess hve
fyrirferðarmikið landið er í olíufram-
leiðslu heimsins.
Markmiðið er að ná samkomu-
lagi sem tryggir að dregið verði úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
Vegna þess hve illa hefur gengið
að ná samkomulagi á mörgum fyrri
ráðstefnum þykir orðið of seint að
stefna að því marki, að hitastig and-
rúmslofts jarðar hækki ekki meira en
2 gráður. Þess í stað er nú stefnt að því
að setja markið við 2,7 gráður. – gb
Rússlandsforseti ætlar til Parísar
Vladimír Pútín rússlandsforseti. Fréttablaðið/EPa
2,7
gráður á Celsíus er markið
sem nú er miðað við í stað
tveggja gráða áður.
ta í Van X i J i n p i n g , f o r s e t i
Kína, skrapp til Taívans á laugar-
daginn og spjallaði í um klukku-
stund við Ma Ying-jeou, forseta
Taívans.
Þetta þótti afar sögulegur fundur
þar sem leiðtogi Kína hefur aldrei
áður farið til Taívans, hvað þá átt
í viðræðum við þjóðarleiðtogann
þar.
Kína viðurkennir ekki sjálfstæði
Taívans, heldur lítur á eyjuna sem
hérað í Kína. Taívan hefur hins
vegar haft sjálfstæða ríkisstjórn
allar götur frá árinu 1949 þegar
Mao Tse Tung og félagar hans
gerðu byltingu og stofnuðu komm-
únistaríki í Kína.
Chang Kai-shek, þáverandi leið-
togi Kína, flúði til Taívans ásamt
stjórn sinni og viðurkenndi aldrei
kommúnistastjórnina á megin-
landinu.
Stjórnin í Taívan viðurkennir því
enn ekki Kínastjórn, ekki frekar en
Kínastjórn viðurkennir Taívans-
stjórn.
Samskipti ríkjanna hafa þó
eitthvað verið að skána á síðustu
árum. Viðskiptasamningur hefur
verið gerður og íbúum beggja
landa er að mestu frjálst að ferðast
á milli.
Ma Taívansforseti og flokkur
hans, Kuomintang, riðu ekki feit-
um hesti frá sveitarstjórnarkosn-
ingum á síðasta ári. Þar er helst
um kennt ótta íbúa Taívans við að
Kína komi til með að notfæra sér
þessi auknu samskipti ríkjanna til
þess að hafa áhrif á stjórnarhætti í
Taívan. – gb
Leiðtogar Kína og Taívans á sögulegum fundi um helgina
Ma Ying-jeou og Xi Jinping, forsetar
taívans og Kína, á stuttum, sögulegum
fundi um helgina. nordicPhotos/aFP
Taívan hefur haft sjálf-
stæða ríkisstjórn frá árinu
1949 þegar Mao Tse Tung og
félagar gerðu byltingu og
stofnuðu kommúnistaríki í
Kína. Stjórnin í Taívan viður-
kennir því ekki Kínastjórn
um leið og Kína viðurkennir
ekki sjálfstæði Taívans.
Lokaverkefni Jóhanns Sigurðssonar
arkitekts til MBA-prófs við Háskóla
Íslands er að rannsaka þarfir og for-
gangsröðun fólks þegar kemur að
íbúðarhúsnæði. Í spurningakönnun
bað hann fólk að forgangsraða eftir
mikilvægi frítíma, stóru íbúðarhús-
næði og fjárhagslegu svigrúmi. Þar
fékk stórt íbúðarhúsnæði aðeins
0,7 prósent atkvæða í fyrsta sæti.
Fjárhagslegt svigrúm fékk 54 prósent
atkvæða og frítími 45 prósent. Þetta
átti við um alla aldurshópa en alveg
sérstaklega hjá fólki 24 til 34 ára.
430 manns tóku þátt í rann-
sókninni. Jóhann segir að það sem
lesa megi úr þessari könnun sé að
mikil vöntun sé á minni íbúðum og
að þær íbúðir sem eru í sölu séu mun
stærri en yngri hópar kjósa. „Það þarf
að kanna þarfirnar til að einstakir
hópar verði ekki út undan eins og nú
hefur orðið. Það er ekki bara fólkið
en líka eldri hópar og tekjuháir sem
segjast vilja búa í minni íbúðum,“
segir Jóhann. „Þessi kynslóð leggur
meira upp úr upplifun og minna upp
úr efnislegum gæðum en fyrri kyn-
slóðir. Hún vill ekki láta skammta sér
gæði. Hún er tilbúin að sætta sig við
minna en vill fá að velja sjálf hvaða
gæði hún fær.“
9 . n ó V e m b e R 2 0 1 5 m Á n U d a G U R4 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-0
1
F
4
1
6
E
E
-0
0
B
8
1
6
E
D
-F
F
7
C
1
6
E
D
-F
E
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
8
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K