Fréttablaðið - 09.11.2015, Blaðsíða 18
Það er frábært að vera komin í eigið húsnæði, yndislegt líf,“ segir Erla Dröfn Kristjánsdóttir hjúkr unar
fræðingur en hún keypti nýlega sína
fyrstu íbúð, rúma sextíu fermetra. Stór
pallur fylgir íbúðinni þar sem Erla seg
ist sjá fyrir sér skemmtilegar garðveislur
í sumar. „Ég er þegar búin að plana fyrsta
grillpartíið,“ segir hún hress.
Erla hafði leitað sér að íbúð í hálft ár
áður en hún festi sér þessa. Áður hafði
hún verið á leigumarkaðnum en flutti
aftur heim til foreldra sinna og bjó þar
í um eitt ár áður en hún keypti sitt eigið
húsnæði. „Þá náði ég að safna fyrir út
borgun,“ segir hún og spurð hvaða ráð
hún eigi handa þeim sem séu í kauphug
leiðingum í fyrsta sinn segir hún númer
eitt tvö og þrjú að safna.
„Maður þarf að vera duglegur að leggja
fyrir og taka alltaf einhvern hluta launa
hvers mánaðar frá. Svo þarf maður bara
að vera meðvitaður um hvað maður vill,
hvernig íbúð hentar og liggja yfir miðl
unum og skoða það sem kemur á sölu.“
Þótt íbúðarleit Erlu hafi staðið í hálft
ár endaði hún á að kaupa íbúð sem hún
féll fyrir í upphafi leitar.
„Ég hafði séð þessa íbúð á sölu áður
og farið að skoða en þá hafði ég ekki
efni á henni. Hálfu ári síðar var hún
komin aftur á sölu og þá var ég búin
að safna nóg. Það var bara eins og hún
hefði verið ætluð mér. Þegar ég skoð
aði hana í fyrra skiptið þurfti að skipta
um gólfefnin og mála og það var akk
úrat það sem eigendurnir í millitíð
inni höfðu gert. Hún var því bara eins
og sniðin fyrir mig og ég þurfti ekkert
að gera, bara f lytja inn,“ segir Erla en
undanfarnar vikur hefur hún verið að
koma sér fyrir.
„Mig vantaði í raun allt nema rúm. Það
var rosalega gaman að geta valið mér
hluti og húsgögn eftir mínum smekk.
Enginn að skipta sér af,“ segir hún hlæj
andi. „Það er gaman að geta gert heimilið
að sínu eigin. Það er ákveðið frelsi í því.
Ég er búin að sanka að mér dóti héðan og
þaðan. Amma og afi gáfu mér ísskáp og
ég fékk gamalt sjónvarp hjá pabba. Svo
hef ég fundið mikið gegnum Bland, not
aða en samt nýlega hluti. Mér líður best
í björtu umhverfi,“ segir Erla.
Þegar verið er að koma upp heimili er
ekki verra að kunna að fara með hamar
og nagla. Ertu handlagin?
„Þar kemur að mínum veikleika, ég er
ekkert í því að bora og festa upp hillur,“
segir Erla hlæjandi. „Ég hef verið að bíða
með það þar til ég fæ aðstoð og þang
að til ég finn út hvar ég vil hafa hlutina.
Þegar sú ákvörðun hefur verið tekin mun
ég bara hafa yfirumsjón með verkinu. Ég
setti þó upp gardínurnar sjálf, það finnst
mér bara nokkuð gott.“
Gaman að gera heimilið að sínu
Fyrstu íbúðakaupin eru jafnan stór áfangi á lífsleiðinni. Það er bæði spennandi og skemmtilegt að koma sér fyrir í eigin húsnæði.
Erla Dröfn Kristjánsdóttir segir frelsandi að geta hagað hlutunum eftir eigin höfði.
Heima er best. Erla Dröfn Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur festi nýlega kaup á sinni fyrstu íbúð og segir yndis-
legt líf að eiga sitt eigið heimili. MYND/GVA
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Ein mikilvægasta ákvörðunin sem við tökum
er að fjárfesta í íbúð. Þess vegna skiptir máli
að hafa fjölbreytta valkosti og góða ráðgjöf í
takt við ólíkar þarfir. Allt sem skiptir máli um
fyrstu kaup, á landsbankinn.is/ibudalan.
„Auðvitað er
stórt skref
að kaupa íbúð“
Engin lántökugjöld
við fyrstu kaup.
Fjármögnun allt að
85% af markaðsvirði.
Fjölbreyttir lánakostir
í takt við þínar þarfir.
Mig vantaði í raun allt
nema rúm. Það var
rosalega gaman að geta valið
mér hluti og húsgögn eftir
mínum smekk. Enginn að
skipta sér af.
Kynning − auglýsingHúsnæðislán 9. nóvEmbEr 2015 mÁnUDAGUr2
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-3
3
5
4
1
6
E
E
-3
2
1
8
1
6
E
E
-3
0
D
C
1
6
E
E
-2
F
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
8
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K