Fréttablaðið - 30.11.2015, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 0 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 3 0 . n ó v e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðmundur Andri skrifar
um föstudaginn ranga. 11-12
sport Frá Hetti í ensku úrvals-
deildina á þremur árum. 14
lÍfið Glowie gefur út nýtt lag og
eyðir jólunum á Barcelona. 24-26
plús 2 sérblöð l fólk
l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Í síðasta sinn Ljósin á Óslóartrénu voru tendruð á Austurvelli í gær. Borgarstjórnin í Ósló hefur ákveðið að senda ekki fleiri tré. Það var Birkir Elías,
sjö ára, sem tendraði ljósin á trénu. Héðan í frá mun jólatréð á Austurvelli því verða höggvið í Norðmannalundi í Heiðmörk. Fréttablaðið/Ernir
landbúnaður Slátrun á hrossum hefur
verið í algjöru lágmarki síðustu mánuði
eftir að Rússlandsmarkaðir lokuðust á
árinu. Sláturleyfishafar geta því ekki
tekið inn hross til slátrunar og sitja
margir bændur uppi með hross sem
þeir vonuðust eftir að geta losað sig
við. Ágúst Andrésson, forstöðumaður
kjötafurðastöðvar KS, segir fáa vera að
slátra hrossum í einhverju magni þessa
dagana.
Ágúst segir markaði í Rússlandi hafa
verið einkar hagfellda fyrir útflutning á
hrossum. Bæði hafa þeir markaðir tekið
við öllu kjöti af skrokknum og gott verð
fengist. Síðustu mánuði hefur síðan
lítið sem ekkert komist á þá markaði.
„Því eru menn aðeins að vinna inn á
lítinn innanlandsmarkað,“ segir Ágúst.
„Við höfum verið að leita fyrir okkur á
öðrum mörkuðum, svo sem í Japan, og
það gæti farið að gefa góða raun. Hins
vegar er sá markaður ekki fyrir allt kjöt
af hrossi og því þyrftum við að komast
á Rússamarkað áður en langt um líður.“
Nú fer í hönd tími þar sem hrossa-
bændur fara að gefa stóðum sínum
og því er ærinn kostnaður í að halda
hrossum á fóðrum sem bíða slátrunar.
Vitað er í sláturhúsi B. Jensen í Eyjafirði
að hrossabændur sumir hverjir séu að
bíða með hross sem þeir pöntuðu inn
til slátrunar í júní í sumar. Um 9.300
hrossum var slátrað á landinu í fyrra
og ljóst er að sú tala verður mun lægri
á þessu ári. Rúmlega 70.000 hross eru
til í landinu hverju sinni. Aukinn fjöldi
hrossa mun auka heyþörf hrossa-
bænda til muna.
„Nú verðum við að treysta á að
sláturleyfishafar finni markað fyrir
afurðina. Það er bagalegt í þessu árferði
nú að geta ekki afsett hross. Nú eru
bændur komnir í þá stöðu að þurfa að
gefa hrossum á útigang og það kostar
peninga á meðan,“ segir Sveinn Stein-
arsson, formaður félags hrossabænda.
sveinn@frettabladid.is
Slátrun hrossa hefur
hrunið á hálfu ári
Hrossaslátrun í algjöru lágmarki þar sem ekki finnast markaðir fyrir afurðirnar.
Bændur eiga í erfiðleikum með að losa sig við gripi. Lokun Rússlandsmarkaða
skipt miklu máli fyrir hrossabændur. Nýrra markaða er leitað og horft til Japan
Við höfum verið að
leita fyrir okkur á
öðrum mörkuðum, svo sem í
Japan, og það gæti farið að gefa
góða raun. Hins vegar er sá
markaður ekki
fyrir allt kjöt af
hrossi.
Ágúst Andrésson,
forstöðumaður
kjötafurðastöðvar KS
saMfélag „Hún sagði við mig að hún
hefði ekki flúði frá skothríðinni í Srí
Lanka til að hægt væri að skjóta á mig
í Noregi,“ segir Khamshajiny Gunarat-
nam, 27 ára varaborgarstjóri Óslóar,
um símtal sitt við móður sína eftir að
hún slapp lifandi frá hryðjuverkaárás
Breiviks þann 22. júlí 2011.
„Foreldrar mínir koma frá landi
þar sem staðan er þannig að ef þú ert
Tamíli og þátttakandi í stjórnmálum þá
verður þú vafalaust drepinn. Þegar ég
sagði mömmu minni að ég hefði áhuga
á stjórnmálum varð hún áhyggjufull.
Það er nokkuð kaldhæðið í ljósi þess að
ég eyddi miklum tíma í að segja henni
að í Noregi er öruggt að vera í stjórn-
málum.“ -srs / sjá síðu 8
Í stjórnmál þrátt
fyrir áhyggjur
mömmu sinnar
Þegar ég sagði
mömmu minni að
ég hefði áhuga á stjórn-
málum varð hún
áhyggjufull.
Khamshajiny
Gunaratnam,
varaborgarstjóri
Óslóar
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
D
-1
4
D
0
1
7
2
D
-1
3
9
4
1
7
2
D
-1
2
5
8
1
7
2
D
-1
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K