Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 44
VIÐ PÖKKUM INN JÓLUNUM Það er búið að standa til lengi að koma með frum-samið efni á heilli plötu en svo var bara svo margt annað sem knúði á,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson sem sendi á dögunum frá sér plöt- una Veröldin er ný. Talsvert langt er síðan Helgi sendi síðast frá sér plötu með frumsömdu efni en hann segist hafa ákveðið að sig langaði til þess að syngja lög eftir aðra og með því takast á við aðrar áskoranir en hann var vanur sem söngvari. Nú er komið að því að koma eigin efni frá sér. „Það er alltaf rosalega gaman, það hefur miklu meiri vigt hjá manni. Það er stærri tjáning og maður kafar aðeins dýpra og reynir að segja eitt- hvað sem manni finnst skipta máli þó að  það séu ekki endilega ein- hverjir heims- eða heimapólitískir hlutir,“ segir hann og bætir við að á plötunni velti hann aðallega fyrir sér fallegum hlutum. „Ég horfði til baka og fór í minn- ingabankann og skoðaði hvernig tíminn fer með mann stundum, og svo líka svona rómantík og er aðallega að velta fyrir mér fallegum hlutum,“ segir hann og bætir hress við: „Svo varð ég náttúrulega að taka einn svona rokkara með. Það varð að vera einn svoleiðis með.“ Texta við lög sín hefur Helgi yfir- leitt samið einn en fékk til liðs við sig Atla Bollason og segir hann það hafa verið skemmtilega nýbreytni og að hann hafi haft gaman af sam- talinu. „Það er svona eins og stór- meistararnir hafa gert í gegnum tíðina, Lennon og McCartney og svo framvegis og framvegis endalaust.“ Í tilefni af útgáfu plötunnar verð- ur efnt til útgáfutónleika þar sem þeir Magnús Trygvason Eliassen, Guðmundur Óskar, Örn Eld- járn, Tómas Jónsson og Samúel J. Samúels son  ásamt  blásarasveit leika með Helga. Staðsetningu tón- leikanna verður haldið leyndri til hádegis sjálfan tónleikadaginn. „Þetta var ákveðið með mjög stuttum fyrirvara þannig við ákváðum að sveipa þetta svolítilli dulúð,“ segir Helgi dularfullur og bætir við: „Það hefur alltaf verið smá svona stríðni í mér, mér finnst það skemmtilegt element svo lengi sem fólk finnur ekki fyrir því á nei- kvæðan hátt andlega eða líkam- lega.“ Hann gefur þó upp að tónleik- arnir verði haldnir einhvers staðar í 101 Reykjavík og fara þeir fram næstkomandi fimmtudag og hefjast klukkan 21.00. gydaloa@frettabladid.is Hinn eini sanni Helgi Björnsson sendi á dög- unum frá sér plötuna Veröldin er ný eftir dágóða bið. Útgáfutónleikarnir verða svo haldnir á háleynilegum stað í 101 Reykjavík. fallega hluti Fjallar aðallega um 3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r24 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð Lífið Grunnurinn lagður í maí í Barcelona „Þegar Helgi gerði Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker-lagið hringdi hann í mig. Ég hef unnið að textum með Hjaltalín og ég hugsa að Guð- mundur Óskar hafi bara stungið upp á mér. Við gerðum þetta eina lag og það vakti líka svona stormandi lukku,“ segir Atli og hlær. Í kjölfarið var svo ákveðið að vinna saman að frekari texta- smíðum saman og héldu Atli og Helgi til Barcelona. „Við fórum í viku til Barcelona þar sem við töluðum um efni laganna, mát- uðum alls konar hluti og byrjuðum að skrifa.“ Guðmundur, Örn, Helgi, Atli og Tómas eru býsna spenntir fyrir útgáfuteitinu. FréTTAblAðið/AnTonbrink Ég horFði til baka og Fór í minninga- bankann og skoðaði hvernig tíminn Fer með mann stund- um, og svo líka svona róman- tík og er aðallega að velta Fyrir mÉr Fallegum hlutum. 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 2 D -B 2 D 0 1 7 2 D -B 1 9 4 1 7 2 D -B 0 5 8 1 7 2 D -A F 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.