Fréttablaðið - 30.11.2015, Qupperneq 44
VIÐ PÖKKUM INN JÓLUNUM
Það er búið að standa til lengi að koma með frum-samið efni á heilli plötu en svo var bara svo margt annað sem knúði á,“ segir
tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson
sem sendi á dögunum frá sér plöt-
una Veröldin er ný.
Talsvert langt er síðan Helgi sendi
síðast frá sér plötu með frumsömdu
efni en hann segist hafa ákveðið að
sig langaði til þess að syngja lög eftir
aðra og með því takast á við aðrar
áskoranir en hann var vanur sem
söngvari. Nú er komið að því að
koma eigin efni frá sér.
„Það er alltaf rosalega gaman, það
hefur miklu meiri vigt hjá manni.
Það er stærri tjáning og maður kafar
aðeins dýpra og reynir að segja eitt-
hvað sem manni finnst skipta máli
þó að það séu ekki endilega ein-
hverjir heims- eða heimapólitískir
hlutir,“ segir hann og bætir við að
á plötunni velti hann aðallega fyrir
sér fallegum hlutum.
„Ég horfði til baka og fór í minn-
ingabankann og skoðaði hvernig
tíminn fer með mann stundum,
og svo líka svona rómantík og er
aðallega að velta fyrir mér fallegum
hlutum,“ segir hann og bætir hress
við: „Svo varð ég náttúrulega að taka
einn svona rokkara með. Það varð
að vera einn svoleiðis með.“
Texta við lög sín hefur Helgi yfir-
leitt samið einn en fékk til liðs við
sig Atla Bollason og segir hann það
hafa verið skemmtilega nýbreytni
og að hann hafi haft gaman af sam-
talinu. „Það er svona eins og stór-
meistararnir hafa gert í gegnum
tíðina, Lennon og McCartney og svo
framvegis og framvegis endalaust.“
Í tilefni af útgáfu plötunnar verð-
ur efnt til útgáfutónleika þar sem
þeir Magnús Trygvason Eliassen,
Guðmundur Óskar, Örn Eld-
járn, Tómas Jónsson og Samúel
J. Samúels son ásamt blásarasveit
leika með Helga. Staðsetningu tón-
leikanna verður haldið leyndri til
hádegis sjálfan tónleikadaginn.
„Þetta var ákveðið með mjög
stuttum fyrirvara þannig við
ákváðum að sveipa þetta svolítilli
dulúð,“ segir Helgi dularfullur og
bætir við: „Það hefur alltaf verið
smá svona stríðni í mér, mér finnst
það skemmtilegt element svo lengi
sem fólk finnur ekki fyrir því á nei-
kvæðan hátt andlega eða líkam-
lega.“ Hann gefur þó upp að tónleik-
arnir verði haldnir einhvers staðar
í 101 Reykjavík og fara þeir fram
næstkomandi fimmtudag og hefjast
klukkan 21.00. gydaloa@frettabladid.is
Hinn eini sanni Helgi Björnsson sendi á dög-
unum frá sér plötuna Veröldin er ný eftir
dágóða bið. Útgáfutónleikarnir verða svo
haldnir á háleynilegum stað í 101 Reykjavík.
fallega hluti
Fjallar aðallega um
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r24 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Lífið
Grunnurinn
lagður
í maí í
Barcelona
„Þegar Helgi gerði
Ég fer á Land
Rover frá Mývatni
á Kópasker-lagið
hringdi hann í mig.
Ég hef unnið að
textum með
Hjaltalín og ég
hugsa að Guð-
mundur Óskar hafi
bara stungið upp
á mér. Við gerðum
þetta eina lag og
það vakti líka svona
stormandi lukku,“
segir Atli og hlær.
Í kjölfarið var
svo ákveðið að
vinna saman að
frekari texta-
smíðum saman og
héldu Atli og Helgi
til Barcelona. „Við
fórum í viku til
Barcelona þar sem
við töluðum um
efni laganna, mát-
uðum alls konar
hluti og byrjuðum
að skrifa.“
Guðmundur, Örn, Helgi,
Atli og Tómas eru
býsna spenntir fyrir
útgáfuteitinu.
FréTTAblAðið/AnTonbrink
Ég horFði til baka
og Fór í minninga-
bankann og skoðaði hvernig
tíminn Fer með mann stund-
um, og svo líka svona róman-
tík og er aðallega að velta
Fyrir mÉr Fallegum hlutum.
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
D
-B
2
D
0
1
7
2
D
-B
1
9
4
1
7
2
D
-B
0
5
8
1
7
2
D
-A
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K