Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 11
Jólafjör með Góa & Stórsveit Reykjavíkur 6. des. kl. 14:00, Silfurbergi, Hörpu Miðasala: harpa.is Jóla tónleikar fyri r alla f ölskylduna Snjóblásarar Snjóblásarar ÞÓR HF ÞÓR HF Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 -18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Ég mjakaðist ofurhægt á bílnum inn í austurhluta Reykjavíkur á meðan útvarpið malaði. Það var föstudagur. Ég flakkaði á milli stöðva; alls staðar voru óðamála karlmenn að æpa á mig. Þeir heimtuðu að ég færi út í búð, tafarlaust. Nú var nefnilega, sögðu þeir, Black Friday. Og hvað átti ég að gera í því: Jú, stökkva til og kaupa mér dýnu, topplyklasett, brauð- rist, saumavél, regnhlíf eða skíði – bara eitthvað. Ég hrökklaðist skelkaður milli stöðva, en þeir voru alls staðar, þessi æstu karlmenn, þar til loks að ég komst í var á rás eitt ríkisútvarpsins. Því fylgdi mikill léttir að heyra þar Sigvalda Júlíusson þul tilkynna í sínum þurrlegasta þulartóni að nú væri „svartur föstudagur“. „Skemmtilegt er myrkrið“ Þetta var einmitt hvítasti dagur ársins. Maður fékk ofbirtu í augun hvert sem litið var. Kaupmenn voru hins vegar í óða önn að bjóða okkur upp á innfluttan sorta frá Ameríku, rétt eins og ekki sé nægilegt framboð af myrkri hér í skammdeginu. Af hverju? Það er víst svona sem þetta er gert í Ameríkunni. Manni skilst að öllu sé hér til skila haldið frá föstudeginum svarta í Bandaríkjunum, nema að vísu þessu eina sem aldrei nær hingað til okkar: sjálfum afslættinum. Á íslensku er allt eitthvað svo satt. Allt hljómar svo raunverulegt á íslensku, sem getur orðið soldið niðurdrepandi, hún segir okkur hlutina eins og þeir eru – þetta gamla mál fólks sem lifði af gæðum lands og sjávar og var í stöðugum lífsháska og þurfti að geta talað um veðrið með þúsund orðum um vindinn til að vita nákvæmlega hvaða veðra væri von. Það er svo erfitt að þyrla upp moldviðri á þessu máli þar sem merkingin vísar af ískaldri nákvæmni á fyrirbærin og orðin fram- kalla óðara myndir hjá manni. Svartur föstudagur: er það ánægjuleg tilhugsun að eiga hann í vændum? Þetta hljómar eins og skelfileg vá sem vofir yfir mann. „Skemmtilegt er myrkrið,“ sagði draugur- inn í þjóðsögunni en var nokkurn veginn einn um þá skoðun. En svo heyrir maður „Black Friday“ og yppir öxlum; það hljómar eins og merkingarleysa sem smellur í munni. Eða til hvers vísar hugtakið? Þetta mun vera upphafsdagur jólaverslunar í Banda- ríkjunum og vera fyrsti föstudagurinn eftir Thanksgiving, sérhannaður kaup- æðisdagur og gefur netið manni ýmsar skýringar á þessu válega nafni, og maður er óðara farinn að geispa í miðri útskýr- ingu – eitthvað um liti í bókhaldi. Hræranlegar hátíðir Forlátið mér þetta tuð. Það er svo sannar- lega ekki í verkahring nokkurs manns að hlutast til um það hvernig annað fólk gerir sér dagamun, svo fremi það meiði ekki aðra. Við horfum brosandi á Hindúa hér á landi halda upp á sína ljósahátíð, Diwali, múslímar halda af aðdáunar- verðu þolgæði út sinn Ramadan, Gyðingar halda upp á Yom Kippur, kristnir menn minnast fæðingar frelsarans á jólum og Íslendingar blóta Þorrann, sem er heiðin og forn trúarhátíð hvað sem hver segir. Og svo framvegis. Og fólk sem trúir á Ameríku heldur upp á Thanksgiving með kalkúna áti að hætti prótestanta, svo- nefndra píla gríma, sem litu á sig sem guðs útvöldu þjóð og færðu guði þakkir fyrir góða uppskeru. Okkur hinum kann að vísu að þykja þetta skyndilega þakkargjörðarstúss svo- lítið afkáralegt. Hvað erum við að þakka fyrir hér á landi í lok nóvember? Góða uppskeru? Töðugjöldin eru samkvæmt almanakinu hér haldin seint í ágúst. Eiginlega er álíka nærtækt að fara að taka upp siði Amish-manna … Sannast hér sem löngum fyrr að trúar- siðir missa inntak og merkingu þegar þeir eru fluttir frá einu svæði með tiltekið nátt- úrufar til annars með allt aðra landshagi, en vaxa ekki eðlilega fram í sambýli manns og Jarðar, endurspegla ekki það samband eins og öll trú ætti að gera; verða að inni- haldslausum siðum. Vanmetum samt ekki innihaldsleysið. Það er alls ekki jafn slæmt og af er látið. Það er að minnsta kosti alltaf hægt að ljá því sitt eigið inntak. Og eflaust er hægt að finna einhver þakkarefni hér á landi, sé vel og vandlega leitað. Við höfum svo sannarlega fengið ótalmargt frá Ameríku í menningu og siðum: sumt dásamlegt og auðgandi, eins og alla músíkina og bíómyndirnar, fötin og auglýsingaskiltin; sumt hálfskringilegt, eins og þessar undar- legu íþróttir sem þeir iðka þar vestra, með hinum innvirðulega kýló sem þar er kenndur við baseball og einkennist af gríðarlegu hangsi og óskiljanlegu bauki, eða handboltann sem þeir kalla fúttboll þar sem menn hlaupa fram og til baka með bolta í fanginu og hoppa svo allir í hrúgu þar sem þeir sprikla og kitla hver annan. Og sumt leiðinlegt: Þessi tiltekni föstu- dagur er ekki góð viðbót fyrir skamm- degisviðkvæmt fólk eins og mig. Good friday á ensku er kallaður Föstudagurinn langi. Black friday mætti gjarnan heita á íslensku Föstudagurinn rangi. Föstudagurinn rangi Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Okkur hinum kann að vísu að þykja þetta skyndilega þakkargjörðarstúss svolítið afkáralegt. Hvað erum við að þakka fyrir hér á landi í lok nóvember? Að sjálfsögðu bregður fólki við þegar það heyrir að lög-reglan fái aukinn aðgang að vopnum. Á Íslandi höfum við getað sagt stolt frá því að almennir lögreglumenn séu ekki vopnaðir því þess hefur ekki reynst þörf. Lík- lega snýr undrun fólks yfir fréttum síðustu viku ekki síst að því hversu óljósar upplýsingar er að fá um eðli og forsendur breytinga á vopna- búnaði lögreglunnar. Ef verið er að fjölga geymslustöðum vopna og vopnbúa lögreglubíla almennt hefði maður talið eðlilegt að slíkar breytingar hefðu fyrst verið kynnt- ar á Alþingi og á meðal almennings, rökstuddar og útskýrðar. Lögreglumenn vilja að sjálfsögðu gera það sem þarf til að vernda borgarana og ef til vill eru þessar breytingar rökréttar í því samhengi. Um það vitum við hins vegar ekkert því ákvarðanir og forsendur þeirra hafa ekki verið kynntar og umfang breytinganna er ekki enn fullljóst. Lögregluyfirvöldum ber skylda til að bera það undir borgarana og fulltrúa þeirra hvort þeir kjósi meiri vernd af þessu tagi og gefa þeim tækifæri til að vega og meta mögu- legan ávinning eða tap af slíku. Vopnabúnaður lögreglu og aðgangur almennra lögreglu- manna að vopnum er einn þáttur í því að tryggja öryggi borgaranna og öryggi lögreglumanna. Hins vegar er engin fylgni milli vopnaburðar lögreglu í öðrum löndum og lágrar glæpatíðni, nema síður sé. Hvert er mat lögreglunnar og sérfræðinga á áhættu sem fylgir þessari breyt- ingu? Því það er ekki bara hvítur sem spilar, heldur á svartur líka alltaf leik. Hvert getur verið andsvar glæpamanna við auknum vopna- búnaði? Sú ákvörðun að gera vopn aðgengilegri fyrir almenna lög- reglumenn er stórpólitískt mál og á heima á Alþingi Íslendinga og ég hef óskað eftir sérstakri umræðu við innanríkisráðherra um málið þar. Það þarf að upplýsa um hvers eðlis breytingarnar séu og á hvaða grunni ákvarðanir um þær hafa verið teknar. Leynimakk og mis- vísandi svör um svo viðkvæmt mál eru löggæsluyfirvöldum ekki sam- boðin. Svartur á líka leik Ef verið er að fjölga geymslustöðum vopna og vopnbúa lögreglubíla almennt hefði maður talið eðlilegt að slíkar breytingar hefðu fyrst verið kynntar á Alþingi og á meðal almennings, rök- studdar og útskýrðar. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingingar s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 3 0 . n ó v e M B e R 2 0 1 5 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 2 D -2 8 9 0 1 7 2 D -2 7 5 4 1 7 2 D -2 6 1 8 1 7 2 D -2 4 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.