Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 16
Fólk| gott málefni
UNICEF og samstarfsaðilar hafa náð ótrúlegum árangri undanfarna ára-tugi. Aldrei hafa fleiri börn gengið í
skóla, stórlega hefur dregið úr barnadauða,
margfalt fleiri börn fá meðferð við HIV en
áður og fleiri hafa aðgang að hreinu vatni nú
en nokkru sinni fyrr. Á sama tíma ríkir mikil
neyð víða í heiminum. Mikill fjöldi barna er
á flótta og fer á mis við menntun og reglu-
bundna heilsugæslu,“ segir Helga Ólafsdóttir,
verkefnastýra hjá UNICEF á Íslandi, Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna.
Því telur hún sannarlega mikla þörf á að
styðja við þurfandi börn um allan heim. Ein
leið til þess er að styðja við baráttu UNICEF.
„Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og
leggjum áherslu á að ná til allra barna, hvar
sem þau eru,“ segir Helga.
gjafir sem bjarga lífi
Sannar gjafir eru ein leið til að styrkja starf
UNICEF. „Sannar gjafir eru lífsnauðsynleg
hjálpargögn á borð við bóluefni, teppi, jarð-
hnetumauk, moskítónet og vatnshreinsitöfl-
ur. Að auki er hægt að kaupa gjafabréf upp á
ýmislegt nytsamlegt eins og námsgögn, reið-
hjól og ungbarnavigt,“ telur Helga upp.
Fólk getur keypt sannar gjafir á netinu.
Þær eru síðan sendar úr birgðageymslu
UNICEF þangað sem þörfin er mest hverju
sinni. „Flest hjálpargögnin fara til fátækustu
ríkjanna eða þar sem stríð og náttúruham-
farir geysa,“ segir Helga og nefnir þar Sýr-
land og nágrannalönd þess, ýmis Afríkuríki
og Nepal.
Vaxandi áhUgi
Sannar gjafir hafa lengi verið í boði í fjöl-
mörgum löndum. „Hér á landi var farið af
stað með sannar gjafir fyrir nokkrum árum
og við finnum fyrir sívaxandi áhuga fólks,“
segir Helga.
Hún segir skemmtilegast við sannar gjafir
vera hversu marga þær gleðji í einu. „Það er
auðvitað alltaf gaman að gefa, svo er gaman
að fá gjafabréf með fallegri kveðju en það
besta er auðvitað að börn í neyð njóti gjaf-
anna, enda þurfa þau mest á þeim að halda.“
Við ýmis tækifæri
Langmest er keypt af sönnum gjöfum um
jólin. „Einstaklingar hafa keypt gjafabréfin og
notað sem jólakort og jólagjafir. Þá hafa einn-
ig nokkur fyrirtæki keypt þau í staðinn fyrir
jólakveðjur og jafnvel gefið starfsmönnum
í jólagjöf. Einnig hafa gjafabréfin verið send
til samstarfsaðila og þá oft látin fylgja gjafa-
körfu eða einhverju slíku.“
Hún bendir á að fólk sem á ættingja og
vini erlendis, eða Íslendingar sem búa
úti, hafi sent sannar gjafir á milli landa
með fallegum og hlýjum kveðjum. „Í
ár bjóðum við einnig upp á gjafabréf
á ensku, vegna mikillar eftirspurnar
eftir því.“
Leynivinaleikir eru í gangi í fjölmörgum
fyrirtækjum. Helga segir gjafabréfin vinsæl
meðal leynivina. „Þá eru jólasveinarnir líka
farnir að gefa bréfin í skóna og ég hef heyrt
að börnin hafi gaman af því,“ segir hún.
Sannar gjafir eru þó seldar allan ársins
hring og Helga segir færast í aukana að þær
séu gefnar sem útskriftargjafir, brúðkaups-
gjafir eða fyrir stórafmæli.
góð leið til að ræða erfitt mál
Fréttir og umræður um flóttamannastraum-
inn til Evrópu hefur vakið ugg í hjörtum
barna. „Í haust kom til okkar lítill drengur
sem leið illa yfir fréttunum sem hann hafði
fylgst með. Hann keypti teppi, bóluefni og
annað sem nýst gat börnum á flótta,“ segir
Helga og telur að það geti hjálpað foreldrum
að ræða þessi erfiðu mál við börnin sín ef
þeim finnst þau geta gert eitthvað til að að-
stoða, eins og að kaupa sannar gjafir.
ný Vefsíða
UNICEF á Íslandi hefur unnið að því að þróa
nýja vefsíðu, www.sannargjafir.is, sem fer í
loftið í vikunni. „Þar má sjá allt vöruúrvalið
en ýmsar nýjungar verða í boði á borð við
sjúkrakassa og neyðartjald. Þá verða þar
einnig sérstakir pakkar þar sem búið er að
raða saman ýmsum hjálpargögnum.“
gjafir sem bæta líf barna
gott málefni Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn. Gjafirnar eru keyptar í nafni þeirra sem
á að gleðja. Viðtakandi fær gjafabréf með mynd og lýsingu á gjöfinni og vitneskjunni um að hún muni koma börnum í neyð til góða.
líbanon Börn í flóttamannabúðum í líbanon.
nepal Hin tíu ára Rejina sippar við barnvænt svæði UNICEF í
Nepal.
írak Hinn níu ára Ibrahim reiknar í kAR skólanum í flóttamannabúðunum í Domiz í Írak.
Ljómandi
jóladagskrá
Lifandi tónlist alla laugardaga
á aðventunni.
Gjafakort Hörpu er gjöf sem gleður
og gildir á alla viðburði í Hörpu.
www.harpa.is
Mikið magn af hjálpargögnum var sent til bágstaddra barna í fyrra
sem keypt voru sem sannar gjafir í nafni ástvina.
Íslendingar gáfu skólagögn fyrir 7.420 börn, auk 17 kassa sem
innihalda allir námsgögn fyrir 40 börn hver.
93 fjölskyldur í Líberíu fengu pakka til
varnar ebólu.
80 börn á flótta fengu vetrarföt.
Nálægt 400 skammtar af bóluefnum
voru keyptir, moskítónet og 340 hlý
teppi.
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
D
-9
F
1
0
1
7
2
D
-9
D
D
4
1
7
2
D
-9
C
9
8
1
7
2
D
-9
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K