Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Finndu okkur á facebook Gæði og g læsileiki e ndalaust ú rval af há gæða flísu m Unnt er að ná sam- komulagi því fáir draga lengur loftslags- vísindin í efa. Hryðjuverkin í París koma ekki í veg fyrir loftslags-ráðstefnuna sem hefst í dag. 150 þjóðarleiðtogar eða þjóðhöfðingjar hafa staðfest komu sína og gert er ráð fyrir 40.000 þátttakendum. Þessi feiknarlegi áhugi skýrist af því sem við er að etja: að takmarka hækkun hita í heiminum við 2 C° svo ekki komi til óafturkræfra lofts- lagsbreytinga. Unnt er að ná samkomulagi því fáir draga lengur loftslagsvísindin í efa. Októbermánuður síðast- liðinn var sá heitasti frá upphafi mælinga. Þótt öllum beri saman um markmiðin er niðurstaðan ekki sjálfgefin. Frakkar eru í forsæti ráðstefnunnar og verða að sætta sjónarmið 195 þátttökuþjóða, bæði á venjulegum samningafundum og með nýrri nálgun. Eins og gengur á slíkum ráðstefnum leitar forysturíkið eftir bindandi sam- komulagi, algildu en löguðu að þróunarstigi landa, bæði til að draga úr losun til framtíðar og kljást við núverandi vanda. Samkomulaginu fylgir fjármögnun til þróunarlanda sem nemur 100 milljörðum USD frá 2020 (62 milljörðum 2014). Frakkar tóku upp þá nýbreytni að óska eftir að þátttöku- ríkin gerðu fyrir fram grein fyrir framlagi sínu. Það hafa nú 169 ríki gert, sem samtals standa fyrir 91% af losun gróður- húsalofttegunda. Þau skera losun verulega niður, þó ekki nægjanlega: Hlýnunin verður um 3° en ekki 2°, sem var hámarkið. Aðrir aðilar en ríki voru beðnir að leggja fram raun- hæfar og tafarlausar skuldbindingar samkvæmt „Líma-Parísar aðgerðaáætluninni“. 1.600 borgir og 2.000 fyrirtæki hafa nú skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka endurvinnslu o.s.frv. Ísland getur gegnt miklu hlutverki. Bæði er landið í návígi við vandann, því norðurslóðir hlýna örar en tempruð svæði, en jafnframt stendur það nær lausninni því hér kunna menn að nýta endurnýjanlega orku, eins og í Reykjavík sem notar einvörðungu slíkar orkulindir til rafmagnsframleiðslu og upp- hitunar. Reykjavíkurborg hefur undirritað metnaðarfulla yfir- lýsingu um loftslagsbreytingar ásamt öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum. Þá hafa 103 íslensk fyrirtæki samþykkt að draga mælanlega úr losun gróðurhúsalofttegunda og sorps. Góður árangur í París byggist á málamiðlun milli ríkisstjórna og enn fremur á skuldbindingum allra borgaralegra aðila. Það sem þarf til að COP21 ráðstefnan heppnist Philippe O´Quin sendiherra Frakklands Hugtakaverðbólgan Landspítalinn á Hringbraut er hriplekur og húsnæði Barna- og unglingageðdeildar étið af myglusvepp. Því er kannski ekki að furða þótt Páll Matthíasson, forstjóri spítalans, láti í sér heyra. En málflutningurinn virðist ekki alveg hitta í mark á réttum stöðum. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, kvartar sáran. „Það þarf að hafa sterk bein fyrir þetta áhlaup,“ sagði formaðurinn á Bylgjunni í gærmorgun. Í kvöldfréttum bætti hún um betur og sagði að fjárlaganefnd væri beitt „andlegu ofbeldi“. Kannski fullsterkt til orða tekið? Ef ekki, þá er spurning hvort Páll, sem er læknismenntaður, geti gert eitthvað fyrir bein og andlega líðan þingmannsins. Kaupir Björgólfur? Það vakti töluverða athygli þegar meirihluti borgar stjórnar ákvað að selja Björgólfi Thor Björgólfssyni húsnæðið sem Thor Jensen, langafi hans, reisti á Fríkirkjuvegi ellefu. Salan vakti litla hrifningu vinstri- manna í borgarstjórn, sem vildu húsið áfram í eigu borgarinnar. Nú eru breyttir tímar og vinstri- menn sjálfir hafa ákveðið að selja annað sögufrægt hús sem Thor Jensen lét reisa, Korpúlfs- staði. Og þá hlýtur að liggja beinast við að langafabarnið kaupi. jonhakon@frettabladid.is Loftlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í París í dag. Að öllum líkindum er hér á ferðinni mikilvægasta samkoma þjóðanna frá lokum síðari heimsstyrjaldar; svo brýnt er það erindi sem hvílir á fundinum, svo stór sú vá sem liggur yfir veröldinni. Engin vestræn velmeg- unarþjóð getur látið sitt eftir liggja og þá síst af öllu þjóð sem býr á jafn gjöfulu grænorkulandi og Íslandi. Það var því ánægjulegt að sjá að í gær gengu hundruð Íslendinga í loftlagsgöngunni í Reykjavík þrátt fyrir frost og þunga færð. Þessi ganga var ein af um tvö þúsund sambærilegum göngum víða um heim undir merkjum Global Climate March sem voru farnar til þess að þrýsta á ríki sem sækja heim loftslagsráðstefnuna í París um að hætta að brenna jarðefnaeldsneyti og að iðnríkin styðji fátækari ríki heims til þess að takast á við breyttar aðstæður og nýta endurnýtanlega orkugjafa. Gangan í Reykjavík lagði að sjálfsögðu ríka áherslu á hvað íslensk stjórnvöld, og þar með við sem þjóð sem býr við einstakt aðgengi að endurnýtanlegri orku og hátt þekkingarstig, getur lagt af mörkum til þess að viðunandi markmið náist í tíma. Og þá skiptir öllu máli að sú orka sem við beislum sé nýtt með skynsamlegum og sjálfbær- um hætti en ekki í þágu mengandi stóriðju með stórskað- legum áhrifum á umhverfið sem og framtíð heimsins. Gangan setti því fram þá sjálfsögðu kröfu að Ísland skuldbindi sig til þess að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda um 40 prósent, að tafarlaust verði hætt við áformaða olíuleit og -vinnslu á Drekasvæðinu og loks að stefnt verði að kolefnishlutleysi fyrir árið 2015. Þetta eru skynsamlegar og réttmætar kröfur og sjálfsagt að þakka þeim sem lögðu leið sína í gönguna fyrir sitt framlag. Hvert skref skiptir máli. Augu þjóðarinnar verða því vonandi á íslenskum ráðamönnum sem og valdamönnum heimsins á næstu dögum. Og að þessu sinni duga engar smáríkis- afsakanir, barlómur og væntingar um undanþágur. Slíkt er okkur ekki sæmandi því við einfaldlega búum of vel af aðstæðum til þess að geta skorast undan því að ganga með þeim sem lengst ganga og til mestra endurbóta. Það er ekki hægt að stæra sig af efnahagslegum árangri og vaxandi velsæld, sem virðist þó ná illa til allrar þjóðar- innar, að morgni og taka sér svo stöðu aftast í umhverfis- málunum að kvöldi. Hugo Chavez, hinn umdeildi forseti Venesúela á sínum tíma, sagði eitt sinn: „Ef umhverfið væri banki, væru Bandaríkjamenn búnir að bjarga því.“ Stór orð og óneitanlega kaldhæðin en við Íslendingar getum að sönnu tekið þau til okkar eins og aðrar vestrænar þjóðir. Þjóð sem hefur með sönnu sýnt að hún getur verið í for- ystu í að bjarga bönkum og endurreisa þá úr öskustónni ætti nú aldeilis að geta látið ljós sitt skína á loftslagsráð- stefnunni í París. Það verður vonandi gaman að fylgjast með þeirri göngu íslenskra ráðamanna þjóð sinni til sóma. Hreinsum loftið í París Það er ekki hægt að stæra sig af efna- hagslegum árangri og vaxandi velsæld, sem virðist þó ná illa til allrar þjóðarinnar, að morgni og taka sér svo stöðu aftast í umhverfis- málunum að kvöldi. 3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r10 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 2 D -6 8 C 0 1 7 2 D -6 7 8 4 1 7 2 D -6 6 4 8 1 7 2 D -6 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.