Fréttablaðið - 30.11.2015, Qupperneq 2
Enn snjallara heyrnartæki
heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Nýja Beltone Legend heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone,
iPad og iPod touch. Pantaðu ókeypis heyrnarmælingu í síma
568 7777 og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð)
með iOS eða nýrra stýriker. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypisheyrnarmælingsíðan 2004
Norðan 10-18 m/s og snjókoma fyrir norðan
í dag og er útlit fyrir að hún verði nokkuð
þétt í kringum Tröllaskaga. Hægari vindur
sunnanlands og að mestu léttskýjað, en líkur
á dálitlum éljum síðdegis og undir kvöld.
Áfram kalt í veðri. Sjá Síðu 18
Veður Gengið í þágu grænni heims
StjórnSýSla „Það eru alltaf að koma
upp mál þar sem sakborningar, sér-
staklega útlendingar, eru óánægðir
með þá verjendur sem lögregla hefur
skipað þeim,“ segir Guðmundur Ingi
Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags
fanga.
Afstaða hefur sent formlegt bréf
til Lögmannafélags Íslands þar sem
óskað er eftir því að félagið fari fram
á að mótaðar verði verklagsreglur um
tilnefningu verjenda til handa sak-
borningum. Verklagið eigi að tryggja að
ekki skapist tortryggni um að óeðlileg
hagsmunatengsl séu á milli lögreglu og
lögmanna.
Í bréfinu segir að fangar kvarti yfir
því að illa gangi að ná í lögmenn og
þeir séu illa undirbúnir fyrir dómsmál.
Lögmenn gleymi mikilvægum atriðum
í málinu og skorti reynslu af verjenda-
störfum.
Þá segir: „Fangar hafa tekið svo til
orða að lögmenn þeirra líti á þá sem
„fasta greiðslu“ frá ríkissjóði.“
Lögmannafélag Íslands er með svo-
kallaðan bakvaktarlista sem ætlaður
er fyrir lögreglu til að hringa í verj-
endur. Samkvæmt Afstöðu er þessi
listi nær aldrei notaður heldur sér
lögregla um að hringja í verjendur sem
hún velur sjálf, óski sakborningur ekki
eftir einhverjum sérstökum. Afstaða
segist í tvígang hafa bent Lögmanna-
félaginu á að úr þessu þurfi að bæta en
án árangurs.
„Örfáir útvaldir lögmenn fá meiri-
hluta allra sakamála, ekki síst mjög
stórra sakamála, í svo miklum mæli að
óeðlileg hagsmunatengsl hljóta að vera
fyrir hendi. Félaginu hafa borist ábend-
ingar um að sama gildi að einhverju
leyti um réttargæslumenn brotaþola,“
segir í bréfinu.
Þá segir í bréfinu að umtalsverðum
fjármunum sé með þessu skammtað af
hálfu lögreglu til lögmanna.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, segir að þetta standi
til bóta. „Menn eru misviljugir að taka
verjendastörf að sér. Bakvaktarlisti Lög-
mannafélags Íslands hefur einhvern
veginn ekki virkað almennilega og þess
vegna styðjast menn minna við hann
en þeir ættu að gera,“ segir Friðrik.
Hann segir að nú eigi sér stað sam-
ræður á milli lögreglunnar og Lög-
mannafélagsins um að koma bakvakt-
arlistanum í betra horf, svo listinn sé
uppfærður og verjendur séu tilbúnir að
sinna útköllum. snaeros@frettabladid.is
Segja örfáa útvalda
lögmenn í náð lögreglu
Félag fanga hefur sent formlega kvörtun vegna verjendavals lögreglu. Félagið
segir óeðlileg hagsmunatengsl vera fyrir hendi. Lögreglan boðar úrbætur.
Borið hefur á því að sakborningum finnist verjendur sínir illa undirbúnir fyrir mál-
flutning og gleymi jafnvel mikilvægum atriðum fyrir dómi. FréttaBlaðið/Vilhelm
Þess var krafist í loftslagsgöngunni, sem farin var í miðborg Reykjavíkur í gær, að stjórnvöld axli ábyrgð, virði skuldbindingar um samdrátt í losun gróður-
húsalofttegunda. Sams konar göngur fóru fram meðal annars í New York, Kaupmannahöfn, Lundúnum, Róm, Tókýó og víðar. FréttaBlaðið/ernir
lögreglumál Tuttugu og sjö ára
gamall Hollendingur sem hefur
verið í einangrun á Litla-Hrauni er
kominn á Kvíabryggju. Maðurinn,
sem er greindarskertur, sætir gæslu-
varðhaldi vegna aðildar að smygli á
23 kílóum af sterkum fíkniefnum til
landsins.
„Það fékkst heimild frá Fangelsis-
málastofnun til að flytja hann upp á
Kvíabryggju,“ segir Ómar Örn Bjarn-
þórsson, verjandi mannsins. Hann
segir að Hollendingnum hafi verið
ekið þangað á föstudaginn og hann
dvelji nú í húsi með Hreiðari Má
Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings, og Magnúsi Guðmunds-
syni, fyrrverandi forstjóra Kaup-
þings í Lúxemborg. „Þeir hafa tekið
mjög vel á móti honum,“ segir Ómar
og bætir við að það sama eigi við um
aðra fanga á Kvíabryggju. „Hann er
ótrúlega sáttur við að vera kominn
þangað og líður vel,“ segir hann.
Ómar býst við að rannsókn á
fíkniefnamálinu ljúki fljótlega. - jhh
Í varðhaldi á
Kvíabryggju
Hann er ótrúlega
sáttur við að vera
kominn þangað og líður vel.
Ómar Örn Bjarnþórsson verjandi.
Guðmundur ingi
Þóroddsson
veður Þrjú snjóflóð féllu í gær á
norðan verðum Tröllaskaga. Tvö flóð
féllu í Ólafsfjarðarmúla norðan Dal-
víkur og eitt flóð í Almenningum vestur
af Siglufirði. Lögregla og Vegagerð lok-
uðu þeim vegum í gær og verður ekki
athugað með opnun fyrr en í dag.
Harpa Grímsdóttir, fagstjóri ofan-
flóða vár hjá Veðurstofu Íslands, sagði
snjóalög veikburða í Ólafsfjarðarmúla
og að með nýjum úrkomubakka sem
kom upp að Tröllaskaga í gærkveldi
yrði staðan tekin aftur í dag. „Það er
mikil hætta á frekari snjóflóðum á
svæðinu. Þó að vegir verði opnaðir
beinum við til fjallafólks að fara varlega
þar sem ótraust snjóalög gætu leynst
undir nýföllnum snjó,“ segir Harpa.
Mikil ofankoma var á svæðinu um
helgina og spáð er framhaldi þar á. - sa
Snjóflóð
einangruðu
Fjallabyggð
tyrkland Jarðneskar leifar rúss-
neska flugmannsins Oleg Peshkov
verða fluttar frá Tyrklandi til Rúss-
lands. Peshkov fórst þegar tyrknesk-
ar hersveitir skutu flugvél sem hann
flaug niður í síðustu viku. Tyrkir
telja að vélin hafi farið inn í tyrk-
neska lofthelgi í óleyfi. Rússar neita
því. Atvikið hefur valdið ósætti á
meðal ráðamanna ríkjanna tveggja
og Rússar hafa sett viðskiptabann á
Tyrki. - jhh
Lík flugmannsins
til Rússlands
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
D
-2
8
9
0
1
7
2
D
-2
7
5
4
1
7
2
D
-2
6
1
8
1
7
2
D
-2
4
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K