Fréttablaðið - 30.11.2015, Side 17
|FólkMenntun
Áhugafólk um minímalískan lífsstíl heitir nýstofnaður hópur á
Facebook sem þegar er skipaður rúmlega átta þúsund meðlim-
um. Þar deilir fólk ráðum um hvernig megi einfalda lífið í víðum
skilningi og minnka bæði veraldlegt og andlegt áreiti. Þar er mikið
rætt um jólin fram undan og hvernig megi draga úr jólaneyslunni
og efnislegum gjöfum. Margir leggja til að gefin séu gjafabréf og
þá gjarnan á einhvers konar upplifun. Hér eru nokkrar hugmyndir
sem hafa verið viðraðar í hópnum. Þær eru að gjafabréfum sem
er hægt að kaupa hjá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum. Auk
þess má útbúa heimagerð gjafabréf upp á ýmiss konar samveru-
stundir.
Einn helsti kostur gjafabréfa er að gjöfin lifir lengur og það er
hægt að njóta hennar þegar hægist um eftir jól. Helsti ókosturinn
er að þau vilja gleymast og jafnvel týnast.
Gefðu:
l Gjafabréf eða miða í leikhús, á tónleika, íþróttaleiki eða bíó. Þá er hægt
að gefa gjafakort á midi.is, tix.is og harpa.is svo dæmi séu nefnd.
l Gjafabréf á námskeið. Til dæmis hjá Mími símenntun, Endurmenntun Há-
skóla Íslands, Tækniskólanum, Myndlistarskólanum í Reykjavík, á handa-
vinnunámskeið hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og matreiðslunámskeið hjá Salt
eldhúsi svo dæmi séu nefnd. Eins gjafabréf í söng- eða dansskóla.
l Gjafabréf í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
l Gjafabréf í laser tag, Bogfimisetrið, Adrenalínsetrið, klifurhúsið, Go-
kart, keiluhöllina og í Smáratívolí.
l Gjafabréf á tonlist.is.
l Gjafabréf á veitingastað.
l Gjafabréf í ísbúð.
l Gjafabréf í flug.
l Gjafabréf í dekur.
JólagJöfin í ár?
Óteljandi MöGuleikar Hægt er að útfæra gjafabréf með ýmsum hætti og þau
geta verið ávísun á nánast hvað sem er.
Það eru mörg spennandi nám-skeið í boði á vorönn,“ segir Áslaug Thorlacius, skóla-
stjóri Myndlistarskólans í Reykja-
vík.
„Við seljum gjafabréf á nám-
skeið. Það er bæði hægt að kaupa
ákveðið námskeið og opið bréf
fyrir ákveðna upphæð. Við mæl-
umst til að fólk byrji á grunnáfanga
í teikningu. Það er undirstaða fyrir
öll önnur námskeið en við hjálpum
fólki að sjálfsögðu að finna nám-
skeið við hæfi.“
Námskeið skólans eru fyrir alla
aldurshópa. Barna- og unglinga-
deildin er fyrir 4-15 ára nemendur,
eftir það tekur fullorðinsdeildin
við og fólk getur sótt skólann svo
lengi sem það vill. Námskeið fyrir
fullorðna fara flest fram á kvöldin
en við bjóðum líka námskeið á
morgnana og um eftirmiðdaginn.
Flest standa í heila önn þar sem
þátttakendur mæta einu sinni
í viku en einnig er boðið upp á
styttri námskeið, t.d. í listasögu.
Kennarar við skólann eru starf-
andi myndlistamenn, hönnuðir og
listfræðingar og námskeiðaflóran
er afar fjölbreytt að sögn Áslaugar.
„Við bjóðum námskeið í teikn-
ingu, málun, vatnslitamálun, lita-
fræði og formfræði. Leirrennsla
og mótun eru sívinsæl námskeið.
Módelteikning og módelmótun er
krefjandi og skemmtilegt viðfangs-
efni og mikilvægt fyrir fólk sem
ætlar sér lengra í listinni. Á vorönn
er líka hægt að fara í portrett-
teikningu og -mótun. Við verðum
með nýtt og spennandi námskeið
í myndasögum og skopmynda-
teikningu sem Hugleikur Dagsson
og Halldór Baldursson kenna. Á
laugardögum bjóðum við aðra
nýjung, 6 vikna námskeið fyrir 4-6
ára börn og foreldra þeirra. Það er
skemmtileg samverustund og góð
jólagjöf. Við vorum að endurbæta
myrkraherbergið okkar og verðum
með námskeið í filmuljósmyndun,
bæði unglinganámskeið og annað
fyrir fullorðna. Fyrir unglingana
er margt nýtt í boði, m.a. nám-
skeið í kvikmyndagerð og annað
þar sem áhersla verður lögð á að
fara lengra með teikninguna, t.d.
prenta á flíkur, hjólabretti og fleira.
Skólinn heldur af og til ,,mast-
er class“ námskeið fyrir fagfólk,
t.d. í keramik, textíl og teikningu,
og alltaf er hægt að óska eftir sér-
sniðnum námskeiðum fyrir hópa,
til dæmis vinnustaði eða vinahópa
sem vilja gera eitthvað saman. Þau
geta verið stutt eða löng, allt eftir
því hvað fólk vill.“
Skráning á námskeið á vorönn
hefst í desember og lýkur um
miðjan janúar.
„Þeir sem fá gjafabréf í jólagjöf
geta nýtt það á vorönn eða næstu
haustönn,“ segir Áslaug.
MyndlistarnáMskeið er GÓð Gjöf
MyndlistarskÓli reykjavíkur kynnir Myndlistarskólinn í Reykjavík býður upp á fjölda spennandi námskeiða bæði á vor-
og haustönn fyrir alla aldurshópa. Gjafabréf á myndlistarnámskeið við skólann er skemmtileg gjöf sem gleður.
fjölbreytt náM áslaug Thorlacius, skólastjóri Myndlistarskóla reykjavíkur, segir fjölbreytt námskeið í boði á hverju ári.
mynd/vilhelm
Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ
Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag
með reglulegu millibili hefur hún
jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu
(Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum,
augnþurrk, vogris, augnhvarmablöðrur
og rósroða í hvörmum/augnlokum.
Augnhvílan er auðveld í notkun og vermir í 10 mínútur
í hvert sinn. Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur
í örbylgjuofni og lögð yfir augun.
Sniðug
jólagjöf!
Augnhvílan
Margnota augnhitapoki
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
D
-D
A
5
0
1
7
2
D
-D
9
1
4
1
7
2
D
-D
7
D
8
1
7
2
D
-D
6
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K