Fréttablaðið - 30.11.2015, Qupperneq 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.
is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Guðnason
prentari, Dalbraut 14,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
að morgni sunnudagsins 22. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 1. desember kl. 15.00.
Margrét Magnúsdóttir
Magnús Magnússon Þorgerður Guðmundsdóttir
Guðni Magnússon Alma Bergsveinsdóttir
Jórunn Þ. Magnúsdóttir Björn Davíð Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Vigdís Valgerður
Magnúsdóttir
Baðsvöllum 16, Grindavík,
lést þriðjudaginn 24. nóvember.
Útförin verður gerð frá Grindavíkurkirkju
þriðjudaginn 1. desember kl. 14.00.
Ágúst Þór Ingólfsson Kristín Elísabet Pálsdóttir
Guðrún Bára Ingólfsdóttir David C. Bustion
Magnús Ingólfsson Bergljót S. Steinarsdóttir
Ólafur Sigurpálsson
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Tryggvi Þorsteinsson
læknir,
lést á Landspítalanum
mánudaginn 23. nóvember.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 30. nóvember kl. 13.00.
Hjördís Björnsdóttir
Guðjón Sch. Tryggvason Sigrún Stefánsdóttir
Laufey Tryggvadóttir Þorgeir S. Helgason
Hildur Tryggvadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Í október opnuðum við, Norræna
húsið og sænska sendiráðið, sýningu
um Línu Langsokk í tilefni af sjötíu ára
afmæli hennar,“ segir Margrét Ásgeirs-
dóttir, yfirbókavörður hjá Norræna
húsinu. Astrid Lindgren gaf út fyrstu
bókina um Línu Langsokk árið 1945 en
þær urðu þrjár talsins. Norræna húsið
og sænska sendiráðið buðu til afmælis-
veislu um helgina. Margrét segir að
margt hafi verið um manninn og boðið
var upp á pönnukökur og piparkökur.
„Sýningin stendur alveg fram að jólum
og kannski lengur. Þetta er lítil sýning
um Línu Langsokk, nokkrar staðreyndir
um hana og Astrid.“
Á sýningunni eru ýmis leikföng, taska
full af gulli, Sjónarhóll, húsið hennar
Línu, og hesturinn hennar. Búið er að
mála innviði Sjónarhóls í Norræna hús-
inu og hægt er að máta föt af Línu.
„Við vorum náttúrulega svo heppin að
fá íslensku Línu í heimsókn.“
Margrét segir mikilvægt að halda á
lofti heiðri norrænna höfunda.
„Persónurnar sem þau hafa skapað
eru allar vinir okkar hvort sem við erum
stelpur eða strákar, ung eða gömul. Af
því að það er smá Lína í okkur öllum.
Margir segja að í okkur sé Pollýanna en
ég held að við getum líka sagt að í okkur
búi Lína. Ég held að hún hafi bæði verið
dugleg og bjartsýn,“ segir Margrét.
stefanrafn@frettabladid.is
Það er Lína í okkur öllum
Lína Langsokkur fagnaði 70 ára afmæli um helgina. Norræna húsið og sænska
sendiráðið buðu upp á pönnukökur og piparkökur í tilefni af stórafmælinu.
Þennan dag árið 1982 gaf Michael
Jackson út breiðskífuna Thriller. Það
var sjötta platan hans en önnur platan
sem hann gaf út eftir að hafa yfirgefið
bræður sína í Jackson Five. Platan naut
svo mikilla vinsælda að hún varð mest
selda platan í heiminum. Á plötunni
voru mörg þekktustu laga hans eins
og Thriller, Beat it og Billie Jean.
Upptökur á plötunni fóru fram í
Westlake-hljóðverinu í Los Angeles og
naut Jackson aðstoðar Quincy Jones
við verkið. Upptökur hófust í apríl
1982 en þeim var lokið í nóvember
sama ár.
Michael Jackson samdi sjálfur fjögur
af þeim lögum sem voru á plötunni.
Á alfræðivefnum Wikipedia segir að á
einu ári hafi Thriller orðið mest selda
plata sögunnar, en 65 milljónir eintaka
seldust. Platan vann til átta Grammy-
verðlauna árið 1984. - jhh
Þ ettA g e r ð i St :
3 0 . N óV e M B e r 1 9 8 2
Michael Jackson gefur út Thriller
Thriller Michael Jackson
Krakkarnir fengu að bregða á leik í gervi Línu um helgina. FréTTabLaðið/NorræNa Húsið
Persónurnar sem þau hafa
skapað eru allar vinir okkar
hvort sem við erum stelpur eða
strákar, ung eða gömul.
Merkisatburðir
1874 Winston Churchill fæðist.
1900 Oscar Wilde lætur lífið.
1939 Rússar hefja innrás í Finnland og gera loftárásir á Helsinki.
Vetrarstríðið er hafið.
1982 Michael Jackson gefur út aðra sólóplötu sína, Thriller. Thriller
er mest selda plata allra tíma.
1995 Fyrra Persaflóastríðinu lýkur formlega.
1990 Magnus Carlssen heimsmeistari í skák fæðist.
2007 Kárahnjúkavirkjun var gangsett.
2013 Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins til-
kynnir um aðgerðir til lækkunar á höfuðstól húsnæðislána.
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
D
-3
C
5
0
1
7
2
D
-3
B
1
4
1
7
2
D
-3
9
D
8
1
7
2
D
-3
8
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K