Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015 KOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 26 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Óstaðfestar fregnir herma að Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafi látið taka varnarmálaráðherra landsins af lífi með loftvarnabyssu vegna þess að hann hafi óhlýðnast fyrirmælum hans og sofnað á fundi á vegum hersins þegar leiðtoginn flutti ræðu. Leyniþjónusta Suður- Kóreu skýrði þingnefnd frá þessu í fyrradag og áður hafði hún greint frá því að fyrr á árinu hefði Kim Jong-un látið taka fimmtán hátt setta emb- ættismenn af lífi fyrir að draga al- ræðisvald hans í efa, þeirra á meðal tvo aðstoðarráðherra. Leyniþjónustunefnd suðurkór- eska þingsins var sagt að Hyon Yong-chol, varnarmálaráðherra Norður-Kóreu, hefði verið skotinn í tætlur með loftvarnabyssu í herskóla í höfuðborginni Pjongjang um síð- ustu mánaðamót, líklega 30. apríl. Hundruð manna fylgdust með aftök- unni, að sögn aðstoðarforstjóra leyniþjónustunnar sem kom fyrir þingnefndina. Draga fréttina í efa Óstaðfestar fregnir herma að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem emb- ættismaður sé tekinn af lífi í Norður- Kóreu með loftvarnabyssu. Á gervi- hnattamynd frá október síðastliðn- um sáust loftvarnabyssur sem komið hafði verið fyrir við herskólann í Pjongjang, að því er virðist til að undirbúa aftöku, að sögn fjölmiðla í Suður-Kóreu. Hermt er að vél- byssum og sprengjuvörpum hafi einnig verið beitt við aftökur. Sagt er að markmiðið sé að skjóta yfirstétt- inni skelk í bringu og sýna henni hvað verði um þá sem hlýði ekki leið- toganum í einu og öllu. Taka þarf þó slíkum fréttum með fyrirvara þar sem Norður-Kórea er eitt af einangruðustu löndum heims og skýrslur suðurkóresku leyniþjón- ustunnar um Norður-Kóreu hafa ekki alltaf reynst réttar. Nokkrir sérfræðingar í málefnum landsins gagnrýndu leyniþjónustuna fyrir að skýra frá meintri aftöku varnar- málaráðherrans án nægra sannana. Gæti bent til valdabaráttu Talsmaður sameiningarráðuneyt- is Suður-Kóreu sagði fréttirnar frá Norður-Kóreu benda til þess að Kim Jong-un væri að reyna að treysta sig í sessi sem einræðisherra „með því að skapa andrúmsloft ótta“. Reynist fréttin um aftöku varnarmálaráð- herrans rétt gæti hún bent til valda- baráttu á meðal æðstu leiðtoga landsins, að sögn nokkurra frétta- skýrenda. Yang Moo-Jin, prófessor í suður- kóreskum háskóla sem helgar sig rannsóknum á Norður-Kóreu, sagði fréttina um aftöku varnarmálaráð- herrans koma á óvart. „Hyon var álitinn á meðal þriggja nánustu bandamanna Kim Jong-un í hern- um,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Yang. Kim Jong-un hefur oft stokkað upp í ríkisstjórninni og yfirstjórn hersins frá því að hann tók við völd- unum eftir að faðir hans, Kim Jong- il, dó í desember 2011. Hyon Yong-chol varð varnarmála- ráðherra í júní síðastliðnum og þrír menn höfðu þá gegnt embættinu á rúmum tveimur árum. Forverar hans í embættinu voru þó ekki teknir af lífi. Hyon fór til Rússlands í apríl, meðal annars til að undirbúa fyrir- hugaða ferð Kim Jong-un til Moskvu vegna hátíðarhalda 9. maí í tilefni af því að 70 ár voru þá liðin frá sigri sovéska hersins á hersveitum þýskra nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Yang telur hugsanlegt að varnar- málaráðherrann hafi fallið í ónáð hjá Kim Jong-un vegna þess að honum tókst ekki að semja við Rússa um að sjá Norður-Kóreu fyrir nýjum vopn- um. Nokkrum dögum fyrir hátíðar- höldin í Moskvu var tilkynnt að Kim Jong-un hefði ákveðið að fara ekki til Rússlands vegna anna heima fyrir. Að sögn suðurkóresku leyniþjónust- unnar má rekja þessa ákvörðun til aftöku varnarmálaráðherrans. „Mjög óöruggur með sig“ Stephen Evans, fréttaritari breska ríkisútvarpsins í Suður-Kór- eu, telur að ef fréttin um aftöku varnarmálaráðherrans er rétt bendi hún til þess að Kim Jong-un sé „mjög óöruggur með sig og hættu- legur í óöryggi sínu“. Michael Madden, sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu, tekur í sama streng í fréttaskýringu á vef BBC. Hann segir þó að ekki sé ljóst hvort óöryggi Kims megi rekja til vandamála í einkalífinu eða til þess að hann telji sig ekki öruggan í sessi sem einræðisherra. Kim Jong-un lét taka eiginmann föðursystur sinnar, Jang Song-tha- ek, af lífi í desember 2013. Jang var álitinn næstæðsti embættismaður landsins þar til í odda skarst með honum og Kim Jong-un. Talið er að þeir hafi deilt um efnahagsmál. Jang er sagður hafa lagst gegn áformum leiðtogans um að byggja upp skemmtigarð og skíðaparadís og vilj- að að fyrst yrði lögð áhersla á að bæta efnahag landsins. Jang var handtekinn á fundi með flokksbræðrum sínum og tekinn af lífi eftir að hafa verið dæmdur til dauða fyrir landráð. Tekinn af lífi með loftvarnabyssu  Varnarmálaráðherra Norður-Kóreu sagður hafa verið líflátinn fyrir að óhlýðnast einræðisherra landsins  Leiðtoginn talinn reyna að treysta sig í sessi með því að skjóta yfirstéttinni skelk í bringu AFP Leiðtoginn valtur í sessi? Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, skoðar nautgripabú ásamt embættismönnum og herforingjum sem gæta þess að halda alltaf á vasabókum til að geta skrifað niður „leiðbeiningar“ einræðisherrans. Heimild: Leyniþjónusta Suður-Kóreu Ljósmynd : Ríkissjónvarp N-Kóreu, júlí 2012 Hyon Yong-chol Varnarmálaráðherra og yfirmaður hersins Staða: Aftökuaðferð: Var skipaður ráðherra fyrir tæpu ári Sást síðast opinberlega 28. apríl þegar hann sótti tónleika Skotinn með loftvarnabyssu Ástæða: Óhlýðni Svaf þegar leiðtogi landsins hélt ræðu Varnarmálaráðherra N-Kóreu tekinn af lífi Spáir Kim falli innan þriggja ára » Kim Jong-un hefur látið taka hundruð manna af lífi síðan hann tók við völdunum í Norður-Kóreu í desember 2011, að því er CNN hefur eftir æðsta embættismanninum sem flúið hefur frá landinu. » Flóttamaðurinn segir að Kim Jong-un sé grimmari en faðir hans, Kim Jong-il, sem hafi oftast látið nægja að hneppa óvini sína í fangelsi. Kim Jong-un láti hins vegar taka þá af lífi og myrða fjöl- skyldur þeirra, m.a. börn. » Flóttamaðurinn spáir því að Kim Jong-un missi stuðning yfirstéttarinnar í Norður-Kóreu og hrökklist frá völdum innan þriggja ára. Hann er ekki fyrsti norðurkóreski flóttamaðurinn sem spáir Kim falli en margir sérfræðingar hafa dregið slíka spádóma í efa. Vestrænir sérfræðingar í mál- efnum Norður-Kóreu fylgjast grannt með fréttum um aftökur og hugsanlega valdabaráttu í Pjong- jang vegna þess að þeir hafa áhyggjur af kjarnavopnum ein- ræðisstjórnarinnar. „Þarna eru all- mörg kjarnavopn – að minnsta kosti tólf. Við viljum sjá til þess að við vitum hverjir stjórna kjarn- orkuheraflanum,“ hefur fréttavef- ur CNN eftir Charles Armstrong, prófessor við Columbia-háskóla og forstöðumanni stofnunar sem rann- sakar samskipti Kóreuríkjanna. Armstrong segir að fram hafi komið vísbendingar um að Kim Jong-un víli ekki fyrir sér að láta taka keppinauta sína og hugsan- lega keppinauta af lífi eins og afi hans, Kim Il-sung, fyrsti leiðtogi einræðisríkisins, gerði á sjötta ára- tug aldarinnar sem leið til að treysta sig í sessi. Armstrong telur að mjög erfitt yrði fyrir hugsanlega keppinauta Kim Jong-un að steypa honum af stóli en þó ekki ómögu- legt. „Ef til vill kemur fram hópur sem telur hag sínum betur borgið með annan leiðtoga.“ Að minnsta kosti tólf kjarnavopn í N-Kóreu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.